Lögberg - 12.07.1956, Blaðsíða 8
8
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 12. JÚLÍ 1956
Færeyskur sjóræningi
Úr borg og bygð
30. júní 1956
Til íslendingafélagsins „Frón"
Winnipeg, Manitoba, Canada.
Hjartans þakklæti fyrir
vkkar mikla starf og undir-
búning við söngskemmtun
mína, 25. júní 1956, í First
Lutheran Church, Winnipeg.
Kvöldið verður mér ógleym-
anlegt. — Guð blessi starf
ykkar í náinni framtíð.
Kær kveðja,
ykkar einlæg
Hanna Bjarnadóitir
☆
Mrs. Una Bjarnason og Miss
Emma Sigurdson kenslukona,
sem báðar eru búsettar hér í
borginni, lögðu af stað vestur
til Vancouver í vikunni, sem
leið, og munu dveljast þar
vestra nálægt mánaðartíma.
☆ .
Mr. Ólafur Thorlacius frá
Ashern, Man., var staddur í
borginni ásamt frú sinni
seinnipart fyrri viku.
☆
Mr. Árni Pálsson fyrrum
bóndi í Reykjavíkurbygð við
Manitobavatn, en nú til
heimilis á Betel ásamt frú
sinni, var staddur í borginni á
fimtudaginn í vikunni, sem
leið.
☆
Þeim hjónunum séra Eric
H. Sigmar og frú Svövu Sig-
mar, St. James, Man., fæddist
sonur hinn 4. þ. m., er gefið
var nafnið Eric William. Lög-
berg árnar prestshjónunum
og hinum unga syni heilla og
blessunar.
☆
Kirkjuþingsfulltrúar og
prestar hins Evangeliska, lút-
erska kirkjufélags Islendinga
í vesturheimi, lögðu af stað
vestur til Vancouver með sér-
stakri Canadian Pacific lest á
fimtudaginn var til að sitja
þar kirkj uþing; eitthvað af
öðru íslenzku fólki, mun hafa
slegist með í förina.
☆
Þjóðræknisdeildin „Frón"
þakkar hér með eftirtöldum
konum fyrir bækur og rit
gefið til bókasafns deildar-
innar: Frú Hólmfríði Péturs-
son og frú Unu Th. Líndal.
Innilegustu þakkir fyrir
hönd deildarinnar „Frón“.
J. Johnson, bókavörður
☆
— danarfregn —
Síðastliðinn föstudag lézt í
San Francisco, Cal., Sigfús
Brynjólfsson byggingameist-
ari, merkur og vinmargur
drengskaparmaður; hann læt-
ur eftir sig frú sína, Sophiu,
glæsilega afbragðskonu.
Mrs. Athalsteinn Johnson
— Edna — frá Vancouver,
kom nýlega ásamt sonum
sínum þrem og dóttur í
heimsókn til foreldra sinna,
Mr. og Mrs. S. Björ'nson,
Beverley St. — Gerir Mrs.
Johnson ráð fyrir því að
dvelja hér um mánaðartíma.
☆
Mr. og Mrs. Jóhannes A.
Johnson frá Oak View, Man.,
voru stödd hér í bænum um
helgina, ásamt syni sínum
Herman og dóttur og tengda-
syni Mr. og Mrs. Wm. Norberg
frá Montreal, Que., sem eru
hér í heimsókn til foreldra og
ættingja.
☆
Séra Skúli Sigurgeirsson
frá Duluth, Minn., hefir dvalið
hér um slóðir nokkra undan-
fara daga ásamt frú sinni;
dvöldu þau hér í gistivináttu
Jónasar sonar síns og frúar
hans; auk hinna mörgu vina
og ættingja í þessari borg,
heimsóttu prestshjónin einnig
frændur og vini í Mikley,
Selkirk og á Gimli.
☆
Mr, V. Valgardson skóla-
stjóri frá Moose Jaw, Sask.,
kom til borgarinnar á mánu-
daginn ásamt frú sinni; við-
dvöl þeira varð ekki löng, því
ferðinni var heitið svo að
segja rakleitt norður til Mikl-
eyjar, þar sem þessi mætu
hjón ætla að njóta um hríð
nokkurrar sumarhvíldar.
☆
Mr. G. A. Williams kaup-
maður í Mikley var staddur í
borginni nokkra daga í fyrri
viku.
☆
— DÁNARFREGN -
Thorleifur Sigúrður Damels
son lézt að heimili sínu hér í
borginni síðastliðinn laugar-
dag, freklega sjötugur að
aldri; hann átti lengi heima í
Skógarnesi í Mikley, en dvaldi
síðar nokkur ár í Riverton, en
síðast í þessari borg; hann
stundaði jafnan fiskiveiðar;
hann lætur eftir sig konu sína,
Guðrúnu, einn son, Munda, og
sex dætur, Mrs. S. Ostertag,
Mrs. A. Horwood, Mrs. J.
Simpson, Mrs. H. Halldórsson,
Mrs. F. A. Cann og Mrs. A.
Friesen. Barnabörnin eru
átján; einnig lifir hann einn
bróðir, Daniel, og tvær systur,
Mrs. E. Sveinson og Mrs. L.
Josephson.
Útförin var gerð frá kirkju
Bræðrasafnaðar í Riverton í
gær. Séra Sigurður Ólafsson
jarðsöng.
☆
Nýlátin er hér í borginni
Mrs. Sigríður Galbraith, hnig-
MESSU BOÐ
ST. STEPHEN'S
LUTHERAN CHURCH
— Silver Heighls —
Eric H. Sigmar, Pastor
Sunday, July 15th:
Family Service 11 A.M.
☆
— MESSUR 15. júlí —
GIMLI, kl. 11 f. h.
ÁRNES, kl. 2 e. h. S. T.
RIVERTON, kl. 4 e. h. S. T.
Þessi messa ér á íslenzku og
kirkjugestum er boðið til veit-
inga að henni lokinni.
HECLA, kl. 7.30 e. h.
Séra Bragi Friðriksson
☆
Messur í Vatnabygðum, Sask.
Sunnud. 15. júlí:
Kandahar, kl. 11 f.h. — á
ensku.
Foam Lake, kl. 3 e.h.
á ensku.
Mozart, kl. 8 e. h., á ensku.
Miðvikudaginn 18. júlí:
Leslie, kl. 7.30 e. h.
á íslenzku.
Allir boðnir velkomnir.
Skúli Sigurgeirsson
☆
Messað verður í Guðbrands-
söfnuði við Morden, Man.,
sunnud. 22. júlí. Messugjörðin
fer fram í samkomuhúsi
bygðarinnar og hefst kl. 2 e. h.
Standard Time. Mælt verður
bæði á ensku og íslenzku.
S. Ólafsson
in að aldri; hún var tvígift;
fyrri maður hennar var
Magnús Brynjólfsson lög-
fræðingur, en sá seinni Gal-
braith læknir; heimili hennar
var áratugum saman í
Cavalier, N. Dak., og þangað
var lík hennar flutt undir
umsjá Bardals. Séra Philip M.
Pétursson jarðsöng.
☆
Mr. Ásmundur Loptson frá
Yorkton, Liberalþingmaður
fyrir Salt Coats kjördæmið í
Saskatchewan, var staddur í
borginni á þriðjudaginn; hann
leit sem snöggvast inn á skrif-
stofu Lögbergs, en því miður
var ritstjórinn ekki við til að
geta fagnað honum sem
gömlum og góðum vini.
☆
Nýkomin er hingað til
borgarinnar ungfrú Judit Jón-
björnsdóttir kenslukona af
Akureyri í heimsókn til föður
síns, og mun hún dveljast hér
fram undir haustið.
☆
Hin vinsælu hjón, þau
Steindór Jakobsson og frú,
sem árum saman starfræktu
matvöruverzlunina The West
End Food Market, en seldu
hana fyrir ári eða svo, eru nú
byrjuð að verzla þar aftur og
gengur verzlunin nú undir
nafninu Jakobsson Food
Store. Sími SUnset 30494. —
Þarf ekki að efa að fyrrum
viðskiptavinum verði tíðfarið
í búðina.
Framhald af bls. 5
styðja og fylgja fram kröfum
konungs um skatt af skipum
er sigldu norður fyrir Noreg
til Hvítahafsins, var Hejnesön
leyft að ráðast á og hertaka
sérhvern Hollending er til
náðist á opnu hafi, á leið norð-
ur fyrir Noreg til Rússlands,
færa skipin til Bergen, þar
sem konungi skyldi greiddur
helmingur hagnaðarins, en
Mogens og félagar hans
skyldu halda hinum helm-
ingnum. Með þessum sérrétt-
indum var Mogens Hejnesön
í raun og veru eini konungs-
skipaði sjóræninginn á Norð-
ur-Atlantshafi, enda kunni
lann að notfæra sér þessa
pægilegu aðstöðu. Hann var
tvímælalaust hugprúður og
duglegur sjómaður, en af lífi
og sál slóttugur og grimmur
sjóræningi, sem ekki tók svo
bókstaflega þau skilyrði fyrir
leyfinu að friðsamir sjófar-
endur -skyldu látnir óáreittir.
Sjálfa verzlunina lét Mogens
félaga sína í Bergen annast.
Ekki leið langur tími þar til
konungi fór að berast miður
fagrar sögur af starfsemi
Mogens Hejnesön og gekk
það svo langt að konungur
hugðist gera ráðstafanir til
þess að stöðva feril sjóræn-
ingja síns. Mogens tókst þó
með ótrúlegri ófyrirleitni og
loforði um að endurfinna
Grænland, að ná aftur náð
konungs, sem lengi hafði
dreymt um að ná Grænlandi
undir krúnuna og gert út
marga leiðangra í því skyni,
sem þó allir mistókust. •—
Mogens skyldi sjálfur kosta
þessa ferð og hafa allan veg
og vanda af þessum leiðangri,
en þetta var árið 1581. Bjó
hann nú skip sitt út frá Fær-
eyjum og heimti farareyri af
landsmönnum sínum á hinn
óvægilegasta hátt, en Öll
stjórn hans á þessari ferð bar
vott um hinn mikla dugnað
hans og fyrirhyggju. Honum
tókst að fá Grænlandsjökla í
augsýn, en ísinn kom í veg
fyrir að hann næði inn til
strandarinnar. Sigldi hann þá
í norðaustur í þeirri von að
komast til Austurbyggðar, en
þar hamlaði einnig ís honum,
svo að hann varð frá að
hverfa.
Til þess að halda einkaleyf-
inu á siglingum til Færeyja,
eftir hina misheppnuðu Græn
landsferð, varð Mogens
Hejnesön að ganga í félag við
kaupmann nokkurn í Ham-
borg og borgara í Kaup-
mannahöfn og fengu þeir fé-
lagar rétt þennan til 5 ára.
Ýmsar alvarlegar málshöfð-
anir vofðu yfir höfði Mogens
Hejnesön, svo að árið 1583
missti hann aftur hið konung-
lega einkaleyfi til siglinga til
Færeyja, en næstu tvö árin
sigldi hann í þjónustu Hol-
lendinga og var foringi her-
skips, sem hertók mörg ensk
kaupför að hætti sjóræningja,
þótt Holland og England ættu
ekki í ófriði á þeim tímum.
Árið 1587 sneri hann aftur til
Danmerkur, en ári seinna dó
verndari hans Friðrik kon-
ungur III. og notaði nú óvinur
hans Kristofer Valkendorf
tækifærið, lét handtaka Mog-
ens og varpa honum í fang-
elsi í Kaupmannahöfn fyrir
sjórán, og í janúar árið 1589
var færeyski sjóræninginn
Mogens Hejnesön dæmdur til
dauða og hálshöggvinn í
hallargarðinum.
Svo mikla aðdáendur átti
3Ó Hejnesön meðal áhrifa-
manna í Danmörku, að árið
eftir aftökuna fékk hann fulla
uppreisn æru sinnar, og var
grafinn upp og jarðsettur á
ný í kirkjugarði Oslevs
dausturs, en Valkendorf
hröklaðist frá embætti við
lítinn orðstír.
Mogens Hejnesön lifir enn
þann dag í dag í hjörtum allra
Færeyinga. Gallar hans eru
gleymdir, en dyggða og dugn-
aðar minnzt og um frægðar-
verk hans ganga margar
sögur, sem sagðar eru í söng
og kvæðum á dimmum vetrar
kvöldum og margur Færey-
ingurinn rekur ætt sína til
hans, sem flestir landsmenn
telja bera hæst á söguöld.
I lok 16. aldar komst verzl-
unin við Færeyjar í hendur
„Islands-verzlunarinnar“ (Det
Islanske Kompani) og er saga
hennar upp frá því hliðstæð
verzlunarsögu Islendinga frá
dögum dönsku einokunarinn-
ar, og verður því ekki rakin
hér. —VÍKINGUR
Afnám dauðadóms
Framvarpið um afnám
dauðadóms, sem neðri mál-
stofa brezka þingsins nýlega
samþykti, hefir nú verið lagt
fram í lávarðadeildinni,
hvernig sem því kann að reiða
þar af.
Á kvöldvökunni
Gárungar austan járntjalds
henda mikið gaman að því, að
Rússar eigna sér uppfinn-
ingamenn flugvéla, útvarps,
kvikmynda o. s. frv. Saga er
sögð af tveimur Ungverjuna,
sem voru að ræða um síðustu
viðburði. Annar þeirra ga^
þess, að rússneskur vísinda-
maður hefði nýlega fundið
upp lyf, sem gæti lengt líf'
daga mannsins upp í 300 ár.
Hinn stóð höggdofa augna-
blik, síðan rak hann upp ör-
væntingaróp.
„Hvað er að?“ spurði hinn-
„Hvað er að!“ sagði sá ör-
væntingarfulli. „Hugsaðu þér
bara, hversu hræðilegir fang-
elsisdómarnir verða, her
eftir!“
Kaupið Lögberg
VÍÐLESNASTA
ISLENZKA BLAÐIÐ
Subscription Blank
COLUMBIA PRESS LTD.
695 Sargent Ave., Winnipeg
I enclose $ for subscription to the
Icelandic weekly, Lögberg.
NAME
ADDRESS
City Zone ..