Alþýðublaðið - 27.08.1960, Blaðsíða 9
Marilyn Monroe voru
veitt heiðursverðlaunin
fyrir leik sinn í kvikmynd-
inni, Sumir vilja hafa það
heitt. Marilyn var ennfrem
ur kjörin glæsilegasta kona
kvöldsins og til viðbótar
voru henni vei’tt verðlaun
fyrir beztu setningu kvölds
ins. Og hin gullvæga setn-
ing var þessi:
— Eg hefi lokið fyrsta
bindi ævisögu minnar.
Það á að heita: Þegar ég
var hvítvoðungur.
LA SCALA í Milano er
frægasta ópera í heimi og
gestir hennar hafa sannar-
lega vit á óperulist. Þar
þekkist ekki- nema hið
bezta, sem heimurfnn hefur
upp á að bjóða í óperuf'-utn-
ingi- —Undanfarnar vik-
ur hafa áhorfendur þar
klappað hinni bandarísku
Carmen lof í lófa, en hún
hefur hrifið alla með mez-
zo-sópran rödd sinni og
þéttum líkamsvexti. Hún
hefur sveiflað svartsokka
klæddum fótum sínum og
mjöðmum þannig, að ekki
er að furða, þótt Don Jo-
sé segi á einu stað: „Þetta
er of mikið fyrir blóðheit-
an Sikileyjarbúa eins og
mig.“
Þessi þokkafulla Carmen
hét upphaflega Gussie Si-
et, dóttir rússnesks söðla-
smiðs, sem fluttist til
Bandaríkjanna. Hún tók
sér síðar nafnið Gloria La-
ne, er hun hætti að vera
vélritunarstúlka í New
Jersey og hóf að leggja
stund á óperusöng án
þess þó að hafa nokkra æf-
ingu í slíku. Hin ágæta
rödd hennar varð til þess,
að hún hlaut lítið hlutverk
í óperu Menottis, The Con
sul. Síðan gerðist hún
starfsmaður hjá City Cen-
ter Opera í New York og
hóf að læra hin klassísku
óperuhlutverk. En það var
Carmen, sem gerði Gloria
Lane fræga. Gagnrýnandi
í Sán Fransisco kallaði
hana „mjög dýrslega, mjög
samvizkulausa, — en töfr-
andi. Hin kattmjúka tign
hennar gerir Carmen í
höndum hennar að mest
töfrandi persónu, sem sézt
hefur.“
Og Carmen er eina hiut-
verkið, sem hún á að
syngja í Scala þetta árið.
Gloria býr nú í Róm ásamt
manni sínum, hljómsveitar
stjóranum Samuel Krach-
malnik, og eiga þau tvö
börn. í haust fer hún til
Covent Garden í London
og síðar í vetur til Barce-
lona. Eftir að hafa kynnzt
öllum helztu óperuhúsum
heimsins, segir Gloria, að
Scala sé erfiðasta húsið.
,,Maður þyrfti helzt að
hafa mótorhjól til þess að
ferðast um sviðið.“
aiH
SAGT var, að ,,öll Holly-
wood“ hefði verið við-
stödd, þegar gull-hnattar-
verðlaunin voru afhent. —
Ef það er satt, hefur verið
þarna talsverður slumpur
stjarna — eða að minnsta
kosti þúsund og ein kvik-
myndadís.
JANE Mansfield hélt
fyndnustu ræðu kvöldsins,
en það sem öllum þótti þó
allra bezt, var að Debbie
Reynolds kom til hátíðar-
innar í fylgd Glenn Ford,
og þau viku ekki hvort frá
öðru allt kvöldið.
Velviljað fólk er nú orð-
ið mjög uggandi um fram-
tíð vesalings Debbiear, sem
svikin var af eiginmanni
sínum fyrir ári síðan, — og
margir halda því fram, :—
að hún vcrði bara að fara
að gifta sig.
Enska leikkonan Vivien
Leigh hefur fengið tilboð
um að taka að sér hlutverk
argentísku einræðisherra-
frúarinnar Evu Peron í
sjónvarpsleikriti í Ame-
ríku.
Gloria æfir sig á sviðshreyfingum heima hjá sér.
æfir oft aríurnar í haðkerinu.
Hun
m
I
Flatboínaðir
Kvenskór
nýkomnir J
Fatíma er tízkan 1960
Aðalstræti 8 . Laugavegi 20 . Snorrabraut 38
Nytt JVýtt
Nýjustu og ódýrustu ávextina
Ferskjur kr. 43,00 pr. kg. — Perar kr. 23,00 pr. kg,
og svört Vínber kr. 90,00 pr. kg.
fáið þér í
Fiugsöluoni Fiugsölunoi
Hringbraut 121 Laugavegi 78
FIugsöíunoÉ í Nesti
Fossvogi og Suðurlandsbraut
F yrirliggjandi:
Birkikrossviður 3—4—5 m.m.
Þilplötur (maosonet) 4x8 og 4x9 fet
Gólfborð 1)4x5“ og 1x5
Bankok — Teak 2x5 og 2x6
ASSArátiburðaskrár
Unpasta-undirlagskítti
Saumur, galv.
Væntanlegt:
Gaboon 12—16—19—22 m.m.
Tréiðjan h.f.
Ytri-Njarðvík — Sími 1680.
Opna lœkningastofu
Mánudaginn 29. ágúst að Klapparstíg 25, 3
hæð (gengið inn frá Hverfisgötu). Viðtals-
beiðnir má panta daglega í síma frá 9 f. h.
til 6 e. h., nema laugardaga frá 9—12 f. h.
Símar: 10269, 15459, 15989, 19767.
Heimasími: 14933.
Ragnar Karlsson„ iæknir
Sérgrein: Tauga- og geðsjúkd.
Alþýðublaðið ■— 27. ágúst 1960 0