Lögberg - 13.03.1958, Blaðsíða 5

Lögberg - 13.03.1958, Blaðsíða 5
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 13. MARZ 1958 5 AHIJ6AMAL Ritstjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Fjórar manngerðir, Hvers konar manngerðir eru það einkum, sem konur eru veikastar fyrir? Það er ða sjálfsögðu erfitt að svara þeirri spurningu af- dráttarlaust, því að karlmenn eru jafnólíkir og konurnar. Samt sem áður segja sál- fræðingarnir oss, að það það séu einkum fjórar manngerð- ir, sem kvenfólkið á erfitt með að standast. I. í fyrsta lagi er það maður- inn, sem skýrskotar til móður- tilfinningar konunnar. Hann er venjulega grannvaxinn, ekki mjög hár og fremur kraftasmár. Hann er feiminn og hlédrægur í daglegri um- gengni, — nema þegar hann er í félagsskap kvenna; þá er hann í essinu sínu og verður liðugt um málbeinið. Hann er hjálpsamur við heimilisstörfin, en er lítt sjálf- stæður í athöfnum sínum, og þarfnast styrks og ráðlegginga í ýmsum vandamálum. — Það liggur í augum uppi að þessi manngerð er tíðfundin meðal menntamanna — og einnig nokkuð meðal handverks- manna. Sálfræðingarnir segja: Konurnar eru veikar fyrir honum vegna þess að þær hafa löngun til að hjálpa honum, vernda hann og hlúa að hon- um. Tíðum líkist hann meira barni en fullvöxnum manni, og það er í eðli konunnar að gæla við börn og veita þeim móðurvernd. II. Önnur manngerðin er algjör mótsetning þeirrar fyrstu. Hann er sjálfsoruggur heims- maður. Sé hann ekki fríður sýnum, vinnur hann það upp með því að vera jafnan vel til fara og smekklega snyrtur. Hann er mælskur, bugast ekki fyrir mótlæti og á ekki til feimni. Hann leggur enga dul á afreksverk sín, og er jafnvel dálítill gortari. Hann er mjög sjálfsöruggur í umgengni við konur, — og á það til að líta niður á þær; tel- ur þær einfaldar . . . og á þó auðvelt með að ná valdi yfir þeim. Sálfræðingarnir segja: Konur eru veikar fyrir þess- ari manngerð, því að þær bera fyrir honum óttablandna virð- ingu. — Þeim er það ljóst, að hann er hálfgerður skálkur, en einmitt það kitlar kveneðli þeirra; en í aðra röndina dreymir þær um að gera hann að betri manni. Jafnvel þótt þær verði mjög ástfangnar af honum, sjá þær vel galla hans. Konur sem kynnast mönn- sem kvenfólk dóir um af þessari tegund, hugsa oft sem svo: — Það væri mátulegt að taka í hnakka- drambið á honum svo um muni, til þess að hann læri að bera virðingu fyrir konum! Kannski er það eintnitt ég, sem er fær um að dusta hann til. Svo er aðeins spurningin, hvort þeirra verður sterkara í tvíkeppninni, sem hefst með hjónbandinu- III. Manngerð númer þrjú er hundrað prósent karlmenn, — tíðum íþróttamenn. ann lítur á konur sem algerlega þarf- leysu í þjóðfélaginu, þær fara í taugarnar á honum og hann reynir að sneiða hjá þeim. Hann er vöðvamikill og vanrækir ekki að nota þá. Hann ekur bíl eða mótorhjóli; kann að skrúfa vélina í sund- ur stykki fyrir stykki og setja hana saman aftur. Hann er líklegur til að vera hnefa- leikamaður, kappaksturshetja, veiðimaður, kúluvarpari eða rörlagningamaður. Þegar aðrir karlmenn tala um stúlkur í nærveru hans, leiðist honum, og sé hann í kvennasamkvæmi er hann þögull, leiðinlegur og dálítið ruddalegur. Sálfræðingarnir segja um hann: — Það sem konurnar heill- ast af í fari þessarar mann- gerðar, er það hversu örðugt er að festa hendur á þeim. Af einhverjum duldum ástæðum halda þær eða finna, að til- veran með honum hljóti að vera örugg og eftirsóknarverð, ef þeim tækist að vekja eftir- tekt hans. Hann virðist traust- ur og öruggur, og því líklegur til að vera góður verndari konu sinnar. Trúlega gæti hjónaband með slíkum manni heppnazt vel, það er að segja, ef konunni tekst að yfirvinna stórlæti hans og húsbóndavald. En hún mun fá harðan keppi naut, þar sem um er að ræða öll frístundaáhugamál hans og áhugann í sambandi við starf hans, og mörg skilnaðarmál er hægt að skrifa á reikning af- brýðisemi eiginkonunnar, sem finnst hún bíði lægri hlut í samkeppninni við atvinnu hans og áhugamál, sem hann fórnar meiru en henni. IV. Loks erum við komin að fjórðu manngerðinni. Hann heillar allar konur, hvort heldur sem þær eru ungar eða farnar að reskjast. Ef til vill eru í eðli hans ýmsir þættir þeirra manngerða, sem áður hefir verið lýst, og þess vegna er erfiðara að skilgreina sérkenni hans. N. Y. ALÞJÓÐAFLUGSTÖÐIN — Miss Nancy Iverson kjörin „Drotning Víkinganna“ á alþjóða kvennaþingi síðastl. haust, leggur af stað frá New York alþjóðaflugstöðinni með íslenzka flugfélaginu til Noregs. — Hún verður í boði Osló ferða- mannafélagsins við skíðakeppnina nokkurn hluta af þriggja vikna dvöl hennar í Noregi. — Foreldrar hennar, Mr. og Mrs. Joseph Iverson eiga heima í Mt. Upton, New York. — Sverre Marcussen, forstjóri íslenzka flugfélagsins og Mrs. Bergljot Dycker, fulltrúi frá Norska-Ameríska kvenfélaginu, árna „Drotningu Víkinganna“ góðrar ferðar. Hann er eins og sumarfugl, er flögrar frá stað til staðar, og nýtur þess að vera dáður og tilbeðinn, en þreytist fljótt, og þráir eitthvað nýtt. Hann unir sér vel í nálægð kvenna, stráir gullhömrum á báða bóga, en er fljótur að gleyma gamalli viðkynningu. Það eru menn af þessari gerð, sem eru hinir mestu gallagripir í sambúð. Hann getur verið hávaxinn eða smá- vaxinn, grannur eða þéttvax- inn, fríður eða ófríður; karl- mönnum fellur hann sjaldan í geð. Sálfræðingarnir segja: Leyndardómurinn við vin- sældir hans meðal kvenna, er þau alúðlegheit, sem hann sýn- ir jafnan í umgengni; konur eru ánægðar með sjálfar sig í nærveru hans, því að hann hefur alltaf á reiðum höndum uppörvandi orð, og dáist að þeim. Menn af þessari tegund eru kjörnir til þess að koma fram sem sérlegir fulltrúar, og einnig eru þeir einkar heppi- legir sölumenn; þeir geta gengið frá dyrum til dyra — og alls staðar jafn elskulegir og mjúkir á manninn- En það er einn hængur á: ómótstæðilegir og elskulegir menn geta nefnilega verið — svo undarlega sem það hljóðar — hundleiðinlegir, þegar til lengdar lætur. Um stuttan tíma geta þeir auðvelcilega verið sigurvegarar gagnvart öllum konum, en þeim heppn- ast sjaldan að varðveita áhuga nokkurar konu ævilangt. —Sunnudagsblaðið imi!IB!iiBIIIBI!iailllB:iltaii»fl!llia!!IIB!!ini!in!!IIH!!IIHIIIIHilllB!IIH!!l!HI!lin!IIHtlllHin!HI!liailllB 1 I A L • • • ÍSLENZKA MILLILANDAFLUGFÉLAGIÐ j f | Lægstu fluggjöld i til : ÍSLANDS | Á einni nóttu til Reykjavíkur . . . ágœtur kvölóverður með jj koníaki, náttverður AM.T AN AUKAGREIÐSIAJ MEÐ IA E. jj Rúmgóðir o« þa-silegir farþegaklefar ineð miklu fótrýnii . . . H áliötnin, 6 Skamlinavar, setn þjálfaðir hafa verið í RaniXarikjun- nm, býður yður velkoininn um borð. Ekkert fluftfólas. sem heldur uppi föstuni fluttferðum yfir Norður-Atlantshafið, býður I læg-ri fargjöid. I Eftir sknmma viðdvöl á fslandi lialda flugvélarnar áfram til NOREGS, SVÍÞJÓÐAR, DANMERKUR, STÓRA-BRETI>ANDS, ÞÍZKAEANDS. 15 West 47th Street, New York 36 PL 7-8585 NEW YORK . CHICAGO . SAN FRANCISCO Imimiiimiiiimiiiimiiinuimniniiimiinmniimnnmnnmniniininmimiiiimniimiiiimiiiimiiiimiiiimiuniii

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.