Sunnanfari - 01.08.1902, Qupperneq 8
(>4
Var mjög mannúðlegur. Um eftirmiðdaginn fór eg,
þreyttur þó af erli, sem skollinn um alt, til að
skoða og útvega mér ymsar nauðsynjar.................
Marts 25.............Um kvöldið fór eg til etaz-
ráðs Orsteds.
Marts 26. Páskadagur............... Fór eg kl. 9
formiddag til etazráðs Langes, svo i Petri kirkju;
heyrði þar ágæta þyzka prédikun þess mikla mælsku-
manns dr. Johansens. Fann þar Petræus, sem úr
kirkjunni fór með mér heim til mín og borðaði hér
bakkelsi, drakk 2 glös madera til. Svo gekk eg
heim til hans í miðdegisveizlu góða. Yoru 3 réttir
hver öðrum betri; einn þar af spikuð unglambs-
steik, tveggja mánaða gamals. Þar voru engir
framandi, nema Adzer Knudsen, en með börnum og
fólki hans 14 til borðs. Um eftirmiðdaginn fórum
við öll út á Tollbúð, og þar um borð á ferðbúnum
Kínafarara, undir dekk og inn í káetu og um alt;
hann yar á þilfarið 31 faðmur minn eða 62 skref
á lengd; breiddin 10 faðmar. Það var d/rðlegt.
Svo hélt madme Petræus og hann mér um kvöldið,
hvar góður kvöldmatur var og púns. Komu í hann
ein fróken Sekner og kærasti hennar, gamalkunnug
og sjálfboðin. Heim kom eg kl. 1U/2.............
Marts 27.............Gekk eg í Trinitatiskirkju
eftir innboði biskups Mtinters, og var við biskups-
vígslu Kofoeds biskups í Ríparstitti, og sat þar í
instu stólaröð, rétt fyrir framan nýja biskupinn. —
Öll kirkjan í kórnum var tjölduð skrautlegustu
tjöldum með fögrum málverkum á, ofan til rauð-
um damasksgardinum, altarisgráðurnar og með þeim
og þær miðjar þó og þar á knóföllum hvítt atlask
ætlað biskupunum að falla fram á við útdeiiing-
una; altarið sjálft hulið rauðu flöjeli með tvennum
leggingttm utan með af tveggja þumlunga breiðum
ekta gullborða, eins og prédikunarstóllinn ofan. —
Altaríð ofan með hvítu silki og breiðum fínustu
kniplingum utan með. Biskuparnir höfðu og knipl-
inga fína neðan um rikkilín st'n og frantan um
ermar og kápur af gullvefnaði (gullmori), en framau
á börmum broderaðar liljur upp úr gegn með 4
smágullstjörnum broderuðum milli hverra. S/lt
skarð var ofan í kápuna aftan til milli herða, ett
það var fylt silki hvítledtu, og þar á kross af breið-
um gullborða, og hékk gullskúfur við. En stóll
stóð fyrir miðjum gráðum yfirtrektur allur hvítu
atlaski, og sat biskupintt, sem v/gður var, á honum.
Kórittn var fullur margsettum roðum höfðingja á
stólum, prófessóra og presta, af hverjum síðustu sjö
sóknarprestar hér voru skryddir hvítum rikkilínum,
og ásamt biskupi Munter lögðu síðan hendur á koll
þess vígða við vígsluna, sem var sérlega falleg. —
Bak við mig sátu í nærstu stólaröð kancellíherrar.
Enginn konglegur kom þar, en svo fulldrepið var
í kirkjuna hátt og lágt, að fólki lá við að troðast
undir. Hvorki var kollekta, pistill nó guðspjall
tónað eða lesið fyrir, en tvo sálma spilaði orgelið.
Svo tóku hljóðfæri við upp í hæðum fyrir ofan
kórinn og sungu margar skærar og undir 4 söng
skærar raddir þá til vígslunnar gerða söngva,
undir fögrum ókendum lögum. Biskup Kofoed, stór
og digrari en biskup Vídalín var, pródikaði í mess-
unni; var rómmikill og fimaði höndum, en ekki
dáðist eg að prédikun hans. Eftir hana voru báðir
biskuparnir til altaris. Stássið, hljóðfærin, serimón-
íurnar gerðu vígsluna hátíðlega, og 1/sti stiftspró-
fastur Clausen henni á undan. Urn eftirmiðdag
rann eg víða um til að útvega smávegis hluti, og
fór svo um kvöldið að skrifa bréf heim ....
Marts 28............Fór eg að rita bréf heim.
I gær [svo!] kom til mín prófessor [Finnur] Magn-
usson og var hór lengi. Drakk madera. Skip
Jaeobæusar og B[jarna] Sivertsens ferðbúin. Fókk
eg trjáviðarplöntur í mottum um borð sendar og
fræ til birkis í poka og bögla og annað smávegis
heim .......
Marts 29............Gekk eg víða um til að kaupa
smálegt og við kaupmenn að semja um frakt, sem
sárerfitt gengur. Skip í ár fá allir full. [Eg fór]
upp í kongshöll að vita um málefni sonar míns, en
útfallið fæst fyrst næstkomandi fimtudag, þann
2. Apr. Komu til mín um eftirmiðdaginn í bögli:
kalksverkseigandi nokkur og bauð kalk, reipslagari
og bauð færi, en d/r. Asmus Larsen hafði fært
bögla mína um borð á Jacobæusar duggu. Petræus
nykominn frá Ólafi frænda á Jægersborg og Welle-
jus, við hvern eg þingaði um frakt fyrir 4 lestir,
sem á að afgerast á morgun, fái eg ei það fraktrúm
hjá grosserer Magnus. Konferenzráð Sehlegel sendi
mér boðsbróf til mikillar kvöldmáltíðar hjá sér
þann 2. Apr.
f ■ kostar 2‘/2 kr. 12 arkir, auk
\„nnnntnr| titilbl. og yfirlits. Aðalútsala
UUIIIIQIIIUll í bókverzlun ísafoldarprentsm.
Ritstjóri Björn Jónsson
Isafoldarprentsmiðja.