Lögberg


Lögberg - 04.12.1958, Qupperneq 1

Lögberg - 04.12.1958, Qupperneq 1
J SeMon's GreetlnKs (Dauiddjm, SludÍDA. PHOTOGRAPHERS 1‘hone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG Season's Greettngs (DavidáorL SiudioA. PHOTOGRAPHERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPBG 71. ÁRGANGUR LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 4. DESEMBER 1958 NÚMER 48 Eflum Þjóðræknisfélagið Eins og kunnugt er, á Þjóð- ræknisfélag Islendinga í Vesturheimi fertugsafmæli snemma á næstkomandi ári, og verður þess vafalaust með einhverjum hætti minnst á þjóðræknisþinginu í febrúar. Með tilliti til þessara tíma- móta í sögu félagsins, hóf nú- verandi forseti máls á því í skýrslu sinni á þjóðræknis- þinginu í fyrra, að vel færi á því, að vinir og velunnarar félagsins minntust þessa merkisafmælis þess með fjár- framlögum í sérstakan af- mælissjóð félaginu til efling- ar, en það hefir mjög tak- markaðar tekjur, aðallega þann hluta af félagsgjöldun- um, sem gengur til þess, og þann arð, sem húseign þess á Home Street í Winnipeg gef- ur af sér árlega, að ógleymd- um nokkurum og sérstaklega þakkarverðum fjárgjöfum ý m i s s a félagsmanna og kvenna. Hins vegar hefir félagið all margþætta starfsemi með höndum. 1 fyrsta lagi kemur Hon. Nels Johnson látinn Nels Johnson dómari Rétt þegar blaðið var að fara í pressuna barzt því sú harmafregn að Nels Johnson dómari í hæztarétti Norður- Dakotaríkis hefði látizt að- faranótt miðvikudagsins. Þótt hann væri aðeins 62 ára að aldri átti hann merkan mennta- og starfsferil að baki, svo sem virðingarstaðan, er hann skipaði, gefur til kynna. Hann átti sæti ásamt Guð- mundi Grímson dómara og þremur öðrum dómurum í hæztarétti ríkisins. Nels John- son var elzti bróðir Mrs. V. J. Eylands; þessa mæta manns verður nánar minnst síðar hér í blaðini;. þar til greina óhjákvæmilegur kostnaður við rekstur þess, skrifstofuhald, bréfaskriftir og annað þess háttar, og ferða kostnaður í þágu þess, þó að vart þurfi að taka það fram, að embættismenn þess eru með öllu ólaunaðir, en vinna störf sín í hjáverkum frá skyldustörfum, eins og em- bættismenn allra deilda þess. Viðamesta starf félagsins er þó útgáfa Tímarits þess, sem orðin er mjög kostnaðarsöm, en þess er þá jafnframt að gæta, að þar er vafalaust um að ræða varanlegasta verk þess, án þess lítið sé gert úr öðrum merkum störfum þess. Tímaritið, sem komið hefir nú út samfleytt í 40 ár, er orðið mikið og merkilegt ritsafn, að áliti margra hinna dómbær- ustu manna á Islandi og víð- ar, eitthvert allra vandaðasta og merkasta tímarit, sem út hefir komði á íslenzku á síð- ari árum. Milli spjalda þess er eigi aðeins að finna sögu félagsins sjálfs, heldur einnig félagsmálasögu íslendinga í Vesturheimi að eigi litlu leyti, og þar ’iefir verið birt margt af því ágætasta og athyglis- verðasta, sem ritað hefir ver- ið á íslenzku vestan hafs. Þá stendur félagið að heim- boðum og heimsóknum merkra íslenzkra gesta heim- an um haf eða héðan úr álfu, fræðimanna og annarra and- legra leiðtoga og listafólks, sem vitanlega hefir kostnað í för með sér og útheimtir nokkura risnu af félagsins hálfu. Um hitt er óþarft að fjölyrða, hve mikil ánægja fólki voru er að slíkum heim- sóknum og hve mikill andleg- ur gróði þær eru félagslífi voru. Þá hefir félagið undanfarin ár veitt vestur-íslenzku viku- blöðunum nokkurn árlegan fjárstyrk, en alkunnugt er, og réttlega marg-endurtekið í ræðu og riti, hver líftaug þau blöð eru allri félagslegri starf- semi vor íslendinga hér í álfu. Má ennfremur geta þess, að félagið hefir lagt fram fé úr sjóði sínum til styrktar skóg- ræktinni á íslandi, jafnframt því og einstakir félagsmenn og konur hafa stutt það mál fjárhagslega. Ennfremur hef- ir félagið lagt fram fé til ým- issa annarra framkvæmda, þó að eigi verði það nánar rakið hér. En nóg hefir talið verið því til sönnunar, að félagið hefir með höndum harla víðtæka menningarstarfsemi í anda stefnuskrár sinnar; það hefir á hinn bóginn, eins og þegar er gefið í skyn, úr tiltölulega litlu að spila fjárhagslega, en með auknu fjárfmagni væri framtíð þess betur tryggð og það stæði að sama skapi betur að vígi um félagslega og menningarlega starfsemi Viljum vér undirritaðir því hvetja fólk til þess að minnast 40 ára afmælis félagsins með því að gerast styrktarfélagar þess, og skoðast öll slík fram- lög sem tillag í afmælissjóð þess. Slíkar fjárgjafir má senda til féhirðis félagsins, hr. Grettis L. Jóhannsson, ræðis- manns, 76 Middlegate, Arm- strong Point, Winnipeg 1, Manitoba. Með fyrirfram þökk og alúðarkveðju. Richard Beck, forseti Greliir L. Jóhannson, féhirðir. Áttræður Guðmundur Grimson dómari Hinn víðfrægi Vestur-ls- lendingur, Guðmundur Grimson, dómari, forseti hæztaréttar Norður-Dakota- ríkis, átti áttræðisafmæli 20. nóvember s.l. Tíu ára kjör- tímabil hans í hæstarétti renn- ur ekki út fyrr en í lok 1960, en í viðtali, sem blaðamenn áttu við hann á afmælisdegi hans, lét hann þess getið, að hann mundi láta af embætti 31. desember n.k., ekki vegna heilsubrests heldur fyrir ald- ursakir. Ekki kvaðst hann myndi sitja auðum höndum eftir það, enda mun hann enn njóta fullra starfskrafta. Grimson dómari ruddi sér ungur veg til mennta og á merkan starfsferil að baki bæði sem lögmaður og dóm- ari; mun hans verða ýtarlega getið í Lögbergi um áramótin, þegar hann lætur af embætti. Lögberg sendir honum hug- heilar árnaðaróskir í tilefni afmælisins. Ársfundur Fróns sem haldinn var í Fyrstu lútersku kirkju á mánudags- kveldið, 1. desember, var því miður fremur illa sóttur, enda kalt í veðri og mikil ófærð vegna snjóþyngsla. Að öðru leyti var fundurinn um margt eftirtektarverður og ánægju- legur. Skýrslur embættis- manna, er birtast munu í Tímariti Þjóðræknisfélagsins, báru vott um það, að deildin hefði verið ágætlega starfandi á árinu undir árvakri og styxkri stjórn forsetans, Jóns Johnson, sem því miður gaf ekki kost á sér í það embætti aftur, sökum vanheilsu; var honum maklega þakkað af þeim Dr. Valdimar J. Eylands og Heimi Thorgrímssyni fyrir hið frábæra starf er hann hefir innt af hendi í þágu deildar- innar í mörg undanfarin ár. Munu margir fagna því, að Jón mun samt sem áður halda áfram starfi sínu sem bóka- vörður Fróns. Þessir voru kosnir í stjórn- arnefnd Fróns, og má segja, að þar sé valinn maður í hverju sæti: Forseti, Heimir Thorgrímsson Vara-forseti, Steindór Jakobsson Ritari, Haraldur Bessason Vara-ritari, Valdimar Lárusson Gjaldkeri, Jochum Ásgeirsson • Vara-gjaldkeri, Thor Viking Fjármálaritari, Gunnar Baldwinson V ara-f j ármálar itari, Gestur Davíðsson. Endur skoðendur: Grettir L. Johannson Jóhann Th. Beck. Að fundarstörfum loknum flutti Dr. Valdimar J. Eylands erindið, sem birtist á ritstjórn- arsíðu blaðsins, snildarlega samið, eins og hans var von og vísa. Að lokum veitti Jón John- son öllum fundarmönnum kaffi og góðgerðir. Gyðríður Anderson F. 5. apríl 1873 — D. 15. nóvember 1958 Þeir voru allir sigldir á sæinn er sál þín unni hér mest. Þú grátbændir guði alls lífsins að gera nú enda á þinn frest. Þeir heyrðu þær bænir, og bjuggu með blómum þitt lífsins far, og landfestar hljóðlega hjuggu, það var Herra þíns dómur — og svar. Og alsæl þú sigldir á sæinn, og sorg þín var horfin um leið. í sóllitum síðasta geislans þú sást hvar þinn ástvinur beið. Og himininn hlýlega breiddi sín húmtjöld á foldu og sjá. Þig, drottins hönd lýsandi leiddi til landsins, er enginn vor sá. Við biðjum, að allt sem þú unnir og ástvini finnirðu þar, að alsæl um eilífð þú lifir hjá ástvinum, handan við mar. —Páll S. Pálsson

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.