Lögberg - 22.01.1959, Page 2

Lögberg - 22.01.1959, Page 2
2 LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR 1959 SOFFANÍAS THORKELSSON: Gaman er að ferðast FRAMHALD Áður fyr voru margir ára- bátar á Dalvík, þá var ekki um annað að ræða en árar og segl til að komast um sjóinn, en Svarfdælingar voru ekki miklir siglingamenn, og knúðu því för sín áfram með árum af miklum dugnaði og kappi. Mætti ég minnast þess, þegar ég var unglingur við róðra á Dalvík, hvað það var harðsótt og þreytandi; þá dugði engum að kvarta, gerði einhver það, þá tapaði hann skiprúminu. Nú hafa árarnar verið lagðar niður, þær kunna þó að vera til á Dalvík, en ég sá enga, þó að ég svipaðist um. Nú hafa þeir fjölda marga mótorbáta, en flestir þeirra eru smáir og koma ekki að fullu gagni, því að fiskurinn gengur ekki inn í fjörðinn eins og hann gerði áður. Þeir eiga einnig nokkra stóra báta, sextíu tonn og þar yfir; á þeim fiska þeir vel, enda sækja þeir út á reginhaf, sem minni bátum er ekki fært; hafa þeir mikinn áhuga fyrir að fjölga stærri bátunum, en þeir kosta of fjár með öllum útbúnaði og veiðarfærum. — Einnig hafa þeir keypt togara, búast þeir við að fá hann í vor. Er það augnamið þeirra að auka útgerðina svo, að heimafólk geti haft atvinnu og þurfi ekki að fara til Suð- urlands til að leita hennar eins og það hefur orðið að gera á liðnum vetrum. Svarfaðardalur er ein bezta og grösugasta sveit á Norður- landi, en fremur þéttbýl. í framtíðinni munu tún þpirra ná saman á flestum bæjum, og allt land ræktað, sem vel er til jarðyrkju fallið; hafa bændur unnið kappsamlega að því á síðari árum. Það er ekki fljótunnið verk; fyrst verður að þurrka landið með skurðum og holræsum, síðan að láta það bíða árum saman, áður en það er plægt og unnið til ræktunar; hefur þeim orð- ið meira ágengt, en nokkurn mann gat dreymt fyrir, að komist gæti í verk á svo fáum árum. Þannig er það, nærri því alls staðar um sveitir landsins, blasa við augum ferðamannsins rennislétt tún, mikið stærri en áður og einnig miklu grösugri, og það á þessu kalda sumri. En mikill galli er það, að hið góða, fína og kraftmikla töðugras er að hverfa, en í þess stað er kom- ið annað grófara og stórvaxn- ara, er mér virtist nokkuð trénað, og virðist það vera miklu ódrýgra til fóðurs, — sögðu bændur að sauðfé slæddi því miklu meira en gömlu töðunni; einnig töldu þeir tún kala miklu meira nú en áður með þessum nýju grastegundum, sem fluttar hafa verið til landsins. Ég sá aðeins einn torfbæ í Svarfaðardal, allir hinir eru horfnir, sem ég þekkti svo vel; fannst mér ég sakna þeirra. Nú hafa þeir verið byggðir úr öðru efni — stáli og stein- steypu — flest eru þetta reisu- leg hús og falleg heimili. — Peningshús hafa einnig verið byggð úr steinsteypu víðast hvar og færð saman til mikils hægðarauka og vinnusparn- aðar við hirðingu búpenings. Flestir hafa hlöður fyrir hey sitt úr sama efni, sem rúma í mörgum tilfellum allt heyið. En þó að mikið hafi verið byggt er þó mikið óbyggt enn fyrir bústofninn, en það kem- ur með tímanum, bæði í Svarfaðardal og öðrum sveit- um landsins. Það getur ekki valdið tví- mælum, að íslenzka bænda- stéttin hefur afrekað miklu, og unnið nótt með degi, oft og einatt, enda virtust mér bændur þreytulegir. Flestir þeirra eru einyrkjar, nema þeir, sem hafa unglinga til að hjálpa sér. I mörgum tilfell- um geta þeir ekki aukið bú- stofninn að miklum mun, þó heyin kynnu að leyfa það. Stærð bústofnsins verður að takmarkast við það, sem einn maður getur komist yfir að hirða að vetrinum, sem er í mesta lagi 10 kýr og 100 fjár, og það undir beztu skilyrðum. Nú er það markmið margra bænda að rækta til sumar- beitar fyrir kýr sínar; nokkrir hafa þegar gert það og segja að það borgi sig vel að hafa kýrnar sumarbærar og minnki það fóðurbætiskaup að mikl- um mun; hans sé ekki þörf, eða veruleg bót að honum, ef beitt sé á ræktað land með nýgræðingi. Nú kvað það vera kappsmál bænda að hirða sem bezt skepnur sínar, hafa þeir loks- ins komist að þeirri niður- stöðu, að það borgi sig betur að hafa þær færri og hirða þær betur. Áður kepptust menn við að hafa þær sem flestar, og oft var það að menn beittu þeim, sem kallað var, á guð og gaddinn, og þótti gott ef þær skröltu af á hor- leggjunum. Þegar allar kringumstæður eru teknar til greina, finnst mér það mesta furða, hvað búskapnum hefur fleygt fram hin síðari ár. Að vísu eru margir bændur í skuldum, og þeim nokkuð miklum, vegna umbótanna á búum sínum, vélakaupa o. s. frv. En arður- inn af búskapnum hefir verið það mikill að þeir hafa staðið í skilum með vexti og niður- borganir af skuldunum. Bændur hafa' notið mikilla hlunninda frá ríkinu — miklu meiri en aðrar stéttir lands- ins. Því fé hefur vissulega verið varið vel, því án þess hefðu þeir ekki getað afrekað eins miklu og raun ber vitni, og mundu þeir seint hafa kom ist úr gamla kútnum án að- stoðar ríkisins. Mikið hefur verið flutt inn af vélum, en þó hafa þeir þörf fyrir enn fleiri, þar sem heita má, að allt sé unnið með þeim, hey- skapur, ræktun og aðdrættir. Hestsaflið er ekki notað leng- ur að neinum mun. Þeir eru allt of seinvirkir og kraftlitlir, blessaðir íslenzku hestarnir, fyrir bændur nú. — Þá fjóra mánuði, sem við vorum heima í sumar sáum við hvergi hest við vinnu, stöku sinnum undir hnakk, en víða í högum. Mér blandast ekki hugur um það, að Island er vel fallið til grasræktar og sprettur sæmilega vel, jafnvel þótt slæmt árferði sé, ef nógur er áburður. Fékkst góð reynsla fyrir þessu í sumar, því að það mun hafa verið eitt hið kaldasta, sem komið hefur síðan 1882, og vorið var líka framúrskarandi þurrt og kalt. Mikill snjór var í fjöllum langt fram á sumar, enda byrj- aði heyskapur á Norðurlandi ekki fyrr en í júlí, þremur til fjórum vikum síðar en vana- lega. Það var mikið kal í tún- um; útlendu grastegundirnar þola illa frost. Allur búskapur bænda er nú gerbreyttur frá því sem áður var; orfið, hrífan og handkvörnin horfin, strokk- urinn og klyfberinn, já, og margt og margt fleira komið á forngripasöfnin. Hesturinn er ekki lengur þarfasti þjónn- inn, því að í hans stað er traktorinn kominn, hann er miklu afkastameiri, en í mörg- um tilfellum er sá traktor, sem þeir hafa of lítill, og þeir þarfnast annars stærri; bezt væri þó að þeir hefðu tvo, ef efnin leyfðu það. Heyskapur nú má heita leik- ur einn miðað við það sem hann áður var, hjá þeim sem hafa nægilegan vélakost, þeg- ar tíð er hagstæð og heyin fljóttekin. í mörgum tilfell- um er þetta eini tími ársins, sem einyrkar fá dálitla hvíld, á milli slátta, á meðan háin er að spretta. — Margir bænd- ur hafa bíla, en í flestum til- fellum eru það jeppar, gamlir skrjóðar; en efni hafa víst ekki leyft annað betra, því góðir bílar eru dýrir á íslandi, og skattar á þeim gífurlegir, margfalt hærri en innkaups- verð þeirra; einnig er erfitt að fá innflutningsleyfi fyrir bíla. Þetta þyrfti að lagast, og ég vona að það lagist sem fyrst, að bændur fái notið þeirra þæginda, sem bílar geta veitt, eins og aðrir borg- arar ríkisins, enda hafa þeir meiri þörf fyrir bíla en nokkr- ir aðrir, og ég vil segja að þeir verðskuldi það öðrum fremur fyrir dugnað sinn og þrautseigju við það að koma búskapnum á það stig, sem hann er nú kominn, þó enn vanti mikið til á mörgum sviðum, að hann sé orðinn eins hagkvæmur og hann get- ur orðið, en það stendur allt til bóta, og það kemur með reynslunni. Til dæmis það, að hlöðurnar sem þeir hafa ver- ið að byggja, niðurgrafnar djúpt í jörð, úr steinsteypu, með geysi-kostnaði, eru ekki hentugar eða hagkvæmar — allt of dýrar, og hey geymist illa í þeim, mikil hætta er á ofhitnun í heyinu, og mikill raki. Annað er það, að girðing- ar þeirra eru óhagkvæmar og endingarlausar; — tréstaurar endast ekki nema fáein ár í íslenzkum jarðvegi og lofts- lagi — steyptir staurar ættu að koma og munu koma í þeirra stað, þeir eru að sönnu dálítið dýrari, en endast líka næstum því í það óendanlega. Árlegt viðhald á girðingum eins og nú er, útheimtir geysi mikið í vinnu og efni. Og eitt er það enn, sem mér sýndist að mundi geta staðið mjög til bóta hjá íslenzkum bændum, en það er meðferð þeirra á vélum, mér fannst hún satt að segja óafsakanleg, að vísu með miklum undantekning- um, en þó býsna almenn. — Vélar hafa mikið vinnuþol og endingu með góðri meðferð, lítið ef illa er með þær farið; margir bændur hafa ekki átt- að sig á þessu; hjá þrifnaðar- mönnum og á myndarheimil- um stóðu vélarnar úti um hvippinn og hvappinn, höfðu verið skildar eftir, þar sem verið var að vinna og voru svo óvarðar fyrir sól og regni frá vori til hausts, ef til vill allan veturinn í sumum til- fellum, en um það veit ég ekki; jafnvel traktorinn, aðal- vinnuafl bænda, var látinn sæta sömu meðferð — honum ekið í hlaðið og við hann skil- ið þar, án þess að breitt væri yfir hann svo mikið sem poki til að verja hann náttfalli. Ég leitaði af mér allan grun að ástæðu fyrir þessu. Ég gat ekki fundið neina, hreint enga afsökun, nema þá, sem ég vil ekki nefna. Islendingar hafa varið miklu fé síðari árin til margs konar tilrauna, bæði við ræktun landsins og til að bæta bústofninn, sauðfé, kýr og hesta. Hefur það borið tölu verðan árangur, að því er mér var sagt, en mestur mun þó munurinn liggja í því hvað bústofninn gefur meira af sér nú en áður, að betur er við skepnurnar gert; kynbætur bera jafnan mikinn árangur, en þær taka langan tíma. — Margar góðar leiðbeiningar hafa bændur einnig fengið í sambandi við ræktun lands- ins. Einn allra erfiðasti þáttur- inn í íslenzka búskapnum er nýtingin á heyinu; margir hafa komið upp súrheyshlöð- um, og mörgum þeirra heppn- ast þær vel. Geri ég ráð fyrir, að það verði þrautaráðið í framtíðinni, en ég sá fáar súr- heyshlöður við Eyjafjörð. — Margir hafa komið upp súg- þurrkun í hlöðum sínum — (blæstri í heyið) — það hefir reynzt með afbrigðum vel, en til þess að þetta komi að not- um verður heyið að vera hálf þurrt, og annað er það, að þetta er mjög dýrt, blástur- vélin er dýr og orkan sem hún þarf er mikil, og víða er ekki hægt að fá næga orku þannig að vélin nái fullum snúnings- hraða, en án nægilegrar orku kemur súgþurrkunarvélin ekki að fullum notum. Svarfdælingar gerðu það ekki endasleppt. Daginn áður en við fórum var okkur hald- ið kveðjusamsæti í fundarsal kaupfélagshússins á Dalvík. Mun sveitarstjórn Dalvíkur- hrepps hafa gengizt fyrir því, og við þetta tækifæri sæmdu þeir mig og okkur stórgjöfum, sem kostuðu þá mikið fé. — Reyndi ég að benda þeim á að þetta væru öfgar, ég væri ekki þessarar miklu sæmdar verður, væri einn af þessum ógnar algengu mönnum, en því var ekki sinnt, og ég gat ekki neitað höfðingskap þeirra og góðvild, — því að hver er sá, sem má við því að hrinda þeim frá sér, sem sýna manni trygga vináttu og kærleika? Meðvitundin um vináttu þeirra verður mér traust veganesti. —Framhald Bréf fró Elfros, Sask. Framhald af bls. 1 Hefir ekki slagorð Bretans um “Fair Play” verið meira glamuryrði en staðreynd? Það hefir sjaldan verið talið drengilegt að taka brauðið frá börnunum. Hvað er veiði- þjófnaðurinn við ísland undir herskipavernd? — Gentleman Sir! Stop. Jæja, Ingibjörg, nóg af þessu. Eins og þú sérð er ég ekki alveg klár við innköllun- ina. En eitthvað mun ég reyna, ef tækifæri gefst. Það hefir sótt á mig meiri heim(a)speki með aldrinum, svo ég veigra mér við, nema þegar gott er veður, að aka til næstu bæja. En ég sendi þér hér með það sem innheimzt hefir. Veit ekki nema freist- ingin geti komið mér til að breyta því í vín, ef það liggur hjá mér til lengdar. Það er enn frekar snjólétt hér um slóðir, og frosthörkur hafa ekki verið miklar, en talsverður golugjóstur flesta daga, svo að maður getur sagt eins og karlinn: „Það er ekki beint gott, bara svona nokkuð gott.“ Ég bið þig innilega að fyrir- gefa hvað þetta er orðið langt. Það varð alveg óviljandi. — Beztu kveðjur og nýársóskir til ykkar hjónanna. Þinn einl., Rósm. Árnason Það er líkt með karlmenn- ina og koníakið, þeir vondu verða alltaf óþverrar, en hinir góðu batna með aldrinum. ----0---- Hvað á að gera til þess að fá fallegar hendur? Svar: — Ekkert.

x

Lögberg

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.