Sunnanfari - 01.05.1894, Blaðsíða 1
\S\S\S\5'öfe'5\K
|\3b\S\SÖi5?|
jjj Aiigljsing&r |
3) 20 a. megiii- jp
| málslina; 25 |
| aura smáletur. |
\s\sseos\ss
III, 11
MAI
1894
Þorbjörn Olafsson
fæddist á Lundum í Stafholtstungum 17. febr.
1828. Foreldrar hans voru Olafur J>orbjarnar-
son og Ragnhildur Hinriksdóttir, hjón á Lundum,
og ólst forbjörn Þar UPP- Hinn 22. júní 1858
kvæntist hann yngismeyju Kristínu Gunnarsdóttur,
og bjó fyrst á Lundum lítinn tíma, en fluttist
þaðan að Steinum, næsta bæ, og hafa þau hjón
búið þar síðan. Þau eiga einn son á lífi: Gunnar
verzlunarmann í Reykjavík.
Jörðin Steinar er í sjálfu sjer fremur lítil-
fjörleg jörð, en þorbjörn hefur gjört þar gott
tún, er áður var ljelegt, og með frábærum dugnaði
f
þ>ORBJÖRN OlAFSSON.
og hyggindum hefur hann kunnað svo með að
fara, að hann hefur búið betra og stærra búi,
en flestir aðrir þar í sveitum. Hann býr í þjóð-
braut, og er gestrisni þeirra hjóna alkunn og
henni viðbrugðið. Er hann hjálpsamur mjög og
tíðum stórgjöfull. þ>orbjörn er maður tilkomu-
mikill sýnum og vel að sjer gjör. Lítt var hann
til mennta settur í æsku, en greind hefur hann
skarpa og þykir jafnan mikils vert um tillögur
hans. Má hann fyrir margra hluta sakir teljast
meðal hinna merkilegustu bænda.
Jón Tómasson
fæddist á Skarði í Lundareykjadal 7. júní 1852.
Faðir hans er Tómas bóndi á Skarði Jónsson
frá Hvanneyri og Gullberastöðum, þ>órðarsonar.
Móðir Tómasar var Guðríður Sveinsdóttir, prests
á Hesti. Móðir Jóns Tómassonar hjet Vigdís
Jóhanns Pjetursdóttir, Einarssonar frá pingnesi;
var hún fyrsta kona Tómasar.
Jón ólst upp hjá föður sínum á Skarði. Árið
1878 reisti hann bú á Tungufelli í Lundareykjadal
og kvæntist 14. júní s. á. yngismeyju Ragnheiði
Kristjánsdóttur frá Heiði á Álptanesi. Árið eptir
fluttust þau hjón aðHjarðarholti ogbýrjónþar enn.
Konu sína Ragnheiði missti hann 25. júní 1882.
Hinn 16. ^sept. 1884 gekk hann að eiga yngismey
Sigríði Ásgeirsdóttur frá Lundum, Finnboga-
sonar; þau hafa átt 4 börn og lifa 3 þeirra.
Jún Tómasson.
Jón er hár maður vexti, vel vaxinn og
álitlegur sýnum, gestrisinn og drengur góður.
Hann er dugnaðarmaður og góður búhöldur.
Sveitarstjórnarstörf hefur hann haft á hendi og
utn nokkur ár verið hreppsnefndaroddviti. pykir
hann alstaðar koma fram með greind og gætni.
Yfir höfuð má óhætt telja Jón í flokki þeirra
manna, sem eru bændastéttinni til sóma.
* *
*
peir porbjörn og Jón búa öndverðir sinn á
hvorum bakka pverár og keppast hvor við
annan í dugnaði og rausn.