Lögberg


Lögberg - 23.07.1959, Qupperneq 3

Lögberg - 23.07.1959, Qupperneq 3
LÖGBERG, FIMMTUDAGINN 23. JÚLÍ 1959 3 Á leið í verið 1857 SIGURÐUR J. ÁRNESS: Gísli Jónsson hét einn af þeim, sem lentu í mannskaða- veðrinu mikla á Mosfellsheiði veturinn 1857. Hann var þá fertugur að aldri, og vinnu- maður á Snorrastöðum í Laugardal hjá Eyjólfi Þor- leifssyni. Gísli var fæddur á Þórarins- stöðum 1817. Jón faðir hans dó á bezta aldri 1823. Var Gísli þá tekinn í fóstur að Hamarsholti. Fóstra hans var Margrét Jónsdóttir bónda og bryta á Hömrum, Jónssonar bónda á Hæli í Flókadal, Ein- arssonar. Margrét var kona Guðmundar kirkjusöngvara og bónda í Hamarsholti, Ein- arssonar lögréttumanns í Núpstúni í Hrunamanna- hreppi, Ólafssonar. Það varð skömmu eftir að Gísli kom að Hamarsholti, að hann týndist og vantaði í fimm daga. Var þá allri leit hætt. Eftir húslestur á sunnu- degi sást Gísli sitja á hlóðar- steini í eldhúsinu, og hafði á höfði sér fagurrauða húfu. Hann var ýtarlega spurður um burtveru sína. Margrét komst helzt að þeirri niður- stöðu, að huldufólk hefði ginnt hann til sín, og þess sáust líka merki, þar sem var rauða húfan. En ekki skyldi hann hafa hana degi lengur — og mun Margrét hafa vistað hana örugglega. Seinna þótti ekki allt einleikið með Gísla, og var það sett í samband við hvarf hans .--------- Áður en lagt var af stað í verið 1857, sagði Gísli það fyr- ir, að hann mundi ekki kom- ast á sjó þá vertíð. Hann bað að gera sér öll föt vel víð, en það var venja þá að öll föt væri nærskorin. Þetta var lát- ið eftir honum, en ekki var laust við að fólk hendi gaman að þessu, bæði konur og karlar. En Gísli hafði hugboð um hvað við lá, og lét sig hæðni fólksins engu skipta. Svo var lagt á stað úr Laug- ardalnum og voru þar 14 ver- menn saman, margir úr Biskupstungum. Ýmsa hafði dreymt heldur þunglega fyrir ferðinni, en flestir sinntu því ekki, og þótti ekki mark á því takandi. Þessir 14 menn héldu svo hópinn yfir í Þing- vallasveit og gistu 11 á prest- setrinu Þingvöllum, en þrír fóru til gistingar í Vatnskot, og var Gísli Jónsson einn af þeim. Undir birtu um morguninn dreymir Gísla að Margrét fóstra sín sé þar komin. Hann mundi hvar hann var og skildi ekkert í þessu, að hún skyldi vera á ferð úti í Þingvalla- sveit. Honum fannst hún vera mjög áhyggjufull. Hann spyr: „Hvernig stend- ur á ferð þinni hér núna?“ Hún svarar: „Ég er einmitt komin til að finna þig undir hervæðinguna.“ „Hvað meinarðu, fóstra góð?“ segir hann. Þá mælti hún fram þessa stöku: Lífið manns er lukká og þraut, liggur að grafar velli. Síðla mátt ei byrja braut, því blinda er á heiðarsvelli. Gísli var flugnæmur og nam vísuna þegar. Hann fór þá að íhuga hvað hún mundi þýða, og sá að fóstra var að ráðleggja sér að leggja snemma á stað, því að dimma mundi með kveldinu áður en byggð yrði náð. Gísli reis þá á fætur, vakti félaga sína og bað þá klæðast. Þeir skildu ekkert í þessu óðagoti í Gísla og voru undir- tektir daufar. Þó klæddu þeir sig og gengu svo allir þrír heim að Þingvöllum. Þá voru þar flestir í fasta svefni, og enginn sjáanlegur ferðahugur í neinum. Gísli fékk ákúrur hjá sumum félögum sínum og sögðu þeir að þessi árvekni hans mundi vafalaust vita á ill tíðindi. Heldur gékk mönnum sein- lega að komast á stað, alltaf var eitthvað sem tafði fyrir. Veður var sæmilegt, en þó nokkur snjór, og draup vatn af þiljum er þeir lögðu á stað frá Þingvöllum. Þegar leið á daginn tók að dimma í lofti með snjókomu, og svo rauk hann upp á norð- an og herti frostið þegar nótt- in kom. Ekki sást út úr aug- unum fyrir dimmviðri, og klaki hlóðst á andlit manna, svo að þeim lá við köfnun. Þröngu fötin reyndust illa, þau gerðu menn ógangfæra og sprungu utan af þeim. Sex menn létu lífið þarna á heið- inni, en aðra sex kól til skaða, misstu fingur og tær. Tvo kól ekki, og annar þeirra var Gísli. Víðu fötin, sem draum- kona hans hafði bent honum á að láta gera sér, björguðu honum þá. —Lesb. Mbl. 75ia íslenzka Lúierska Kirkjuþingið Framhald af bls. 1 annan dag þingsins, en hafði verið v,gður 22. júní í Dóm- kirkjunni í Reykjavík. Var hratt flogið þá! Síðasti þáttur þessa þings fór fram á Elliheimilinu Betel á Gimli. Afhenti þar séra Jón Bjarman málverk, sem gefið er af íslenzku þjóðkirkjunni og íslenzka ríkinu fyrir for- göngu Hr. Ásmundar Guð- mundssonar, biskups. Er það málað af listamanninum Jó- hannesi Kjarval. Aðrar góðar gjafir, sem afhentar voru á þessum lokafundi, var mynd af frú Láru Bjarnason, gefin af Kvenfélagi Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg, og málverk eftir Emile Walters, gefið af honum sjálfum. Veittu þeir Barney Egilsson, bæjarstjóri á Gimli og séra Eric H. Sig- mar gjöfunum móttöku og þökkuðu gefendum og minnt- ust í því sambandi á velvilja þann, sem Betel hefur ætíð notið og skilning fólks á því, hvað gleður vistmenn þar. Hélt svo hver til síns heima, þreyttir líkamlega, en endur- nærðir andlega eftir gott þing og skemmtilegar samvistir. Ó. Sk. GUÐRÚN FRÁ LUNDI: ÞAR SEM BRIMALDAN BROTNAR Gamli formaðurinn tuggði saman tóbakstöluna og blótsyrðin: „Þetta þykir henni betra, bölvuðum asnanum, heldur en að vera hérna hjá okkur, sem áreiðanlega höfum nóg not fyrir hana“, sagði hann. „Já, það er áreiðanlegt, að Þórey hefði nóg handa henni að gera og þú líka“, sgaði Maríanna. „Ég er hissa á Grími að taka hana inn á heimilið. Ég kenni sannarlega í brjósti um hann“. „Kenna í brjósti um hann“, hnusaði í gamla bóndanum. „Það væri nær að kenna í brjósti um þá, sem flytja kvenmansdulur heim til sín, sem ekkert geta nema þvegið sér og greitt. Nei, hann þarf ekki að iðra þess að taka Pálínu til sín, enda veitir honum ekki af að fá einhverja hjálp við búskapinn, þar sem bústofninn er nú orðinn næst- um helmingi minni en hann var, þegar hann tók við. Hún lætur hann varla hanga alltaf á öðrum bæjum“. Svo ruddist allur karlmannaskarinn út úr bað- stofunni. Það líktist helzt því, er mörg hross ryðj- ast samhliða áfram. Maríanna vissi, að hún átti það, sem tengda- faðir hennar sletti frá sér. Það var ekki í fyrsta skiptið, sem hann hafði látið það skiljast, að hún væri ónýtjungur, sem ekkert hugsaði um annað en að halda sér til og annan slíkan hégóma. Hún reyndi að láta sem hún heyrði það ekki. „Hvað segir þú um þetta, Þórey mín. Finnst þér ekki óviðkunnanlegt, að Pálína skuli ætla að setj- ast að svona nærri okkur?“ sagði hún við tengda- móður sína, þegar þær voru orðnar tvær einar. „Ég gæti svona hugsað mér, að hún verði okkur ekki til neinna happa. Ég er alltaf hálfhrædd við þá manneskju". „Það er víst alveg óþarfi að kvíða því“, sagði Þórey. „Hún verður varla tíður gestur á þínu heimili. Mér þykir vænt um að hafa hana svona nærri mér. Hún tekur af mér handarvik, ef mér liggur á“, bætti hún við. En undir niðri var hún samt svolítið kvíðandi. „Þú hefur nú þessa ágætu konu, hana Guðríði. Það er nú kannske dálítill munur eða ég, sem hef Helgu eina og hún er óttalegur bjáni með nál“, sagði Maríanna. „Þú ert þá kannske heldur fjölvirkari en ég“, sagði Þórey. Það gaf á sjóinn í heila viku og aflaðist mikið. Siggi á Hvanná kom á hverjum degi og sótti haus- ana og það af fiskinum, sem ekki var lagt inn. Grímur tók aðeins einn hlut en formaðurinn marga. Hallur hafði ungan pilt og tók því tvo hluti. Þar að auki hafði Maríanna spotta og Tómas litli sonur hennar annan. „Það var alsiða á Suður- landi“, sagði hún. — Gamla formanninum var ekki vel við slíkt, en lét það þó óumtalað. Það reyndi að ganga á honum með öllu móti, þetta tengda- fólk hans, en þar sem hann átti að erfa þetta að miklu leyti, var bezt að lofa því að hafa þessa öngla. Máltækið sagði líka, að það drægi enginn annars fisk úr sjónum, og það var langt frá því, að þessir spottar þerira væru fengsælir. Gunnar var líka út í þetta eins og flest annað, sem til- heyrði hinu búinu. Þetta haust setti hann upp spotta handa móður sinni. Hún mátti víst alveg eins hafa svolítil hlunnindi eins og hin húsmóðir- in á heimilinu. Það mátti heita, að það væri fiskur á hverjum öngli á þeim stokk. Hallur var oft þungbrýnn, þegar verið var að draga hann, en þá lá vel á Gunnari bróður hans. Hann sagði oft, að auðséð væri, að það væri engin ólánsmann- eskja, sem þessir önglar tilheyrðu. Þegar svona mikið barst á land, höfðu þeir, sem tóku marga hluti, ekki við aðgera að öllum aflanum. Jóhann gamli bað Sigga fyrir boð til Pálínu, að hann vonaðist eftir því, að hún léti ekki fiskinn skemm- ast á bakkanum, fyrst hún væri á annað borð komin í nágrennið. Næsta morgun, þegar kon- urnar í Látravík litu ofan á bakkann, var Pálína komin þar með Sigga með sér og tók skarplega til höndunum. Þórey hljóp við fót ofan eftir til að heilsa henni og bjóða hana velkomna í sveitina. Hún vildi, að Pálína kæmi heim og fengi sér kaffi. En hún hafði með sér brúsa, sagði hún. „Ég held að þú sért farin að álíta okkur dauðans nirfla. Þú lætur Grím hafa með sér kaffi og sendir honum mat. Hann hefur alltaf haft mat og kaffi hjá Halli“, sagði Þórey. „Það er sjálfsagt alveg eins gott fyrir hann að éta og drekka hjá sjálfum sér eins og að vera hjá öðrum, og þurfa síðan að þræla heila viku um sláttinn til að borga fáeina grautardiska“, sagði Pálína. „Svo læturðu hana Stínu koma út og hjálpa okkur, svo að þetta verði búið, þegar þeir koma að“. Nokkru seinna komu þær Stína og Guðríður. Þær höfðu alltaf verið við fiskinn undanfarna daga. Stína fagnaði Pálínu eins og systur. Þær voru líka búnar að vinna lengi saman. Eftir morgunmatinn kom svo Þórey húsfreyja ofan eftir til að flýta fyrir. Það hafði hún sjaldan gert. En nú var eins og allir fylltust vinnuáhuga við að sjá til Pálínu. „Ég hlýt þó að geta spyrt upp, þó að ekki sé meira“, sagði Þórey. „Ég get ekki verið inni í þessu indæla veðri“. Helga var ein við aðgerðina á hinu búinu. Hún var dugleg, en átti þó talsvert eftir, þegar búið var að spyrða hvern fisk og rífa upp alla stærstu hausana í hlutum hinna. Þá fór hún að tala utan af því, að þær hjálpuðu sér. „Mér þætti nú ekki mikið, þó að Maríanna leti- klessa kæmi út og hjálpaði þér“, sagði Stína og hló bjánalega. Hún lét svo, þegar hún kom hingað fyrst, að hún væri því ekki óvön. Hún hefur nú samt aldrei snert á því, svo að ég viti“. Engin önnur anzaði Helgu. Svo gekk allur skar- inn til bæjar og þar hresstu þær sig á kaffi. Pálína sagðist vona, að fóstra sín kæmi vestur eftir og drykki hjá sér kaffi bráðlega. Það væri orðið nokkuð langt síðan þær höfðu rabbað saman. Svo reið hún af stað. Maríanna forðaðist að láta hana sjá sig. Það hýrnaði yfir gamla bóndanum, þegar hann sá, að búið var að spyrða upp allan fiskinn og láta hausana á margar rár.

x

Lögberg

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lögberg
https://timarit.is/publication/132

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.