Lögberg - 31.10.1957, Blaðsíða 1

Lögberg - 31.10.1957, Blaðsíða 1
70. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 31. OKTÓBER 1957 NÚMER 44 Frá Suður-California MINNINGARORÐ: Guðjón Kristjánsson Laugardagskveldið hinn 12. október s.l. fór fram hin ár- lega samkoma Leifs Eiríks- sonar félagsins í Los Angeles Breakfast Club í Los Angeles. Þarna komu saman um 1400 manns. — Eins og í síðastliðin 10 ár komu íslendingar þar töluvert við sögu hvað undir- búning snerti. Svo kom þar fram hin vinsæla söngkona Eileen Cristy — söng hún marga söngva við mikla hrifn- ingu. Þar var stór söngflokkur, sem söng marga Norðurlanda- söngva. Sömuleiðis sýndi vel æfður 20 mánna hópur karla og kvenna skandinaviska dansa. Ágætar veitingar voru framreiddar úti og inni, og dansað var til kl. eitt um nótt- ina af miklu fjöri. — Um 50 til 60 íslendingar voru þarna og héldu þeir vel hópinn í marg- menninu. Þarna voru margir frá íslandi, t. d. Ásgeir Ás- geirsson og kona hans Kalla Sveinsdóttir, eru þau hjón í heimsókn til bróður Köllu á Long Beach, Suma Swánson; Holgeir Gíslason, kona hans Guðrún Sæmundsdóttir, sonur þeirra Gísli Oscar Clausen í Reykjavík er móðurbróðir Holgeirs; Jón Jónsson, hann er sonur Bjarna Jónssonar snikkara, sem einu sinni átti heima í Winnipeg; Guðlaug Magnúsdóttir frá Skuld í Nýjustu fréttir Georgi K. Zhukov yfirhers- höfðingi rússnesku ráðstjórn- arríkjanna fram að síðustu helgi, hefir „gufað upp,“ að því er fregnir frá Moskvu herma; um ástæðuna er enn eigi vitað; hvort hann var orð- inn ofjarl Khrushevs, sem ryðja þurfti úr vegi, eða ein- hver dularöfl skárust í leik- inn. Zhukov er persónulegur vinur Eisenhowers forseta, er víðtæk áhrif hafði á fram- vindu síðari heimsstyrjaldar- innar, og það var hann er lét liðssveitir sínar hrekja Þjóð- verja út úr Úkraníu. Eftir- maður hans er Malinovsky marskálkur. Nýtt róðhús \ Winnspog l Við bæjarstjórnarkosning- arnar, sem hér fóru fram hinn 23. þ. m-, samþyktu kjósendur 6 miljón dollara járveitingu til að koma upp nýju ráðhúsi, er reist skuli verða á Broad- way skamt frá . þinghúsi fylkisins. Hafnarfirði, hún er í heim- sókn til dóttur sinnar Mrs. Bernard; ennfremur Jóna Haraldsdóttir frá Súðavík; Stanley Ólafsson ásamt frú sinni; Halla og Hal Linker, móðir hennar og stjúpi Stefán Jóhannsson frá Hafnarfirði. Samkoma þessi var mjög vel sótt, fór prýðilega fram og var öllum til sóma, sem þar komu við sögu. Hinn 8. sept. s l. komu sam- an um 150 íslendingar í Fern- dell Park í Hollywood hæðun- um, sem án efa er einn af fegurstu stöðum í Suður- California. Dagurinn var dá- samlegur, ekki of heitt. Guðný Thorwaldson veitti ókeypis kaffi allan daginn. Kjartan Runólfsson var þar með harmoniku sína; spilað var og sungið svo að bergmálaði í fjöllum. — Meðal gesta þar var Guðmundur Pálsson tré- smíðameistari frá Boston, Mass. Hann er fæddur í Reykjavík, systursonur Jóns Hafliðasonar í Winnipeg í Vesturheimi; hefur hann dval- ið í 37 ár í Boston; hann er kvæntur þýzkri konu; synir hans tveir eru flugmenn. — Guðmundur hefir heimsótt ís- land, enda góður Islendingur og víða heima. Endurkosinn í bæjarst-jórn Paul W. Goodman Við nýafstaðnar bæjar- stjórnarkosningar í Winnipeg var Paul W. Goodman endur- kosinn í bæjarstjórn fyrir 2. kjördeild með miklu afli at- kvæða. Mr. Goodman hefir reynst ágætur bæjarfulltrúi, sem vissulega verðskuldaði endurkosningu. Guðjón Kristjánsson andað- ist að Reynistað í Mikley 1. febrúar 1955. Hann var ná- lega 84 ára að aldri; var fædd- ur á íslandi 17. febrúar 1871, austfirzkur að ætt og fluttist til Vesturheims frá Papey um aldamótin. Hann var fyrst hjá Samson Samson í Norður Dakota, en keypti svo bújörð í Saskatchewan; rak búskap í nokkur ár og flutti þaðan til Winnipeg. Guðjón heitinn var góðum gáfum gæddur, íhugull og gætinn. Hann lagði um eitt skeið mikla rækt við mann- tafl 'og árið 1926 vann hann mikinn sigur í þessari merki- legu list; hann hlaut medalíu, sem skákkappi hinnar cana- disku þjóðar í bréfa-viðskipta- tafli — Correspondence Chess, — og skaraði langt fram úr öllum þeim, er um heiðurinn kepptu. Árið 1930 fór hann til Mikleyjar á vegum Helga Sigurgeirssonar; var hjá hon- um í tvö ár og fluttist síðan til Kristjáns og Sigþóru Tómasson að Reynistað og þar dvaldi hann það sem eftir var ævinnar, í liðlega tuttugu ár. Guðjón heitinn var framúr- skarandi húsbóndahollur og dyggur í öllu starfi, er honum var falið á hendur. Hann hafði umsjón með búskapnum á heimilinu og var oft tekið til þess, hve hann var nærgætinn við skepnurnar; hann virtist skilja málleysingjana og þrif- ust þeir vel undir hans um- sjá- Hann var og barngóður 0o þótti barnahópnum, sem þar var að vaxa upp á heimil- inu mjög vænt um hann. Var brátt litið á hann sem væri hann einn af fjölskyldunni. Vinum sínum var hann ó- brigðull. Útfarardaginn 4. febrúar komu Tómasson-systkinin fjögur, sem flutt voru af eynni, heim til að taka þátt í kveðjuathöfninni. Húskveðja fór fram á heimilinu; útförin var gerð frá Mikleyjarkirkju og hinn látni lagður til hvíldar í Mikleyjargrafreit. Séra H. S. Sigmar flutti kveðjumál. Frú Sigþóra og börn hennar, sem urðu hinum látna svo lengi samferða, minnast þessa gamla, góða vinar með inni- legu þakklæti. Guðjón lét eftir sig bróður, Hannes Kristjánsson, á heim- ilinu Höfn í Vancouver, og bróðurdóttur, frú Fjólu Gray, Winnipeg, Man. Var hún við- stödd útför frænda síns. —I. J. Tyrkneska stjórnin endurkosin Síðastliðinn sunnudag fóru fram almennar kosningar til tyrkneska þingsins og lauk þeim á þann veg, að flokkur Demokrata, sem Adnan Menderes forsætisráðherra hefir veitt forustu um alllangt skeið gekk sigrandi af hólmi með miklu afli atkvæða; sex hundruð og tíu fulltrúar eiga sæti á þingi; þingið kom sam- an hinn 1. þ. m- til að velja sér forseta til fjögra ára. MINNINGARORÐ: Guðmundur Elías Guðmundsson 1867—1957 Guðmundur Elías andaðist 29. sept. s.l- á sjúkrahúsinu í Bellingham, Wash. Hann var fæddur 29. apríl 1867, ættaður úr Árnessýslu. Kvæntist 21. október 1890 Guðrúnu Stein- grímsdóttur, systur Guðmund- ar Grímssonar hæstaréttar- dómara í N. Dakota. Guðrún og Elías fluttu til Vesturheims árið 1900; döldu í N. Dakota í 2 ár; fluttu þaðan til Winnipegosis og voru þar í önnur 2 ár; fluttu svo þaðan til Foam Lake, Sask. og bjuggu þar í 19 ár; tóku sig upp á ný og fluttu vestur á Kyrrahafsströnd og höfðu heimilisfang á Point Roberts, Wash. í 26 ár; en síðustu ár ævi sinnar var Elías á Gamal- menna heimilinu „Stafholti“ í Blaine, Washington. Elías lætur eftir sig háaldr- aða eiginkonu sína og 9 börn. Þeim hjónum varð 12 barna auðið — þrjú dóu ung. Nöfn barnanna, sem lifa föður sinn, eru sem hér segir: Matthías bóndi í Foam Lake, Sask., Canada. Sigrún heima á íslandi. Guðrún Dagmar á Point Roberts, Wash. Valtýr (Walter) í Belling- ham, Wash. Guðmundur í Seattle- Kristín í Bellingham. Agnes í Ferndale, Wash. Steinunn Jóna í Spokane, Washington. Þórhallur Garðar í Belling- ham, Wash. Öll þessi börn ofanskráðra hjóna eru gift og eiga börn sjálf. Þetta er fjölmennur ætt stofn og frábærlega myndar- legur, sem íslendingar vestan og austan hafs mega vera stoltir af. Elías var einarðlegur í fram komu, bókavinur mikill og söngelskur. Útför Elíasar sál. fór fram 1. okt. s.l. í Blaine frá Mc- Kenney útfararstofu. Séra A. E. Kristjánsson flutti kveðju- orð. —J. J. M. Skúli G. Bjarnason

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.