Lögberg - 22.01.1959, Page 4
4
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 22. JANÚAR 1959
Lögberg
Gefið Qt hvern fimtudag af
THE COLUMBIA PRESS LIMITED
303 KENNEDY STREET, WINNIPEG 2, MANITOBA
Utanáskrift ritstjórans:
EDITOR LÖGBERG, 303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba
Ritstjóri: EINAR P. JÓNSSON
Skrifstofustjóri: INGIBJÖRG JÓNSSON
Verð $5.00 um árið — Borgist fyrirfram
"Lögberg” is published by Columbía Press Limited,
303 Kennedy Street, Winnipeg 2, Manitoba, Canada
Printed by Columbia Prtnters
Authorised as Second Class Mail, Post Office Department. Ottawa
WHitehaU S-9931
Páfaskipfin
Ég hefi áður rakið stuttlega æviatriði Píusar páfa 12. hér
í ritinu (1956). Hann verður jafnan talinn með merkari og
áhrifameiri páfunum. Fjölgáfaður, gagnmenntaður, víðsýnn
og laginn stjórnandi, einlægur trúmaður, vammlaus. Líkleg-
ast, að hann verði tekinn í helgra manna tölu sakir sýna
sinna, enginn dregur heldur í efa, að hann vildi beita áhrifum
sínum, sem voru geysimikil, til eflingar sannrar kristni í
heiminum, og kappkostaði þess vegna m. a. að stuðla að friði
og vaxandi þekkingu. Hélt hann oft ræður um þessi efni,
einkum á stríðsárunum. Og vegna útvarpsins heyrðu fleiri
til hans um víða veröld en nokkurs páfa annars, þeirra er
áður voru.
Hér birtist ein af stytztu ræðum Píusar 12., haldin í
Vísinda-akademíu Páfastólsins 3. desember 1939:
„Vér erum ekki skaparar: hvorki sköpum vér heiminn né
sannleikann. Hvorttveggja er grundvallaratriði, sem hugur
vor verður að taka til greina. Náttúran er á milli Guðs og
vor, og sannleikurinn verður ekki greindur frá náttúrunni.
Guð, náttúran og sannleikurinn, þetta eru meistarar vorir.
Vér erum auðmjúkir þjónar, pílagrímar, sem stefna til Guðs
á leiðum náttúrunnar og sannleikans, framkvæmendur fagn-
aðarríks ævintýris. Hlutverk yðar er að kunna skil á og auka
við þekkingarfjársjóðu mannkynsins. Slíkt er kærleiksverk,
en ekki sundrungar, skylt starfsemi kirkjunnar, sem reynzt
hefir móðir vísinda og framfara á liðnum öldum.
Tvær eru lærdómsbækur mannsins: Alheimurinn, þar
sem maðurinn leitar fræðslu um þá hluti, sem Guð hefir
skapað. Og Biblían, þar sem hann kynnir sér æðsta vilja og
sannleika Guðs. Önnur er fyrir skynsemina, hin fyrir trúna.
Þær rekast ekkert á. Trúin er ekki einræðisleg; hún er frjáls
athöfn; hún virðir skynsemina, þótt hún leiði hana mildri
hendi. Og eins og trúin er vinur skynseminnar, er Kirkjan
vinur vísindanna. Hún virðir frelsið, aðferðir þess og megin-
reglur, og grípur aðeins fram fyrir hendur þess til að forða
því frá misgripum gegn trúnni.“
So virðist sem þeir, er þekktu Píus 12. bezt, gefi honum
þessi eftirmæli: Hann lifði sem mikilmenni og dó eins og
helgur maður.
Enn komst ítali á páfastól, en hvorki Armeníumaðurinn
Agagianian né Spellmann hinn ameríski. Ber hann páfa-
nafnið Jóhannes 23. Var kosinn í 11. atrennu 28. október og
krýndur með mikilli viðhöfn 4. nóvember. Flestir páfar hafa
borið þetta nafn, en þó enginn hinna frægustu né atkvæða-
mestu. Þeir hétu Leo, Innocentíus, Benedikt, Píus, Georg eða
Bonifatius.
Hinn nýi páfi er kominn mjög á elliár, fæddur í Sottoil
Monte í Bergamo-biskupsdæmi 25. nóv. 1881. Skírnarnafn
hans er Angelo Giuseppi Roncalli. Fátækra manna að ætterni.
Prestvígður 1904, biskup 1925. Oft sendifulltrúi páfa, einkum
á Balkansskaga. Einnig hjá Menningar- og fræðslustofnun
Sameinuðu þjóðanna í París. Skipaður patríarki í Feneyjum
1953 og kardínáli síðar á sama ári. Eftirfarandi orð hans á
fulltrúafundi í París 1952 lýsa honum nokkuð:
„Yfir sigurvímu vísindanna skín og gnæfir friðarboð-
skapur Krists, sem geymir grundvallaratriði menningarinn-
ar . . . . Nýjustu uppgötvanir og aðlöðunarhæfni þeirra eru
mikilvægar og vekja aðdáun. En það eitt nægir ekki mönnum
til farsældar. Ekki til tímanlegra heilla, og því síður til
andlegra . . .
Vafalaust er Jóhannes 23. vel lærður, laginn samninga-
maður, stjórnvitur og lífsreyndur. En það mun vera al-
menningsálit, að honum svipi meir til Píusar 10. en Leós 13.
Sé postullegur í anda og mikill mannúðarmaður, fremur en
stjórnskörungur og trúkennari. Því hefir hann ef til vill
valið sér nafn postula kærleikans.
Engum kristnum manni er óviðkomandi, hvers konar
yfirmaður stýrir móðurkirkjunni, sem enn í dag er lang-
fjölmennust og áhrifamest. Hún mótar því dýpstu drætt-
ina í svip kristninnar, eins og hann snýr við umheiminum.
GULLBRÚÐKAUP
Mr. and Mrs. Jón H. Josephson
Sunnudaginn 14. desember
síðastliðinn áttu hjónin Jón
H. Josephson og frú Anna
fimmtíu ára giftingarafmæli.
Að ósk fósturbarna þeirra og
ættingja voru þau þann dag
boðin á heimili tengdasonar
síns og fósturdóttur, Mr. og
Mrs. Clifford Stevens. Þar
gafst vinum þeirra tækifæri
til að drekka með þeim kaffi-
sopa, óska þeim allrar bless-
unar og þakka þeim mikla
starfsemi þeirra bæði í bæjar-
og kirkjumálum. Heimboðið
stóð yfir frá kl. 2 til kl. 5 e.h.,
og frá kl. 8 til kl. 10 að kveld-
inu. Um 150 manns tóku þátt
í heimboðinu. Stærsti vina-
hópurinn var þar milli kl. 3 og
4. Flutti þá Mr. B. Egilson
bæjarstjóri, fagurt ávarp til
heiðursgestanna og afhenti
þeim peningagjöf frá vinum
og ættfólki, hann las einnig
heillaóskasímskeyti frá vara-
forsætisráðherra Canada, —
Howard Green, — Dufferin
Roblin forsætisráðherra Man-
itoba, og bréf frá Mr. Eric
Stefanson, sambandsþing-
manni, og konu hans Sigrúnu.
Mr. N. K. Stevens las hug-
næmt bréf frá konu sinni, sem
sökum veikinda var ekki við-
stödd. Um leið og hann bað
gullbrúðhjónunum allra heilla
afhenti hann Mr. Josephson
peningaávísun frá B. C. Pack-
ers með þökk fyrir langa og
trúverðuga vinnu fyrir félag-
ið. — Heillaóskasímskeyti
bárust frá eftirtöldum vinum:
Mr. og Mrs. Thomas Clark,
Olds, Alta.; Mr. og Mrs. Eric
Orton, Brandon, Man.; Miss
Elizabeth Fahey, Wawanesa,
Man.; Mr. og Mrs. Steindór
Guðmunds, California.
Hon. Dr. George Johnson,
heilbrigðismálaráðherra Man-
itoba fylkis, kom til að heiðra
gullbrúðhjónin; einnig komu
frá Winnipeg Mr. Steindór
Jakobsson, Mrs. Guðrún Blön-
dal, Mrs. Anna Jónasson og
Mr. Harvey Hedley.
Frá Árborg komu: Mr. og
Mrs. S. Oddleifsson og Mrs.
H. S. Erlendsson, tengdasyst-
ir Mrs. Josephson, John
Howardson, fóstursonur
þeirra, sem kom frá Port
Arthur, Ont., ásamt tengda-
bróður sínum Arvid Jorgen-
son, flutti þakkarávarp til
þeirra vina og ættingja sem
heiðruðu fósturforeldra hans
á þessum merku tímamótum í
lífi þeirra, einnig afhenti
hann þeim gullklukku að gjöf
frá fósturbörnum þeirra.
Þar sem þeirra elskulega
fósturdóttir, María Jorgenson,
var kölluð burt s.l. sumar, var
hugur hjónanna þrunginn
saknaðartilfinningu. — Þessi
elskulega kona var búin, á-
samt bróður sínum og fóstur-
systur, að ráðgera að minnast
þessa dags og gera hann að
sólskinsríkum fagnaðardegi;
en þetta gerði stundina ennþá
hátíðlegri; við fundum hversu
mikið sálarþrek og traust
þessir vinir okkar hafa. Með
bros á vör og hlýjum vinar-
hug tóku þau á móti öllum
gestunum, þótt að glöggt auga
gæti oft séð angurværa
þreytusvipinn, sem sorgin
skilur eftir. Mrs. Josephson
var fædd á Islandi, kom til
Kanada þriggja ára gömul
með foreldrum sínum, Erlendi
og Ólínu Erlendsson, er
bjuggu lengi á Hálandi í
Geysisbyggð. Hún kom til
Gimli 1908. í fjórtán ár var
hún forseti Lúterska safnað-
arins á Gimli; stjórnaði sunnu
dagsskólanum í mörg ár; —
starfar alltaf mikið í kven-
félagi safnaðarins, sem hún
hefir tilheyrt í 49 ár.
Mr. Josephson er fæddur á
Melstað, tvær mílur fyrir
sunnan Gimli; foreldrar hans
voru Jósef Sigurdson og kona
hans Arnbjörg Jónsdóttir.
Jósef og Arnbjörg fluttu til
Nýja Islands 1876 frá bæ í
Eyjafirði, sem heitir Stekkjar-
flatir, skammt frá Möðruvöll-
um Guðmundar hins ríka. Mr.
Josephson var lögreglustjóri
á Gimli í nokkur ár, og í bæj-
arráði Gimlibæjar fáein ár.
Lengst hefir hann starfað hjá
B. C. Packers.
Josephson’s hjónin þakka
innilega gjafir og allan sóma,
sem þeim var sýndur á gull-
brúðkaupsafmæli þeirra þann
14. des. 1958.
Þess vegna er gott til þess að hugsa, að vart munu nú aðrir
en úrvalsmenn setjast á páfastól, og væntum vér því heim-
inum góðs af starfi Jóhannesar 23. og óskum honum
blessunar. G. Á.
—KIRKJURITIÐ
DONATIONS
to the Belel Building Fund
Collected by Mr. Oscar Jo-
sephson and Hjalti S. Svein-
son of Cypress River, Man.
From Cypress River, Man.
Helgason Family $30.00
Mrs. Conrad Nordman 25.00
Mr. Oscar Josephson 25.00
Mr. & Mrs.
H. S. Johnson 25.00
Steini Johnson 25.00
John Nordal 25.00
Otto Sveinson 15.00
H. S. Sveinson 15.00
G. M. Sveinson 10.00
Mrs. S. Nordman 10.00
Mr. & Mrs.
Emil Johnson ....... 10.00
Brian Arason ....... 10.00
Elmer Arason ....... 10.00
Bjorn Sigurdson .... 10.00
B. K. Johnson 10.00
Björn Hallgrimson 10.00
L. T. Hallgrimson 10.00
Johnson Brothers 15.00
Mr. & Mrs.
Stanley Arason ..... 5.00
Snorri H. Anderson 5.00
G. F. Nordman ...... 5.00
Carl Nordman 5.00
John Nordman ....... 5.00
W. P. Johnson ...... 5.00
Mrs. Jim Gardiner 5.00
Mr. Siggi Sigurdson . 5.00
Mr. & Mrs.
Fred Walterson ..... 2.00
S. G. Sigurdson .... 2.00
Mr. L. Guðbrandson
Baldur, Manitoba 10.00
Fögur minningargjöf
Arni Guðni Eggertson, Q.C.,
$400.00.
Mr. Eggertson hefir gefið
fullkomin húsgagna útbúnað í
eina íbúð á Betel í minningu
um foreldra sína Arna Eggert
son og Oddnýju Jónínu
Eggertson. Hafa þau hjónin,
Mr. og Mrs. A. G. Eggertson
áður gefið húsgögn í eina íbúð
heimilisins, ennfremur lagt
ríflega í byggingarsjóðinn. —
Er þessi höfðinglega gjöf með-
tekin með þökkum.
BETELCAMPAIGN
$250,000.00
"Betel" Campaign Fund,
123 Princess Street,
Winnipeg 2.