Sunnanfari - 15.01.1901, Síða 8

Sunnanfari - 15.01.1901, Síða 8
8 »Eða í skálanum hans Woburns«, finst öðr- um. »Eða í salnum hjá Adam«. Þessi síðasta tillaga þótti mönnum þjóðráð; bezt þótti eiga við að nota spilastofuna til guðs- þjónustunnar. Salur Adams var aftur af drykkjustofunni. Sumpart var hann notaður til þess að geyma í honum vín og brennivín, sumpart sem spilastofa. Hann var gerður af sterkum, lítt högnum eikar- stofnum, því að eigandinn hafði verið þeirrar skoðunar, að víntunnur og brennivínstunnur ætti helzt að geyma vandlega, enda var það hyggilega hugsað. I báðum endum salsins voru rammgerðar hurðir, og þegar borðin Voru flutt til, komust allir gilbúarnir fyrir þarna inni. Tunnurnar mátti setja hverja ofan á aðra í öðrum enda salsins og við það myndaðist nokk- urs konar ræðupallur. I fyrstu iétu menn sér fátt um þetta fyrirtæki finnast; en svo fór það að berast út, að Elias B. Hopkins hefði í huga að halda dálitla ræðu yfir áheyrendunnm að guðsþjónustunni lokinni, og þá fór mönnum að þykja meira um vert. »Reglulega« prédikun hafði enginn heyrt nýlega, og þó enn síður pré- dikun, er þeirra eiginn prestur flvtti. Orð lék á því, að ræðumaður mundi minnast sérstaklega á hitt og annað, setn gerst hafði þar í gilinu, og að nokkuð mundi verða gengið nærri einstök- um mönnum. Menn fóru að verða hræddir um, að ekki yrði auðhlaupið að því að koma&t inn vegna þrengsla, og út úr því sneru margir sér fyrir fram til húsbændanna. Þá fyrst varð mönn- um rótt, er auðsætt var orðið, að salurinn gat tekið þá alla. Hepni var það, að húsnæðið var svona mikið, því að aldrei fyr höfðu jafnmargir menn verið saman komnir á einn stað þar í gilinu eins og þennan sunnudagsmorgun. Með myndunum. Georg Krítarjarl, Georgsson Grikkjakonungs, Kristjánssonar Danakonungs hins níunda, er mað- ur rúmt þrítugur, f. 25. júní 1869, og hefir verið landstjóri á Krít hátt á 3. ár, kjörinn í það embætti af stórveldunum, með yfirtign Tyrkja- soldáns í orði kveðnu að minsta kosti, til þriggja ára. Sá varð þó árangurinn af ófriðinum með Tyrkjum og Grikkjum fyrir nokkrum árum, að ó- stjórninni tyrknesku létti af Kríteyingum að sinni og þeir fengu kristinn höfðingja yfir sig, og hann konungsson frá frændþjóðinni, er þeir hafa lengi þráð samsteypu við, en stórveldin eigi haft áræði til að samþykkjast, ekki af neinum geig við Tyrkjasoldán, heldur af hræðslunni gömlu um ósátt sín í milli og gripdeildir út úr því. Hann var á ferð í haust, Georg jarl, meðal stór- veldahöfðingjanna i þess kyns málaleitan, að ætlað var, en mælt að lítið muni hafa á unnist, og fylgir þá sögunni, að hann fáist eigi til að halda embættinu lengur með því lagi. Honum þykir hafa farið stjórnin vel úr hendi, þegnar hans notið árs og friðar og unað vel hag sínum. — Hann er mikill maður vexti og fríður sýnum, karlmenni að burðurn. Nikulás Rússakeisari frændi hans — þeir eru systkinasynir — á hon- um lif sitt að launa síðan er þeir voru á ferð saman austur i Japan fyrir mörgum árum og þarlendur maður lagði til keisaraefnis atgeir sín- um eða broddkyliu, en Georg bar af honum höggið, svo að hann sakaði lítt. ^Askurinn, sem myndin er af á 5. bls., er vin- argjöf frá nokkurum íslendingum til öðlingsins P. Feilberg á Sjálandi og var honum færð í sumar er leið. Það er listasmíð eftir Stefán hinn skurðhaga Eiríksson, úr dýrindisviði, með fjall- konuna á lokinu miðju (heldur kúrulega þó), dreka í handarhalds stað og fálka framan á lokinu. En þetta letrað á lokið, með höfðaletri: »Til P. Fejlbergs frá nokkrum ísl. vinum«, og á bumbin.n þessi sléttubandastaka eftir Einar Benediktsson, — tvívegis, rétt og öfug: f>Ajtur handan vina vönd Vitjar landans hylli, Krajtur andans braðra bönd Bindur stranda milli«. Ritstjórar: Björn Jónsson (útgef. op; ábin.) og Einar Hjörleifsson. ísafoldarprentsiniðja.

x

Sunnanfari

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnanfari
https://timarit.is/publication/140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.