Reykvíkingur - 15.10.1891, Síða 4

Reykvíkingur - 15.10.1891, Síða 4
40 ar til sorgarskrúðans. Sumir lána þá klæði eða þunna svarta dúka, og verður þettað alit ósamkynja, en svart er það. Enginn eða fæstir lána þettað með góðu geði, sem ekki er von, því ekki verður hjá því kom- ist að eitthvað kunni að skemmast, því festa verður þetta upp með nöglum. Stund- um verður líka að horga þar af leiðandi skaða- bætur, sem gjöra allt dýrara. Að þessu leyti er slíkur sorgarbúningur fremur ódýr hér, en — Abraham, sem hefur hlaupið þessar betliferðir, honum verður að borga nokkra aura; ísak, sem hefur verið með að rjetta að og halda undir blæurnar, setja kértin í pípurnar og fl. honum verður að borga nokkrar krónur, og honum Jakob, sem hefur ráðið fyrir öllu þessu, og nýr höndurnar, þegar Abraham hefur gengið vel að sníkja, hann nælir títuprjónonum og held- ur reikninginn, og honum verður að borga íþeim bláu, því smærri mynt samþyðist ekki hans forðabúri. Þessi sorgarbúningur kirkjunnar, þegar hann hefur þannig verið viðhafður, hefur orðið talsvert kostbær, þó aðalefnið hafi ver- ið lánað, og liggur það mest í fyrirhöfninni sem ekki er gefin. En þettað kemur nú engum við, þegar einstakir menn eða ein- stök fjölög kosta þettað, en þegar þessu er kastað upp á bæarsjóð, þá fer manni að koma það við, eins og nú er farið að tíð- kast, án hinnar minstu heimildar. En mað- ur verður að bera það traust til endurskoð- unarmanna bæarreikninganna að þeir, á sín- um tíma, krefjist að slik gjöld verði endur- borguð af þeim, sem hafa leyft sjer að gefa reikning fyrir þeim til bæarsjóðs og þau hafa verið greidd úr honum. Ef slíkt fyrirkomulag annars ætti að verða að venju, sem maður ekki skyldi geta í- myndað sér, þá væri betra að bærinn út- vegaði kirkjunni slíkar sorgarblæur og ann- að til heyrandi sem gjöf, sem síðan skyldi fylgja henni, og væri svo haganlega fyrir- komið að enginn Jakob þyrfti til að setja það upp og mundi það geta með tímanum, orð- ið hagnaður fyrir kirkjuna, þó hún kostaði viðhald á því, þareð sjálfsagt væri að hún tæki hæfilega leigu af því, þegar menn vildu fá afnot þess. Eptirbreytnisvert. Sýslumaður nokkur var búinn að þínga, og spurði hreppstjóra, áðurenn hann tók skjöl sín saman, hvort nokkur hefði frekara fram að færa á þessu þíngi. Stóð hreppstjórinn þá upp og sagð- ist vera hér með óþekktar stelpu, 11 vetra, sem þæði af sveit, og vildi hann í nafni hreppsbúa biðja sýslumann að láta hýða hana á þinginu, það væri það eina sem reyn- andi væri við hana. Sýslumaður skipaði þá að koma með hana, og dró hreppstjóri hana nauðuga, ásamt öðrum sínum líka, inn í þínghúsið. Sýslumaður spurði barnið að heiti og sagði það honum nafn sitt. „Því ertu svona illa til fara?“, spyr hann; „ég pefi ekki anuað að fara í“, ansar barnið. „Því ertu svona mögur, hefurðu ekki mat- arlyst?“, spyr hann enn; „jú, ég borða það sem ég fæ“. — Sýslumaður spyr þá hrepp- stjóra, hver sé bestur samistaður fyrir úng- linga þar í hrepp, og nefnir hreppstjóri þann stað, en segir að það muni margt hægra enn koma börnum þar fyrir. Sýslumaður stendur þá upp, tekur í hönd barnsins, leið- ir það til hreppstjórans og skipar honum að láta barnið fá sómasamleg föt og fara sem fyrst með það til þess staðar er hann hafði nefnt, heilsa húsbændonum þar frá sér, og þar með að hann biðji þau að taka barn þettað og veita því gott uppeldi, en hann skuli sjá um, að hreppurinn borgi það sómasamlega. Hreppstjórinn og allur þingheimur varð forviða við þetta og þókti fyrst miður, að fá ekki þá ánægju að sjá sýslumann typta barnið, en bráðum snérist það upp í lof um rjettlæti og nákvæmni sýslumanns, og allt var gjört sem hann hafði fyrir skipað. Stúlkan varð mesti myndarkvennmaður, giptist síðan duglegum manni í sveitinni og er enn í dag fyrirmyndar húsmóðir þar. Auglýsing. Á fundi félagsins „Reykvikíngur“ 8. þ. m. var viðtekið, að lög félagsins væru hér ept- ir til sýnis lysthafendum hjá ritstjóra blaðs- ins. Allmargir gengu í félagið á þessufti fundi. Að vörun. Þeir bæarmenn, sem ekki vilja láta Ja- kobsstóð með þess fylgjurum, og annan fén- að éta upp blóm þau, sem þeir af ræktar- semi hafa plantað á leiði vina sinna og ættíngja, ættu að taka sig saman hið bráð- asta, og láta vel í hliðið á vesturvegg kirkjugarðsins, sem nú í lángan tíma hefur alltaf verið opið. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Egilsson. Reykjavik 1891. — Fjelagsprentsmiðjan.

x

Reykvíkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykvíkingur
https://timarit.is/publication/139

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.