Lögberg - 20.06.1957, Page 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 20. JÚNÍ 1957
3
af ósamkomulagi stórvelda
heimsins. Vitanlega líður sá
skuggi hjá fyrr eða síðar og
íslendingar fá einir að byggja
sitt land eins og þeir hafa
rétt til. Um framtíðina skal
fáu spáð. Þjóðin er aðeins að
byrja að nota sér gæði lands
síns og ef fram heldur sem
nú horfir munu þau gæði geta
veitt hundruðum þúsunda
heimili, fæði og klæði.
Við sem erum hér í dag til
að minnast 10 ára lýðveldis
íslands munum flést geyma í
hugum okkar hugljúfa mynd
af Fjallkonunni, tign hennar
og yndi, stolti og mildi undir
stjörnubjörtum vetrarhimni
og í geislum miðnætursólar-
innar. Við óskum henni gæfu
og farsældar um ókomin ár
og aldir og tökum undir orð
Stephans G. Stephanssonar, er
hann segir í Ástarvísum sín-
um til íslands:
„Ég óska þér blessunar —
hlýlega hönd
þó héðan þér rétt geti neina.
En hvar sem ég ferðast um
firnindi og lönd,
ég flyt með þá von mína eina:
Að hvað sem þú föðurland
fréttir um mig
sé frægð þinni hugnun. — Ég
elskaði þig.“ —
Við viljum vera ættlandi
voru til sóma hvar sem við
lifum. Það er okkur hvatning
og uppörfun til alls góðs. Við
skulum meta það og ævinlega
vera þakklát fyrir það, að vera
fædd af íslenzkum ættstofni,
því íslenzka .þjóðin hefur
sannað sinn rétt til að sitja
við háborð menningar, mann-
vits og manndóms kinnroða-
laust.
I eiginlegasta skilningi er-
um við öll íslendingar, því:
„Innst í þínum eigin barmi,
eins í gleði og eins í harmi,
ymur íslands lag.“ —
Allt fólk af íslenzkum ætt-
um er samborgarar í andans
ríki.
Við vonum og biðjum að
íslendingum megi ævinlega
takast með Guðs hjálp að
varðveita frelsi sitt og sjálf-
stæði. Hver kynslóð verður
að ávinna sér það og lifa
þannig að hún verðskuldi að
njóta þess, því frelsið er brot-
hætt og margar þjóðir hafa
brotið það fjöregg í gáleysi á
örlagasteini.
Við vonum að stórar og
voldugar þjóðir virði ævin-
lega rétt Islendinga einna til
síns eigin lands og hafsins,
sem umlykur það, því hafi
nokkur þjóð verðskuldað
vegna þeirrar baráttu, sem
hún hefur háð og hversu hún
hefur liðið og samþjáðst með
sínu landi, að vera frjáls og
njóta gæða síns lands, þá er
það íslenzka þjóðin.
Ég lýk svo þessum orðum
mínum og árna Islandi og ís-
lendingum allra heilla, og við
öll tökum af hjarta undir orð
skáldsins er það segir: —
KIRKJA OG TRÚMÁL:
MENE
Vorið er að vekja lífið af
dvala. Fegursti tími ársins
nálgast. Aldrei er hönd al-
mættisins auðsærri en á vorin,
þegar náttúran færist í nýjan
skrúða og leikur á alla strengi
gleði og lífsgnægðar. Þá má
vissulega oft segja með ís-
lenzka alþýðuskáldinu:
í dag er auðsén, Drottinn
minn,
dýrð þín gæzkuríka.
Maður heyrir málróm þinn,
maður sér þig líka.
Náttúran er helg í augum
kristins manns. Guð hefur
gefið manninum leyfi til þess
að hagnýta sér hana, „gjöra
sér jörðina undirgefna“ eins
og segir í sköpunarsögu Biblí-
unnar. En hann má aldrei
gleyma því, að hann er aðeins
þiggjandi við náttúrunnar
nægtaborð. Faðir lífsins, höf-
undur sköpunarverksins, hef-
ur fengið honum jörðina að
láni og gefið honum vit og
getu til þess að hagnýta sér
hana sér til uppeldis og
þroska. En ef hann gleymir
þeirri ábyrgð, sem honum er
á herðar lögð samfara þeim
rétti, sem honum er fenginn,
þá hlýzt verra af.
Mannkynið er nú komið að
þeim aldamótum, að annað
hvort verður það að átta sig
á þessu til verulegrar hlítar,
eða að falla að öðrum kosti.
Maðurinn hefur rutt sér til
rúms um lönd og höf, nytjað
gróður og hagnýtt sér hvers
konar auðlindir til hins ýtr-
asta. En nú blasir við sú harka
lega staðreynd, að nægtabúr
náttúrunnar eru ekki ótæm-
andi. Auðlindir horfa til
þurðar, gróðurlendur ganga
saman. Vísindamenn hafa
hver af öðrum varað við
þessu, hver um annan þveran
bent á, að óðar en varir verði
komið í óefni. Kolin verða
búin, olían þrotin, ræktarlönd
jarðár alls ónóg. Mannfjölgun
er svo miklu meiri en sem
svarar aukningu matvæla-
framleiðslunnar, að hungur
er fyrirsjáanlegt, ef ekkert ó-
vænt gerist eða öllu heldur:
Ef aðrir og ábyrgari búskap-
arhættir verða ekki teknir
upp. — Auðshyggja hvítra
manna hefur verið gegndar-
„Svo frjáls vertu móðir sem
vindur um vog
sem vötnin með straumana
þungu
sem himins þíns bragandi
norðljósalog
og ljóðin á skáldanna tungu.
Og aldregi ,aldreig bindi þig
bönd
nema bláfjötur ægis við
klettótta strönd."
Haldi Guð verndarhendi
sinni alla tíma yfir Islandi og
Islendingum.
TEKEL
laus. Nú læra aðrar þjóðir sem
óðast tæknibrögð þeirra og
þær eiga margar langt í land
til þeirra lífskjara, sem vér
njótum. Varla munu soltnar
milljónaþ’jóðir í Austurvegi
láta sitt eftir liggja, um kapp-
semi, þegar þeim vex megin.
Vér íslendingar þekkjum
bezt þann þátt þessarar sögu,
sem snertir hafið. Þeir veiði-
flotar, sem ganga á fiskimiðin,
stækka með hverju ári sem
líður, og öll tæki verða sífellt
fullkomnari. Hvarvetna er
unnið að nýsköpun athafna-
lífsins og það þýðir meðal
annars, að æ dýpra er seilzt í
nægtabrunna sjávarms.
En þar kemur, að menn eru
minntir á, að sköpun er orð,
sem þeir setja ófyrirsynju
á stefnuskrár sínar. Menn
geta ekkert skapað, ekki held-
ur nýskapað eða endurskapað.
Þegar búið er að gereyða geir-
fuglinum, þá verður það al-
drei aftur tekið né um bætt.
Ein hrísla, sem þú rífur upp
með rótum, er fallin og þú
getur ekki vakið hana til lífs
aftur. Þú getur ekki skapað
neitt, ekki strá, ekki seyði,
ekki hreisturflögu. Leyndar-
mál lífsins er hjá öðrum
geymt. Þú getur ekki einu
sinni gert eitt hár á höfði
þínu hvítt eða svart.
Maðurinn getur þyrmt lífi,
skýlt því og hlynnt að því.
Hann getur varazt að ofbjóða
því. En sköpun er ekki á hans
færi. Og áður en vér vitum,
ganga nýsköpunartogararnir
á dauðum miðum. Hin tækni-
legu meistaraverk knýja til
einskis dyra að forðabúrum
þeirrar náttúru, sem hefur
verið ofboðið og erjuð með
afarkostum.
Nú hafa mannkyninu opn-
azt nýjar leiðir og stórfengleg
úræði borið að höndum þess
með lausn kjarnorkunnar. —
Hingað til hefur sá sigur
mannlegs hugvits verið tilefni
skelfíngar og engrar gleði —
sívaxandi skelfingar. Enginn
veit, hvað framundan er eða
hverju hefur þegar verið
hleypt af stað með þeim til-
raunum, sem búið er að gera.
En svo mikið er víst, að tröll-
aukinn máttur leiðir til jafn
risavaxinna óhappa á meðan
hendur mannsins stjórnast af
hugsun, sem lokar sér fyrir
Guði og lýtur taumlausri
ránshneigð.
Vér höfum, nútímamenn,
hver með öðrum, í átakanleg-
um óvitaskap, aðhyllzt og ein-
blínt á framtíðarhugsjón
tæknilegs töfravalds, sívax-
andi ytri yfirráða og þar aj'
leiðandi síaukinna þæginda,
hóglífis, munaðar. Oss hefur-
dreymt um vald yfir öllu og
ástundað vald yfir öllu —
nema sjálfum oss. Og svo
verður öll getan að voða :i
Business and Professional Cards
Minnist BETEL í erfðaskrám yðar SELKIRK HETAL PRODUCTS Reykháfar, öruggasta eldsvörn, og ávalt hreinir. Hitaeiningar- rör, ný uppfynding. Sparar eldi- viö, heldur hita frá aö rjáka út meö reyknum.—Skrifiö, símiö tll KELLY SVEINSSON 625 WaU St. Winnipeg just North of Portage Ave. SUnset 3-3744 — SUnset 3-4431
G. F. Jonasson, Pres. & Man. Dir. Keystone Fisheries Limited Wholesale Dlstributors ot FRESH AND FROZEN FISH 60 Louise St. WHitehall 2-5227 S. O. BJERRING Canadian StampCo. RUBBER & METAL STAMPS NOTARY & CORPC3RATE SEALS CELLULOID BUTTONS 324 Smiih Si. Winnipeg VVHitehall 2-4624
Van's Electric Ltd. 636 Sargent Ave. Authorized Home Appliance Dealers GENERAL ELECTRIC — ADMIRAL McCLARY ELECTRIC — MOFFAT SUnset 3-4890 A. S. BARDAL LTD. funeral home 843 Sherbrook Street Selur llkkistur og annast um út- farir. Allur útbúnaöur sá beztt. Stofnaö 1894 SPruce 4-7474
t FRÁ VINI P. T. Guttormsson barrister, solicitor, notary public 474 Groln Exchonge Bldg. 167 Lombord Street Office WHitolmll 2-4829 Residence 43-3864
Office Res. WHitehall 2-4762 SPruce 2-6115 Dr. L. A. Sigurdson 528 MEDICAL ARTS BUILDING Office Hours: 4 p.m.—6 p.m. and by appointment. SPruce 4-7855 ESTIMATOS J. M. Ingimundson Re-Roofing - Asphalt Shinglet Insul-Bric Siding Vents Installed to Help Eliminate Condensation 632 Simcoe St. Winnipeg, Man.
PARKER, TALLIN. KRIST- JANSSON. PARKER AND MARTIN BARRISTERS — SOLICITORS Ben C. Parker, Q.C. (1910-1951) B. Stuart Parker. Clive K. Tallin, Q.C., A. F. Kristjansson, Hugh B. Parker, W. Steward Martin 5thíl. Canadlan Bank of Commerce BuUding, 389 Main Street Winnipeg 2, Man. WHitehaU 2-3561 Muir's Drug Siore Lid. J. CLUBB FAMILY DRUÖGIST SERVING THE WEST END FOK 27 YEARS SPruce 4-4422 EUice St Home
Thorvaldson, Eggerison, Baslin & Siringer Barristers and Solicitors 209 BANK OF NOVA SCOTIA Bldg Portage and Garry St. WHitehaU 2-8291 Dr. G. KRISTJANSSON 102 Osbome Medical Bldg. SPruce 4-0222 Weston Office: Logan & Quelch SPruce 4-5818 Res.: SPruce 4-0118
J. J. Swanson & Co. LIMITED 308 AVENUE BLDG. WINNIPEG Fasteignasalar. Leigja hús. Út- vega peningalán og eldsábyrgiS, bifreiCaábyrgtS o.s. frv. WHitehall 2-7538 S. A. Thorarinson Barrister and Solicitor 2nd Floor Crown Trust Bldg. 364 MAIN ST. Office WHitehall 2-7061 Res.: 40-6488
CANADIAN FISH PRODUCERS LTD. J. H. PAGE, Managing Director Wholesale Distributors of Fresh and Frozen Fish 311 CHAMBERS STREET Office: *es.: SPruce 4-7451 SPruce 2-3917 Dunwoody Saul Smiih * & Company Chartered Accountants WHiiehall 2-2468 100 Princess St. Winnipeg, M&n. And offices at: FORT WILLIAM - KENORA FORT FRANCES - ATIKOKAN
vitfirrings höndum, rjál óvit- ans við sprengiefni, dans blindingjans á hengiflugsbrún. Það vantar eitthvað í vizk- una, þegar upphafið glatast, sjálf frumatriði allrar vizku, sem er ótti Drottins, lotningin fyrir föður lífsins, skapara al- heimsins. —VÍSIR, 4. maí The Business Clinic Anna Larusson — Florence KeUett 1410 Erin Street Phone SPruce 5-6676 Bookkeeplng - Income Tax Insurance
Dr. ROBERT BLACK SérfrætSingur I augna, eyrna, nef og hálssjúkdómum. 401 MEDICAL ARTS BLiDG. Graham and Kenncdy St. Office WHitehall 2-3861 Res.: 40-3794
KAUPIÐ og LESIÐ —LÖGBERGl