Reykvíkingur - 01.04.1897, Page 4
ió
leggja niður þann sið, að bera laugapokann
á bakinu, eins og tíðkast hefir hjer í höfuð-
staðnum, og vakið hefir hneyksli svomargra
útlendra ferðamanna, sem hjer hafa komið.
Er fjelagsskapur þessi, hjá kvennþjóðinni,
mjög lofsverður, og getur á sínum tíma orð-
ið til mikils sóma fyrir land og þjóð.
III.
>Baðfjelagið< heflr sett á stofn bað-
hús hjer í bænum, og gefur þannig bæjar-
mönnum og öðrum kost á, að fá sjer ýmis-
konar böð, sjer til hollustu og heilsubótar.
»Iðnaðarmannafjelagið« er eitt
af þeim fjelögum, sem lítið hefur borið á,
hjer í bænum, þar til nú á siðastliðnu sumri,
að það hefir býggt stórt og vandað sam-
komuhús, með áföstu leiksviði. Ber hús þetta
langt af öðrum húsum í bænum, bæði hvað
stærð og fegurð snertir. Er þetta eitt útaf
fyrir sig, nóg til þess að sýna hvað menn
geta gjört þegar fjelagsskapinn vantar ekki.
»Stúdentafjelagið« hefur nú á síð-
ustu árum haldið, að heita má ókeypis, fyr-
lestra fyrir alþýðu, Hefir inngangurinn að
eins kostað 10 aura. Er það vottur umauk-
inn vilja þessa fjelags, að miðla hinum fá-
fróðari af þekkingu sinni og lærdómi. Hefur
þessum fyrirlestrum verið mæta vel tekið af
bæjarmönnum, enda margir þeirra skýrt og
áheyrilega fluttir.
Framfarafjelag (Reykjavíkur)«
er eitt af hinum nýrri tjelögum í bænum og
hefir verið heldur famennt þar til í vetur, að
það hefir stækkað að mun. Hefir það byggt
sjer hús, er það heldur í samkomur sínar.
Þetta er eitt af þeim fjelögum, er samkvæint
tilgangi sínum getur samanstaðið af öllum
fulltíða bœjarmönnum, þar af leiðir, að það
getur haft mjög mikil áhrif á öll bæjarmal,
enda hefir það þegar komið í Ijós, ba»ði við
opinberar kosningar, er fram hafa farið í bæn-
um o. fl. Má því ætla að fjelag þetta eigi
mikla framtíð fýrir höndurn hjer í bænum.
(Framh).
5. bæjarstjórnarfundur 4, marz.
I. Útaf beiðni frá búendum við Lauga-
veg, um vatnssóknarveg, að Móakotslind (eða
Miðhúsalind), lagði veganefndin til, að hún
fengi leyfi til að verja 15—20 dagsverkum
af bæjarfje, til vegaruðnings frá Laugavegi
niður að Lindargötu, og til gangsstigs þaðan
og ofan að lindinni, gegn tillagi jafn margra
dagsverka frá búendum. Tillaga veganefnd-
ar samþykkt. 2. Samþykkt var, eptir til-
lögu veganefndar, að leggja Birni Stefánssyni
í Mýrarhúsi, 15 kr. úr bæjarsjóði, til timbur-
kaupa í girðingu við lóð hans, með Nýlendu-
götu, ineð því skilyrði að kostnaðurinn við
að halda uppi girðingu þar, sje eptirleiðis
bæjarsjóði með öllu óviðkomandi, 3. Beiðni
frá frú Elínu Briem, um rennu frá suðurenda
húss hennar út í lækinn; var synjaðáheyrzlu
eptir tillögu veganefndar. 4. Synjað að svo
stöddu, um veg frá Bakkastíg gegn um tröð-
ina hjá Garðhúsum að Ananaustum. 5.Beiðni
frá Sig E. Waage, um að hann eigi for-
gangsrjett, til spildu út í tjörnina, suður og
vestur úr lóð hans, suður að Vonarstræti.
Beiðninni var synjað að svo stöddu. 6. Bruna-
bótavirðing samþykkt á húsi Jóhannesar
Benidiktssonar á Miðhúsalóð 850 kr. 7.Beiðni
frá lector Þórhalli Bjarnasyni, um erfðafestu-
land á norður odda Vatnsmýrar, milli túns
dr. Jónassens að vestan, tjarnarenda að norð-
an, og Holtastaðastykkis að austan, um 4
dagslattur. Var ákveðið að fresta því máli
þangað til fulltrúar gætu mætt á staðnum.
8, Gunnlaugur Pjetursson leystur frá að
greiða skólagjald fyrir barn hans, þann tíma
er það hefur eigi getað sótt skólann sakir
veikinda. 9. Tilkynnt að amtmaður hafi
staðfest (17. f. m.) frumvarp um breytingu á
fiskiveiða-samþykktinni, sem samþykkt var á
hjeraðsfundi í Hafnarfirði 12. f. m. E. Briem
ekki a fundi.
6. bæjarstjórnarfundur 18. marz.
I. Veganetndinni var falið á hendur að
verja — á þessu ári — til aðgerða á Vatns-
bólum bæjarins, áþann hátt er hjeraðslæknir
hefur áður stungið upp á; 800 kr. sem bæj-
arstjórnin veitir nú umfram fjarhagsáætlun.
2. P'ormaður las upp brjef frá Frímanni B.
Andersson, þar sem hann skorar á bæjar-
stjórnina áð leggja fram fje til raflýsingar í
bænum. Bæjarstjórnin vildi eigi sinna brjef-
inu. 3. Til að sernja alþingiskjörskrá fyrir
1897/98 voru kosnir Þóihallur Bjarnarson og
Jón Jensson. 4. Bæjarstjórnin samþykkti til-
lögu veganefndar að nýja gatan á Selskolti,
frá Oddgeirsbæ að Holtsgötu skuli heita
Brekkugata. Dr. J Jónassen og E. Briem
ekki á fundi.
Útgefandi og ábyrgðarm.: W. Ó. Breiðfjörð.
Reykjavik 1897. Prentsmiðja Dagskrár.