Lögberg - 22.01.1959, Blaðsíða 1

Lögberg - 22.01.1959, Blaðsíða 1
Oavid/um, SiuudwA. PHOTOGRAPHERS Phone GRover 6-4133 106 Osborne Street WINNIPEG OavbdAML. SiuudÍDA. PHOTOGRAPHERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG 71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR 1959 NÚMER 4 Bréf fró Elfros, Sask. Kæra Ingibjörg: 16. janúar, 1959 Þá er nú komið að því að einhver árangur sjáist af verkum mínum, þó varla verði á þau litið, og mælt sem forðum, að alt sé harla gott. Mér verður frekar lítið úr verki hvern daginn við inn- köllun, því kaupendur taka mér svo vel að oftast fylgir því löng heimsókn og kaffi- drykkja, sem endar þó ætíð með því að mér er borgað til að fara, þar er nú aðalpunkt- urinn fyrir Lögberg. Ég get fullvissað þig um, að Lögberg er vinsælt hjá þeim kaupend- um, sem ég hef kynni af, og allir rétta „fimmuna“ með glöðu geði. Nokkrir bíða með óþreyju eftir grein Páls B. Sjálfur gef ég ekki mikið fyrir þessa eineygðu pólitík. Mér finnst það vera þrjár hliðar á henni — Páls hlið, þín hlið og rétta hliðin. Það er býsna hæpið að maður geti verið bjartsýnn í heimsmálunum eins og þau eru nú. Góðir og samvizkusamir stjórnmála- menn eru afar sjaldgæf und- ur. Þeir sem hafa þá dreng- lund að vilja ekki vamm sitt vita, koma þar hvergi nærri. Ekki veit ég hvort það mundi bæta að verulegu leyti kjör al- þýðunnar, þó að öreigaskipu- lagið kæmist á. Það mundu ef til vill færri svelta. En þar sem allt er sniðið eftir ákveð- inni línu verður enginn frjáls að sínu. Alþýðan bara virt og metin eins og sauða- og nauta- hjörðin. “Take your choice.” Kommar staglast alltaf á her- væðingu Bandaríkjanna, en þó eru Rússar þar langt á und- an í útbúnaði morðtóla. — Geimfara-farganið er ekki annað en kapphlaup um yfir- burði í orku, og þó það sé enn á bernsku-stigi, bendir það allt í eyðileggingaráttina. — Bretar og Bandaríkjamenn hafa ekki fram að þessu viður kennt stjórendur í Kína sem réttarfarslega stjórn. En þeg- ar uppreisnarflokkur í Cuba, undir stjórn Castro’s, náði völdum, var hann á auga- bragði viðurkenndur sem lög- legur stjórnandi landsins bæði af Bretum og Bandaríkjunum. Samt kemur það upp úr kaf- inu að þetta er blóðþyrstur morðflokkur, sem myrðir sigraða landa sína einungis vegna þess, að því sem séð verður, að þeir eru andstæð- ingar í pólitík og hræðsla við það að þeir síðar meir vaxi þeim yfir höfuð. Framhald á bls. 2 Hörmulegt slys Þann 4. janúar vildi sá hörmulegi atburður til á Vaðlaheiði, austan Akureyrar, að lítil fjögra sæta flugvél fórst og með henni fjórir ungir menn. Þeir sem fórust í þessu sviplega slysi voru: Jóhann Helgason, 31 árs að aldri, sjúkraflugmaður frá Akureyri; hann var sonur hjónanna Kristínar Jóhanns- dóttur og Helga Tryggvason- ar, forstjóra á Akureyri; Guðmundur Kristófersson frá Hrísey, sonur hjónanna Jennýar Jörundsdóttur og Kristófers vélstjóra í Hrísey, Guðmundur heitinn var sex-' tán ára að aldri; Stefán Hólm frá Hrísey, hann var sonur hjónanna Ingibjargar Stefáns dóttur og Péturs Hólm verk- stjóra í Hrísey, hann var 15 ára að aldri og nemandi í Laugaskóla; Pétur Hólm frá Hrísey, tvítugur að aldri, al- bróðir Stefáns heitins, en þeir bræður voru einkabörn for- eldra sinna. Pétur heitinn hafði nýlega lokið stúdents- prófi við Menntaskólann á Akureyri og var við nám í Kennaraskóla íslands. Flugvélin mun hafa lent í hríðarbyl með þeim afleiðing- um að hún rakst á hæð eina, sem liggur á milli Grjótárgils og Bíldsárskarðs í austurbrún Vaðlaheiðar. Talið er að allir þeir, sem í vélinni voru hafi látizt samstundis og árekstur- inn varð. Flugvélin átti eftir aðeins fjögurra mínútna flug til Akureyrar. Fró Oftawa Sambandsþingið var sett á fimmtudaginn með venjulegri viðhöfn. Á föstudaginn tók Hazen Argue formaður C.C.F. stjórnina til bæna fyrir að svipta póstmeistara einn í Ontario póstafgreiðslu vegna þess að hann skrifaði ádeilu- grein um Diefenbaker í eitt dagblaðið. — Á mánudaginn skýrði Lester B. Pearson for- maður Liberala stjórninni frá að nú væri hveitibrauðsdög- um hennar lokið; hún hefði nú verið við völd í meir en 18 mánuði og þýddi því ekki lengur að afsaka ráðslag stjórnarinnar með því að á- saka Liberala um vanrækslu- syndir; sagði hann að stjórn- inni hefði algerlega mistekist að sporna gegn atvinnuleys- inu og verðbólgunni og lýsti vantrausti á henni. Jón Johnson lótinn Á laugardaginn varð bráð- kvaddur hér í borg Jón Johnson, sem í mörg ár var forseti Þjóðræknisdeildarinn- ar Frón og bókavörður henn- ar. Með honum er til grafar genginn einn af mætustu meðlimum Þjóðræknisfélags- ins. Mun ritari félagsins, Haraldur prófessor Bessason rita minningarorð um hann í næsta blað Lögbergs. |Hon. Thor Thors og frú Ágústa í Ottawa í fyrri viku átti Grettir L. Johannson ræðismaður sím- tal við Ambassador Thor Thors, var hann þá staddur í Ottawa ásamt konu sinni frú Ágústu, og sátu þau setningu sambandsþingsins á fimmtu- daginn var, en hann er ekki einungis Ambassador íslands til Bandaríkjanna heldur og sendiherra Islands til Canada, Argentínu, Brazil og Cuba, og e. t. v. fleiri þjóða í Vestur- heimi, auk þess sem hann hefir verið fulltrúi Islands á þingum Sameinuðu þjóðanna síðan 1946 og verið þar for- maður í mörgum mikilvægum nefndum, og hefir hann ekki sí^t reynzt skorinorður mál- svari þjóðar sinnar á þeim vettvangi, svo sem hin snjalla ræða hans í síðasta Lögbergi gefur til kynna. Hitti hann að máli þar eystra ræðismenn íslands, J. Ragnar Johnson, Q.C., í Toronto og J. G. Gauvrean í Montreal. A VISION Dusk was drifting into night whilst I Stood on the threshold of the falling shade Sunk in a chrysalis of sombre thought; When suddenly, like vapour swiftly rising, Or speeding cloud, the darkness rolled away Revealing a fair vision of enchantment, Before me rose tall buildings, domed and towered, Whose walls were carved with legend, and inlaid With agate, onyx, bloodstone, rich red gold And many-coloured jade, shining like naught That I had ever seen. And then I heard a voice proclaiming . . . Those Are the ideals man for man has wrought. While yet I stood entranced, I heard the roar Of winnowed flame, leaping as it sought New realms above; beneath its mighty power I then beheld a myriad buildings fall To crash and lie like hummocks on the ground. And, as a sheet of blinding dust arose Therefrom, these words I caught Clear-borne .... This is the dire destruction (Nurtured from the time of Tree and Cave) Man upon man has brought. Night rang her curfew bell, and, as the vision Slowly faded like a dying cadence Of music painted with an opal’s fire, I saw that yet proud buildings reared their heads Above the shrouding gloom, despite of aught That grimly menaced their security. Then, with the aura of their loveliness Lingering within my mind, I paused To reap the vintage of my reverie, And muse upon the though That God in man will perish not, but be, With utmost power, upheld, By the great keystone of eternity. —Helen M. Lloyd, Calgary, Alta. —ALBERTA POETRY YEAR BOOK, 1958 Gestur fró Edmonf-on Jakob Henrickson frá Ed- monton var staddur í Winni- peg í fyrri viku; var hann ný- kominn úr heimsókn til systur sinnar á Gimli, Vigdísar, Mrs. Sigfús Bergman. Mr. Hen- rickson er vinmargur og frændmargur hér í borg; móð- ir hans, Ásdís, var systir Arinbjörns heitins Bardal og þeirra systkyna. Mr. Henrikson var í þjón- ustu Canadiska flughersins um langt skeið, en er nú starfsmaður hjá Canadian In- dustries Ltd. í Edmonton; kvað hann þá borg hafa vaxið ört á árunum frá því 1945 og eru þar nú um 250 þúsund íbúar; eru það olíulindirnar þar, sem hafa orsakað þessa hröðu þróun borgarinnar. Olían er aflgjafi allskonar iðn- aðarfyrirtækja, sem þar eru stofnuð. Allmargir íslendingar hafa flutt til Edmonton víðsvegar frá; hafa þeir myndað með sér félagsskap, Icelandic Society. Aðalsamkoma ís- lendinga þar er haldin 17. júní og kemur þar fram „Fjallkona" eins og á öðrum íslendingadögum hér vestra. Var dóttir Mr. Henrickson, Irene, Fjallkona árið 1957, en síðastliðið ár dóttir Sigfúsar Arnfinnson; sú fjölskylda er upphaflega frá Lundar, og er Mr. Arnfinnson í þjónustu Albertastjórnar. — Um 160 manns hafa sótt samkomur Islendinga. Fjöldi annara Skandinava eru búsettir í Edmonton og eru Norðmenn fjölmennastir. Hafa þeir nýlega stofnað mán- aðarblað í sameiningu — Scandinavian Centre News, er flytur fréttir af Skandinöf- um þar í borg; fréttaritari ís- lendinga er H. M. Sumarliða- son. Þá hafa þeir í hyggju að stofna Scandinavian Centre, og eru hlutabréf seld í þeim tilgangi. Hin árlega allsherjar sam- koma Skandinava í Edmon- ton verður haldin 24. janúar í Jubilee Auditorium og hefir J. Henrickson umsjón með sölu aðgöngumiða fyrir Is- lendinga þar. — Meiri fréttir síðar af þessari nýju nýlendu V estur-í slendinga.

x

Lögberg

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.