Lögberg - 18.12.1958, Side 4

Lögberg - 18.12.1958, Side 4
:*<te>ctc<ctc!c«ctc<c<«tctci«s LÖGBERCí, FIMMTUDAGINN 18. DESEMBER 1958 Lögberg Geflð tit hvern fimtudag af THE COLUMBIA PRESS LIMITED 303 KENNEDT STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA Utanáskrift rltstjórans: EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manttoba Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON Ver8 $5.00 um árið — Borgist fyrirfram “Lögberg" is published by Columbia Press Limited, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada Printed by Columbia Prtnters Authorized as Second Class Mall, Post Oífice Department, Ottawa WHitehall 3-9031 Áhrifin nakvæmlega þau sömu Frá barnæsku minnist ég jólanna og kenndi þá sömu áhrifanna og nú í dag. Það var eitthvað dularfult um helgi jólanna eins og það er nú. Það var friðurinn, þessi heilagi friður, sem auðkenndi aðgang jóla frá öllum öðrum dögum maður varð gagntekinn af þessum friði og þessari heilögu ró; sem brendi sig inn í vitund alls og allra. Þegar jólin voru að koma, var eitthvað óvænt á ferð öðruvísi en aðra daga. Jó kristinna manna voru líka öðruvísi en aðrir dagar; í þeim fólst dulmáttur, sem æðri var öllum skilningi, frelsandi mátt ur, sem náði á vald sitt öllu og öllum. Það má vel vera, að hugsanir af þessari tegund séu taldar gamaldags og úreltar, en hvað er það þá, sem ekki verður gamaldags og úrelt. Ég hlakkaði til jólanna, sem barn, eins og önnur börn vafalaust gerðu; og þegar þau komu færðu þau mér fögnuð og frið. Ég hlakka til jólanna enn, og enn í dag færa þau mér ómælis fögnuð og frið; og því ætti ég þá að láta mér til hugar koma, að alhelgi jólanna sé eitthvað úrelt fyrirbrigði. Sálmurinn ógleymanlegi, Heims um ból hefir sömu áhrif á mig nú og hann hafði í fyrstu æsku minni á hvaða máli hann er sunginn skiptir engu til. Þegar maður er búinn að hlusta á sama tungumálið áratugum saman, verður maður ekki lengur var við mismuninn. í mínum huga lætur nú Holy Night alveg eins í eyra mér eins og Heims um ból lét á heiðarbýlinu í Jökuldalsheiðinni. Ekkert, sem er háleitt og fagurt verður nokkru sinni úrelt það fylgir sólaruppkomunni og sólarganginum í allri hans óumræðilegu fegurð. Það minkar enginn við það að verða barn; menn stækka við það, að sameinast sínum eigin uppruna og bergja af lind æskunnar og Ijóssins. Jól kristinna manna eru annað og meira en bláber hugar- burður; þau fela í sér fangvíða heimspeki, sem blessað hefir göngu mannanna frá kyni til kyns. Og sé Jesús frá Nazaret ekki frelsari mannkynsins, hver er það þá? Við fögnum jólum vegna þess að okkur er ljóst, að mannkynið þarf á boðskap jólanna að halda; það þarf þess allra hluta vegna; það þarf á innri frið að halda og það finnur hann í boðskap Meistarans frá Nazaret. Menn geta óskað eftir innri friði og fálmað út í loftið eftir honum; en slíkan frið finna menn ekki nema því aðeins, að þeir opni hjörtu sín fyrir kærleikanum og boðskap hans, — kærleikanum, sem var og er mestur í heimi. Að fagna komu jólanna er sama og að fagna andlegu erfða- frelsi mannanna; jólin eru hátíð frelsisins, lifandi vitnis- burður þess, sem er fegurst og æðst í lífssögu mannanna GLEÐILEG JÓL! —E. P. J tctdctctctetctctctctctctetctctetctctctcíctctctctctctctctctctcictctctetcictcictctctctctctcti HÁTIÐARKVEÐJUR . . . Við höfum jafnan haft mikla ánægju af að fá jólaspjöld, frá frœndum og vinum, og líka að senda samskonar kveðjur, en í þetta skipti vegna óvenju mikils annríkis vanst okkur ekki tími til þess, og biðjum því Lögberg að flytja öllum vinum okkar, fjær og nær innilegar jóla- og nýársóskir. Ingibjörg og Einar P. Jónsson SEASON’S GREETINGS TO OUR FRIENDS AND CUSTOMERS. f HECLA TRANSFER Serving Hecla and Gull Harbor fWinnipeg Terminal: Manitoba Truck Depot 308 Fountain Street * Phone: Winnipeg WHitehall 3-7859 — Hecla 302 R 14 BETELCAMPAICN $250,000.00 26,985 || 17,415 223,015 219,166 Make your donations to the "Betel" Campaign Fund, 123 Princess Street, Winnipeg 2. ADDITIONS to Betel Building Fund Thomas E. & Ingibjörg Johnson Keewatin, Ontario, $100.00 í minningu um 68 ára gift- ingarafmæli okkar 31. okt. 1958. ----0---- Thorgeirson Company Printers, 532 Agnes Street, Winnipeg 10, Man. $27.50 HÖFÐINGLEGAR GJAFIR í Lögbergi 4. desember var kvittað fyrir $350.00 fyrir hús- gögn í eina íbúð á Betel, en gefandi ónafngreindur. Þessi góða gjöf var frá Miss Sigur- björgu Stefánsson kennara á Gimli í minningu um ástkæra móðursystur, Sigríði Bjerring (Mrs. S. O. Bjerring). ----0---- Mr. og Mrs. Grímur E. Johnson, 1115 Rock Street, Victoria, B.C. $1000.00 Þessi mætu hjón hafa gefið þessa fjárupphæð fyrir hús- búnað í tvær íbúðir á Betel í minningu um foreldra sína: Grímur E. Johnson í minningu um Einar og Ólöfu Gríms- dóttur Johnson, er námu land í Minneotabyggð, Minnesota árið 1877, og kona hans, Mar- grét Ingibjörg Stephenson Johnson í minningu um for- eldra sína, Joseph og Messiana Jósíasardóttur Stephenson, er námu land í Markerville, Alberta 1889. Meðtekið með þökkum. Grettir Eggertson ;tctc>cteic!etetctctcteteteietetctc!ctctctctctetctetctctctct«tctctctctetctctctctcictctetcictetc« SEASON’S GREETINGS ... | Superior Roofing and Fiooring RESIDENTIAL AND COMMERCIAL CONTRACTORS Phone Winnipeg WHiíehall 3-7346 91 Marion Sí. St. Boniface, Man. «St9tM»3tSi»St»tatMtSt»iat»3t9l3l)«at>l9tI«M»iSi>t)«3lS4at>i3tat>iSt>tltItSt>t>llt9iSl>i« itetctetctctctctctet«tctetctctctctctct«tetc«etctc!et«tctctctctctcietctctctctctctctct«tctctct«tc« SEASON’S GREETINGS . . . May Happiness and Prosperity Be Yours in the Coming Year! THE MARLBOROUCH AND ST. CHARLES HOTELS «>t>t>i>t>i>tsiat>i>íst>t>t>tat>tat>t>t>t>i>ista«>i>t>i>iat>ts«at>i3ta«>i>i>t>i>t>tat>t>i3i>i>iíl HUGHEILAR JÓLA- OG NÝÁRSKVEÐJUR Megi hátíðir þær, sem nú fara í hönd veita birtu og yl inn á hvert einasta íslenzkt heimili austan hafs og vestan og veita börnum jarðar farsæld og frið. KEYSTONE FISHERIES LTD. G. F. JÓNASSON, eigandi og forstjóri Sími WHiteholl 2-5227 60 Louise Sfreet Winnipeg, Man.

x

Lögberg

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.