Austri - 19.06.1897, Qupperneq 1
Kemur út 3 á ni&nuðí eða
36 blöð til næsta nýárs, og
kostar hér á landi aðeins
3 kr., erlendis 4 kr.
Qjalddagí 1■ júlí.
Uppsögn skrifleg lutidin vt'ð
áramót. Ógild nema kom-
in sé til ritstj. fyrir 1. októ-
ber. Auglýsingar 10 aura
línan, eða 60 a. hver þuml.
dálks og hálfu dýrara á 1.
síðu.
VII. AR.
Seyðisflrði, 19. júní 1897.
NR. 17
AMTSBÓKASAFNIÐ \ Seyðisfirði
er opið á laugard. kl. 4—5 e. m..
Á s k o r u n.
í tilefni af hinum mikla skaða, sem
útlendir fiskarar, sérstaklega botn-
vörpuveiðimenn hafa gjört Austur-
landi undanfarandi ár, og útlit er fyrir
að þeir framvegis gjöri, bæði með pví
að fiska í landhelgi á fiskimiðum vorum
og einnig með pví að stöðva og eyði-
leggja fiskigöngur að sunnan meðfram
landinu, á peim stöðum sem bátfiski
ekki nú á sér stað á, rueð hinum skað-
legu fiskiveiðarfærum sínum, er hérmeð
skorað á alla í Suður Múlasýslu, sem
stunda sjó eða rið sjó búa, að taka
nákvæm mið, nafn, númer og pjóðar-
einkenni peirra fiskiskipa sem fiska
nær landi en s/4 (prjá fjórðu) úr danskri
mílu, og senda mér skýrslu um pað
með nöfnum vottanna, og mun eg sjá
um að hæfilegum verðlaunum verðiút-
býtt handa uppljóstrarmönnum, ef náð
verður í skipin og pau sektuð.
Skrifstofu Suðurmúlasýslu:
Eskifirði 6. mai 1897.
A. V. Tulinius
Á s k o r u n.
Hérmeð skorum vér á alla pá —
einkum og sérílagi presta landsins —
er vér höfurn sent áskoran til alpingis
um að veita leyfi til að banna alla
sölu áfengis hér á landi, að senda
oss nú áskoranirnar sem fyrst, eða
pá beina leið til ritara Stórstúku ís-
lands, herra verzlunarmanns Borg-
pórs Jósepssonar í Reykjavík.
Seyðisfirði 20. mai 1897.
Björn porláksson. Jón Sigurðsson.
Skapti Jósepsson.
Fundarboð.
Hérmeð tilkynnist, að samkvæmt
fvrirmælum Gránufélagslaganna er á-
kveðið að deildarfundur í Seyðisfjarðar-
°g Eskifjarðardeild verði að öllu for-
fallalausu haldinn áMiðhúsum í Eiða-
pxnghá, laugardaginn pann 26. p. m.
á hádegi.
Vestdalseyri 5. júní 1897.
Th. Hallgrímsson,
__________(deildarstjóri.)
Aðalfundur Gránufélags
fyrir árið 1897 er ákveðinn 3. dag
ágústmánaðar næstkomandi á hádegi
á Vestdalsej-ri, og er hérrneð skorað
á hina kjörnu fulltrúa til aðalfundar
að sækja pann fund á tilgreindunx stað
°g tíma.
Oddeyri 1. dag júnímánaðar 1897.
Davíð Guðmundsson- Björn Jónsson.
_______ Frb. Steinsson. __________
Stjórnarnefnd Gránufélagiins
hefir fengið tilkynning um að pau hluta-
bréf séu glötuð er nú skal greina: No.
884, 885, 886, 1035, 1273, 1199,
1274, 1797,
Fyrir pví er skorað á hvern pann,
er hafa kynni í höndum hlutabréf með
téðum tölum að gjöra pað knnnugt
stjórnarnefndinni, áður 6 mánuðir sé
liðnir frá birtingu pessarar auglýsing-
ar, pví að peim tíma liðnum verða
pessi bréf ógild og önnur ný gefin út
í stað peirra.
Oddeyri 2. júni 1897.
Davíð Guðmundsson. Björn Jónsson.
Frb. Steinsson.
Stórtíðindi.
Hraðfréttaþráðinn, alla leið hingað
upp til Islands, ætlar „hið mikla
norræna hraðfróttafólag“ sem hefirlagt
hraðfréttapræði um heira allan, — að
bjóða alpingi í sumar að leggja hingað
til landsins á næsta sumri með mjög
svo aðgengilegum kostum. Mun hrað-
fréttafélagið sízt Iieimta meiri styrk
af alpingi, en pað kvaðst síðast vilja
veita, pá er miklu óálitlegri fram-
kvæmdamenn fjölluðu um málið, en nú.
fað er og talið víst, að ríkisdagur-
inn leggi líka fram töluvert fé til
framkvæmdar fyrirtækinu og svo nokk-
ur önnur riki, er mest hafa viðskiptj
við Island, syo sem Svípjóð, Norvegur,
Frakkland, England og Ameríka,
Líklega kemur einn af stjórnend-
um hraðfréttafélagsins mikla upp til
Reykjavíkur um pingtímann til pess
að semja við alpingi og landshöfðingja
um málið. Er vonandi að peir samn-
ingar gangi vel og greiðlega af okkar
Islendinga hálfu, svo vel og drengi-
lega sem félagið og Danir yfir höfuð
hafa tekið í petta velferðamál lands-
ins, sem oss íslendingum er skylt að
pakka peim mjög vel fyrir og af heil-
um hug.
1 pessu efni skulum vér leyfa oss
að benda á, að það mundi haganleg-
ast, að leggja fréttaþráðinn úr hafl hér
upp að sunnanvcrðu Austurlandi, pví
1. er par stytzt haf að leggja práð-
inn um hingað til landsins, frá Fær-
eyjum; og 2. mundi málpráðurinn verða
mikið notaður af hinum mörgu kaup-
mönnum hér á Austurlandi, og pó
einkum síldarveiðamönnunum, sem
mundu hafa störan hagnað af að eiga
sem hægast með að senda hraðskeyti
til útlanda um síldarveiðina hér við
land, og sem opt hafa misst störmik-
ils fjár við, að hraðfréttapráðinn vant-
aði.
Ætti hraðfréttapráðurinn helzt ekki
að liggja sunnar í land en á Fáskrúðs-
firði, sem er syðsta síldarveiðastöðin
hér eystra, enn sem komið er, og
pangað sem flest fiskiskip Frakka
flykkjast á sumrin, sem líka mundu
nota práðinn að miklum mun.
Bessa tillögu vora vonum vér að
hið virðulega alpingi vort athugi, og
serilagi hinir háttvirtu alpingismenn
Austfirðinga, við samningana uin
málið.
Líklega eru peir fölagar, málafærslu-
maður Mitchell, dr. Jón Stefánsson
og kaupmaður Thordahl nú útúr mál-
inu; en par fyrir eiga peir miklar
pakkir fyi'ir pað skilið af ois Islend-
ingum, að hafa komið málinu á gang
og vakið almenningsatliygli á pví, bæðí
í Danmörku og víðar um lönd.
Holdsveikisspítalinn. Odd-Fellow
heitir félag eitt, er stofnað var fyrir
nokkru á Englandi, og nú er orðið
útbreitt nálega um allan hinn mennt-
aða heim. Leggur félag petta eink-
um stund á, að framkvæma ýms misk-
unnarverk. Odd-Fellowar hafa og
fjölmenna deild í Danmörku, er ræð-
ur yfir miklum auði.
Inn í pessa deild gekk Iiinn göfug-
lyndi íslandsvinur, doktor Ehlers, í
fyrra, og bar par svo von bráðar upp
holdveikisspítalamálið á Islandi og
fékk beztu menn félagsins til að styðja
pað mál svo duglega við félagsstjórn-
ina og Odd-Fellowa almennt, að peir
hafa ákveðið að reisa hér holdsveikra-
spítala á næsta sumri fyrir 60 holds-
veika menn, er héraðslæknir Guðmund-
ur Björnsson kvað að nægja mundi.
J>að var afráðið, að formaður Odd-
Fellowanna í Danmörku, dr. Beyer,
kæmi upp pegar í sumar til Reykja-
víkur, og með honum danskur bygg-
ingameistaiú, til pess að velja bygg-
ingarstæðið og undirbúa bygginguna
til næsta árs.
Eigum vér íslendingar stórmikið
pessu veglynda félagi að pakka, og pó
einkum fyrst og síðast dr. Ehlers, _ er
fyrst braut isinn til framkvæmdar og
líknunar hinum holdsveiku aumingjum
hér á landi, og hefir, prátt fyrir all-
an misskilning og jafnvel vanpakklæti
sumra, aldrei preytzt gott að gjöra í
pessu holdsveikramáli, og fært pað nú
loks, fyrir drengilega aðstoð hinna
beztu danskra manna, til sigurs og
blessunar fyrir hina holdsveiku aum-
ingja vora og landið allt í heild sinni.
fessu framúrskarandi veglyndi
danskra sampegna vorra við gamla ís-
land, einsog líka hinum drengilegu stór-
gjöfum Dana til landskjálptasveitanna,
ættum vér Islendingar aldrei að gleyma;
og oss segir svo hugur um, að pessar
miklu velgjörðir Dana við oss íslend-
inga beri bráðummeii’i blessun í skauti
sér, til góðs samkomulags og samvinnu
rnilli Islands og Danmerkur eptirleiðis;
og pað pví fremur, sem Danir hafa
einmitt á pessu síðasta ári, í ýmsu
öðru, sýnt pað ljóslega, að peim er
annt um viðreisn og fraroför landsins.
Samskot pau, er landi vor, hinn
kapólski prestur sira Jón Sveinsson,
þórarinssonar amtmannsskrifara, hifir
gengizt fyrir meðal ti’úbræðra sinna
til byggingar skýlis yfir holdsveika
menn hér á landi, — eru nú orðin
yfir 20 pús. króna, en líklega vilja
hinir kapólsku prestar í Reykjavík
hafa pá stofnun í einhverju sambandi
við trúboðun peirra hér á landi, og
hafa hönd í bagga með stjórn pess
fyrirtækis.
ÚTLENDAR FRÉTTIR.
—0—
Danmerk. Nú er loks myndað hið
nýja ráðaneyti í Danmörku, eptir að
bæði Estrup og Friii Friisenborg
greifi höfðu uppgefizt við að koma pví
saman; en til peirra hafði konungur
fyrst leitað með að mynda hið nýja
ráðaneyti, sem vonlegt var, par sem
pað voru peirra flokksmenn í lands-
pinginu, sem urðu síðast til að koma
ráðaneyti Reedts Thott fyrir, enda
hefir hvorugum pingflokkanna pótt
mikið til pess koma og pað jafnan
hvikult í ráði.
Sá heitir Rorring, er loks tókst að
mynda hið nýja ráðaneyti, og er pví
forsætisráðgjafi, og var hann áður
samgöngumálaráðgjafi í ráðaneyti
Reedts Thotts. frir nýjir menn hafa
komið í ráðaneytið, nfl. Stliyr, biskup,
kirkju- og kennslumálaráðgjafi, luxen
hermálaráðgjafi og Hage, ríkur jarð-
eigandi, jarðyrkjumálaráðgjafi. Hinir
ráðgjafarnir sátu áður í í’áðaneytinu,
og sömuleiðis íslandsráðgjafi Rump,
sem situr kyr í báðum embættum, sem
dómsmálaráðgjafi Dana og ráðgjafi
fyrir oss íslendinga.
Lítilla framkvæmda vænta menn sér
af pessu nýja ráðaneyti, en ólíklegt er,
að pað vogi sér út í ný provisoria,
eða stjórnlagabrot, og er helzt sú ætl-
an manna, að pað verði meinlítið og
gagnslitið. En eigi virðist rétt að
dæma ráðaneytið að óreyndu.
Næst elzta dóttir Friðriks krónprinz
og Lovísu Carlsdóttur, Ingibfórg, er
nýtrúlofuð 3. syni Oskars Svía- og
Norðmannakonungs, Carli, sem talinn
er einhver fríðastur konungssoní Norð-
urálfunni. Hann er rúmlega prítugur
en unnusta hans 17 ára görnul; bæði
eru hjónaefnin stórrík.
Svíþjóð og Norvegur. Svíar halda
í sumar mikla iðnaðar- og listaverka-
sýningu í Stokkhólmi, og var hún vígð
pann 15. f. ra., með mikilli viðhöfn,
af'Óskari konungi, sem hélt par, að
vanda, snjalla ræðu í viðurvist hins
mesta fjölmennis.
Háskólinn í Yínarborg hefir kjörið
Óskar konung til heiðursdoktors í
heimspeki.
Seint í f. m. brunnu 4/5. hlutar af
Levanger, sem er nokkuð stórt porp
í prændalögum.
Rússland. Nýlega var handsamað-
ur vinnumaður einn, er ætlaði að
myrða Nikulás Rússakeisara i sumar-
höll hans, Zarkoie-Selo, nálægt Pét-
ursboi’g. Maðurinn pekkti eigi keis-
arann, og spurði sig fyrir hjá vörðun-
um, hvernig keisarinu væri i hátt.
þetta pótti grunsamt, og var pví