Lögberg


Lögberg - 23.07.1959, Qupperneq 1

Lögberg - 23.07.1959, Qupperneq 1
(Daviot&DrL StudwA, PHOTOGRAPHERS Phone GRover 5-4133 106 Osborne Street WINNIPEG Oauid&DtL SiudioA, PHOTOGRAPHERS Phone GRover 6-4133 106 Osborne Street WINNIPEG 71. ÁRGANGUR WINNIPEG, FIMMTUDAGINN 23. JÚLI 1959 NÚMER 30 75ta íslenzka Lúterska Kirkjuþingið Það sem einkenndi framar öðru hið 75. kirkjuþing ís- lenzka Kirkjufélagsins var góð þátttaka þingfulltrúa í fundar- og nefndastörfum og svo hin prýðilegu erindi og ræður, sem flutt voru á kvöld- samkomunum, meðan þingið stóð. Þingið hófst á þriðjudags- kvöldið 23. júní með guðs- þjónustu og altarisgöngu þingfulltrúa; altarisþjónustu önnuðust séra Valdimar J. Eylands, sem gegndi forseta- störfum fyrstu fundi þings- ins, meðan forseti var á ís- landi, og séra Edward Day, prestur í Selkirk. Séra Ólafur Skúlason prédikaði. Hin ýtar- lega forsetaskýrsla, sem lesin var af vara-forseta, sýndi ljós- lega hið mikla starf, sem séra Eric H. Sigmar hefur innt af höndum. Hafði hann t. d. himsótt næstum hvern ein- asta söfnuð og á margan ann- an hátt örvað og eflt kirkju- starfið innan Kirkjufélags- ins. Gjaldkeraskýrsla Oscar Vígsluafmælis minnst Séra Krisíinn K. Ólafsson Á ritstjórnarsíðu er frásögn eftir séra Kristinn K. Ólafsson um hátíðahöld lútersku safn- aðanna í Argyle. Á sunnudag- inn 28. júní lýsti séra Eric H. Sigmar því yfir við messu í Grundarkirkju, að daginn áður hefði séra Kristinn átt 55 ára vígsluafmæli. Hann var vígður af séra Jóni Bjarna- syni á kirkjuþinginu að Moun- tain, Norður Dakota 27. júní 1904. Hann var um langt skeið forseti lúterska kirkjufélags- ins íslenzka, en þjónar nú tveimur enskum söfnuðum í Rock City, Illinois. Hann er merkur gáfumaður, ritfær svo af ber og er um þessar mundir að ljúka við að þýða Æfi Jesú eftir Dr. Ásmund Guð- mundsson, á enska tungu. Bjorklunds bar þess einnig greinilega merki, að fram- farahugur er í mönnum og skilningurinn vex ætíð á því, að ein tjáning kristinnar lífs- skoðunar er stuðningur við þau mál, sem kirkjan berst fyrir, bæði heima og að heiman. Má einnig segja það um allar skýrslur þingsins, að þær báru þess vott, að vor- hugur er í flestum söfnuðun- um og leiðandi menn hvar- vetna. Fulltrúi Sameinuðu Lút- ersku Kirkjunnar í Ameríku (ULCA), Hr. Chester A. Myron frá New York, en ætt- aður frá Minnesota flutti á- vörp og tvær langar ræður, þar sem hann útskýrði starf kirkjunnar og minnist á leið- toga þá, sem við erum svo lánsöm að hafa við stjórnvöl- inn. Hann ræddi m. a. um hina fyrirhuguðu sameiningu ýmissa kirkjudeilda og út- skýrði val það, sem íslenzka Kirkjufélagið mun hafa í því sambandi. Hvort við viljum halda áfram að vera sjálfstæð heild innan hinnar nýju kirkju með líku sniði og nú er, eða hvort við viljum held- ur leysa upp Kirkjufélagið í núverandi mynd þess og sam- einast þeim Kirkjufélögum, sem eru á því landsvæði, þar Á fimmtudaginn 16. júlí flutti George Johnson, heil- brigðis- og velferðarmálaráð- herra Manitoba-stjórnarinnar, frumvarp til lága um auknar styrkveitingar, þar sem þeirra er þörf. Tilgangur þessar vel- ferðarmálafrumvarps er: „að enginn íbúi Manitoba-fylkis skuli skorta þá hluti og þá þjónustu, sem sé nauðsynleg fyrir heilbrigði hans og vel- líðan, svo sem fæðu, klæði og húsnæði, nauðsynlegar lækn- is-aðgerðir og sæmilega útför að ævilokum. Áætlaður kostnaður fyrir þetta fjárhagsár mun nema $2000,000. Þessu fé verður út- hlutað samkvæmt þörfum hvers einstaklings og verður látið ganga til þessara: — Fólks, sem ekki getur séð sér farborða sökum elli, eða lík- amlegra eða andlegra veik- inda; mæðra, ef fjölskyldu- faðirinn hefir horfið frá heim- ilinu eða verið hnepptur í fangelsi lengur en eitt ár; ógiftra mæðra, sem eiga fleiri en eitt barn; vanhirtra barna. sem söfnuðir Kirkjufélagsins eru. Benti hann á, að ef síðari kosturinn verður valinn, muni samt vera hægt fyrir íslenzka söfnuði að hafa árleg þing, þar sem aðallega verði rætt um varðveizlu íslenzkra menn ingaráhrifa og sambandið við íslenzku móðurkirkjuna. Var hinni nýju stjórn Kirkjufé- lagsins falið að ræða þetta mál ýtarlega við söfnuðina, en ákvörðun verður ekki tekin fyrr en á næsta Kirkjuþingi, en hin nýja sameinaða kirkja mun ekki hefja tilveru sína fyrr en árið 1961. Mr. Myron fór lofsamlegum orðum um íslenzka Kirkjufélagið og leið- toga þess, og kvað sér verið hafa mikil ánægja að því að sitja þing þess. Einn af höfuðþáttum þessa þings var guðfræðilegur fyrir- lestur, sem séra Valdimar J. Eylands flutti og hann nefndi: „Gyðinglegar og kristnar kenningar um lífið eftir dauð- ann.“ Var þvílíkur rómur gerður að erindi hans, að það var ákveðið að sérprenta það, svo að allir gætu lesið og notið. Ágætar ræður fluttu einnig Systir Laufey Olson og séra Norman Nelson, sem beindu orðum sínum til æskufólks og hvöttu það til að gefa Guði þjónustu sína í kirkjunni. Á kvöldsamkomunum var einn- Þetta er góð og þörf löggjöf og var tímabær fyrir löngu. Manitoba var orðið á eftir hin- um fylkjunum í almennum velferðarmálum; hafði lítið verið gert á því sviði til bóta síðan á öðrum tug aldarinnar, en þá var það íslendingurinn, Hon. Thomas H. Johnson, sem beitti sér fyrir ýmiskonar mannúðar-löggjöf svo sem Workmen’s Compensation, — ekknastyrknum o. fl. Og þá varð Manitoba fyrirmynd hinna fylkjanna á þessu sviði. Hann barðist líka fyrir at- kvæðisrétti kvenna og varð Manitoba fyrsta fylkið er veitti konum þessi sjálfsögðu réttindi. Það er ánægjulegt til þess að vita, að nú hefir annar ís- lenzkur ráðherra fetað að nokkru leyti í fótspor Thom- asar. Dr George Johnson þótti tala ágætlega og af mikilli mælsku fyrir máli sínu og luku margir þingmenn og bæði dagblöð borgarinnar lofs orði á hann fyrir hæfileika hans, störf og frammistöðu. ig mikið um söng, sem hreif gesti mjög. Ánægjuleg tilbreyting frá þingstörfum var framhalds- saga séra Erics Sigmra, hvar hann sagði fréttir úr heim- sókn sinni til íslands til að vera viðstaddur biskupsvígslu. Sagði hann frá ævintýri þessu í þremur köflum, hálfan klukkutíma í hvert skipti, meðan setið var undir borð- um. Var eins og honum tæk- ist með mælsku sinni að flytja alla gesti yfir íslands, og verða sjálfir þátttakendur í þessum merka viðburði. Flutti hánn einnig kveðjur frá biskupun- um báðum; svo og forseta Is- lands, Dr. Fry, forseta Lút- rska heimssambandsins og fleiri kirkjulegum leiðtogum, sem voru við biskupvígslu Hr. Sigurbjarnar Einarssonar. — Flutti hann einnig þær á- nægjulegu fréttir, að senni- lega yrðu bæði Hr. Sigurbjörn biskup og Dr. Fry gestir næsta Kirkjuþings, sem haldið verð- ur í hinni nýju kirkju St. Stephen’s safnaðar, St. James, Manitoba, í júní, 1960. Tveir nýir prestar voru teknir inn í Kirkjufélagið á þessu þingi, báðir frá íslandi og báðir Akureyringar. Voru það þeir séra Jón Bjarman, prestur á Lundar, og séra Ing- þór Indriðason, sem er prestur á Langruth, en hann er fyrsti presturinn, sem nýi biskupinn vígir. Kom hann 24. júní, Framhald á bls. 3 Lýkur prófi í hjúkrunarfræði Miss Unnur Kristjánsson Þessi glæsilega unga stúlka stundaði um skeið nám við Manitoba háskólann, lagði síðan fyrir sig hjúkrunarfræði og útskrifaðist með ágætis- einkunn frá Winnipeg General Hospital í maí 1959. Hún er yngst barna þeirra frú Hólm- fríðar og Friðriks heitins Kristjánssonar. Tekur prestsvígslu Séra Daníel John Simundson Sunnudagskvöldið þ. 24. maí 1959 var Daníel John Simundson vígður til prests af Dr. L. H. Steinhoff, forseta Pacific Synod of the United Lutheran Church in America. Vígsluathöfnin fór fram í St. James Lútersku kirkjunni í Seattle, Wash., þar sem Daníel ólst upp og faðir hans, séra Kolbeinn Simundsson, þjón- aði um þrjátíu ára skeið, þar til hann fyrir aldurs sakir, lagði niður fasta prestsþjón- ustu fyrir réttu ári síðan. Eins og skýrt var frá á sín- um tíma hér í blaðinu veitti Stanford University Daníel fjögra ára námsstyrk 1951, er hann lauk námi við einn af miðskólum S e a 111 e-borgar með hæstu einkunn. Hann út- skrifaðist af Stanford Uni- versity 1955 með ágætis- einkunn (great distinction). — Hóf hann þá nám við lúterska prestaskólann í Maywood, Illinois, og lauk þar prófi með hæstu einkunn 8. maí s.l. Hann hefir nú tekið köllun til prests þjónustu hjá Salem Lutheran Church í Mendon, 111. Jafnhliða námi við presta- skólann starfaði Daníel í eitt námsár sem stúdent-prestur við eina af lútersku kirkjun- um í Chicago, 111., og í nokkra mánuði við geðveikrahæli í Elgin, 111., sem einn af prest- um stofnunarinnar, og einnig eitt ár í þjónustu Lutheran Social Service Agency of Western Pennsylvania í Pitts- burgh. Stórt spor stigið í velferðarmólum Manitoba-fylkis

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.