Lögberg - 27.12.1956, Page 11

Lögberg - 27.12.1956, Page 11
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 27. DESEMBER 1956 19 gersamlega að sleppa sér, þegar lögreglan hafði sannan- ir á hann í höndum sér. Um það bil 2000 manns, sem álíta má hættulegt fólk, vegna geðtruflana, er undir stöðugu eftirliti, og aðalstöðvarnar fylgjast nákvæmlega með dvalarstað þess á hverjum tíma. Þegar forsetinn fer í heimsókn til einnar eða ann- arar borgar, sér leyniþjónust- an um, að stöðug gát sé höfð á öllum grunsamlegum per- sónum, sem vitað er um. Þeg- ar Truman heimsótti Chicago árið 1946, rákust leynilögreglu mennirnir skyndilega á ná- unga einn, sem kom á járn- brautarstöðina, einmitt í sömu mund og lest forsetans nam staðar. Þeir höfðu þekkt hann eftir ljósmynd, sem rannsókn- ardeildin hafði látið þeim í té. Ferðir forsetans eru skipu- lagðar í hverju smáatriði í samráði við Secret Service. Þegar Eisenhower forseti und- irbjó för sína til Genf á fund hinna f jóru stóru sumarið 1955 sendi Secret Service leynilög- reglumenn sína til Sviss etetctetet«retej mörgum vikum áður. Þeir völdu húsið, þar sem Eisen- hower skyldi búa, og kort- lögðu allt umhverfi þess, gerðu uppdrætti af öllu hús- inu, réðu þjónustu fólk eftir nákvæma rannsókn, lækna, símaþjónustumenn, já, — og tryggðu það meira að segja að bréfakarfan væri hreinsuð af ráðvöndu fólki, sem treysta mátti. I amerísku konsúls- skrifstofunum, sem Eisen- hower átti að hafa til afnota meðan hann dveldi á fundin- um, voru allir veggir, gólf og loft, leiðslur og vatnsrör, tal- símatæki, lampar og ljósa- rofar, nákvæmlega rannsak- aðir. Auðvitað var Secret Ser- vice kunnugt um ferðaáætl- unina, brottfarar- og komu- tíma hvert sem forsetinn vék sér við á ferðalaginu. Persónulegar venjur forset- anna, svo sem morgungöngur Trumans og golfleikur Eisen- howers, skapar leyniþjónust- unni sérstök verkefni við að glíma. 1 augum áhorfenda lít- ur það svo út, að Eisenhower hafi engan lífvörð, þegar hann Compliments of THE WEST’S OLDEST MUSIC HOUSE 75 YEARS SERVING THE WEST HEINTZMAN PIANOS HAMMOND ORGANS i EVERYTHING IN RADIO \ S HI-FIDELITY AND TELEVISION I J !J. J. H. McLEAN & CO. LTD. Edmonton & Graham Winnipeg, Manitoba \ eeieictctcectetetetetetctctetceetetctctctctceetctcteteeeieecectetcecteteteecteteteeeectcectctcvj Megi hátið Ijósanna vekja hvarvetna frið og fögnuð! Með þökk fyrir greið og góð viðskipti. SELKIRK GARAGE LTD. MERCURY - LINCOLN & METIOR DEALERS At the Bridge \ SELKIRK, MAN. PHONE 3111 j f*aatatS)»agSts«S)StSiS)SgS9S)StS)S)St»»S)S)SiStS)S)SaS)S)S)S)S)S«>)a)atS)S)StS)StSistata)l ^tcteectetctctetctctctctctetetetctcteteietetctetcteteteeetetcteeetctetctetetetetetetetetctetctc; 1 3 Innilegar jóla- og nýársóskir S. A. THORARINSON BARRISTER and S0LICIT0R 2nd Floor Crown Trusi Bldg., 364 MAIN ST. Office Phone 92-7051 HEIMASlMI 40-6488 leggur golfkúlu sína í stöðu og byrjar að leika, en það eru jafnan vopnaðir leynilögreglu menn meðal golfleikaranna á vellinum. Einn af leyniþjón- ustumönnunum, ber í golf- kassa sínum stuttbylgju sendi- tæki, svo að hann getur haft samband við aðalstöðvarnar, eða leynilögreglumenn, sem eru á ferð á bílum sínum utan við leikvanginn og hafa auga með inngönguhliðinu á golf- völlinn. Þegar forsetinn fer í leikhús, er nákvæm rannsókn framkvæmd í sambandi við hvern einstakan leikara, sem kemur fram í leikritinu, leyni- lögreglumaður er að tjalda- baki meðan leikurinn fer fram, og komi skotvopn við sögu í leikritinu, er það rann- sakað áður en það er borið fram á sviðið. Á sama hátt er Secret Ser- vice stöðugt á verði til þess að fyrirbyggja slys. Þegar iorsetinn er viðstaddur knatt- leiki ,er maður settur fyrir framan stúku hans til þess að vera viðbúinn að grípa hættu- lega bolta, er koma kunna í stefnu á forsetann. Þegar Eisenhower var í Genf, veitti forseti Secret Service, U E. Baugham, því athygli, að vél- skófla var að starfi í hús- grunni gegnt ameríska kon- súlatinu, og Baugham fékk svissnesku lögregluna til þess að stöðva framkvæmdir, þar til bifreið Eisenhowers var ekið fram hjá staðnum. Eftir Genfarfundinn gagn- rýndu svissnesk blöð þær reglur, sem viðhafðar voru til að vernda Eisenhower forseta, og töldu þær ofstækisfullar og öfgakenndar. En staðreynd- irnar sýna, að þessi gagnrýni á engan rétt á sér. í þau 55 ár, sem Secret Service hefir vak- að yfir öryggi forseta Banda- ríkjanna með góðum árangri, hafa launmorðingjar í öðrum löndum líflátið samtals níu konunga, drottningar og ríkis- arfa, ellefu forseta, sextán' forsætisráðherra og fjölda- marga aðra háttsetta menn og þjóðhöfðingja, þeirra á meðal Mahatma Gandhi og Folke Bernadotte greifa. Mörg af þessum illræðisverkum höfðu afdrifaríkar afleiðingar fyrir mörg lönd, já, fyrir allan heiminn, en það, að nöfn for- seta Bandaríkjanna hafa ekki komið á þennan dapra dánar- lista, er varla tilviljun einni háð. —Sunnudagsblaðið iBggan I

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.