Austri - 28.03.1903, Blaðsíða 2
NR 12
AIÍPTEI
40
hvað fleira smávegis. íveru*
fatnaður þeirra brann svo að segja
allur, matvæli og búsgögn að mest-
öllu leyti; einnig ljósmyndaskúrinn, sem
byggður var áfastur við austurenda
hússÍDs. Hafa þau hjón því oróið
fyrir stórkostlegum skaða, þar sem
þau því miður höfðu ekkert af sínu
vátryggt. — Runólfur Halldórsson
mun einuig hafa liðið mikinn skaða
þareð húsið var of lágt vátryggt, en
vórur hans alls ekki og varð mjög litlu
bjargað. — J»að semflýtti brunanum svo
mjog, var, að vindur stóð snarphvass
af austri, og feykti hann eldhriðtnni
af búsinu alla leið framundir íljúðar-
hús verzlunarmanns Carl. Jób. Lill-
iendahls. Hefði vindurinn verið lítið
eitt norðlægari, mundi íbúðarhús Ólafs
Jónssonar járnsmiðs vafalaust hafa
brunnið líka, þareð það stendur svo
nálægt, og þá hefði að líkindum náð
til að kvikna í verzlunarhúsum Jörgen
Hansens verzlunar.
Sunnudagsmorguninn eptir þ. 22.
kom maður ofan í kaupstaðinn með
þá fregn, að vöruskip 0rum & Wulffs
verziunar, skonnort „Eilinor" sem var
von á um það leyti, væri komin í
strand á Tangaboða. Kaupstaðar-
búar þustu allir samstundis úteptir og
gengu rösklega fram i því að ganga
frá köðlum milli skips og lands til
björgunar mönnunum, þvi óhugsaudi
var, að geta komizt á bát út til skips-
ins, sem stóð á hliðinni út h grynn-
ingunum c. 60 faðma frá landi, og
þar sem sjóarnir brotnuðu á því, og
biimlöðrið æddi milli skips og lands.
Fjórum af skipverjum lánaðist að ná
f land um daginn á köðlum, og voru
þeir allir meira og minna dasaðir af
vosbúð og sjóvolki. Voru þeir sam-
stundis fluftir inn í Leirhöfn og bjúkr-
að þar. — Skipstjóra og stýrimanni
var ekki hægt að ná um kvöldið því
að svo dimmt var orðið. Urðu þeir
því að halda kyrru fyrir í skipinu um
nóttina, og náðust þeir ekki í land
fyr en um miðjan dag á mánudaginn,
mjög þjakaðir og dofnir orðnir af bleytu
og kulda, þar sem þeir mest alla
nóttina máttu sitja í sjó upp undir
mitti í káetunni. J>að vildi til
happs á flóðinu um nóttina, að skipið
snérist við og fiuttistrúma lengd sína
nær landi, þannig, að framstafninn
kom fast upp að klöpp, sem hægt
var að komast út á á bát, og af henni
var þeim náð ofan af skipinu. Annars
er efasamt hvort þeir hefðu náðst
lifandi, ef ekki hefði verið um annað
að gjöra en að nota kaðlana eins og
fyrri daginn, þareð þeir trauðla mundu
hafa haft mátt til að halda sér við á
þeim.
C. J. L.
i _____________________
Slys
það vildi til nýlega, er þau síra
Magnús Bl. Jónsson í Vaiianesi, kona
hans, frú Guðríður, og Sigurður Ein-
arsson i Mjöanesi, ásamt móður srnni,
ekkjufrú Guðrúnu, — voru á ferð
eptir Lagarfljóti, að ís brast undan
hestunr þeirra þriggja síðastnefndu,
þar sem þau stöldruðu við á ísnum,
við sprungu, er vætiaði upp um, til
þess að láta hestana drekka. Síra
MagnÚ3 var spölkorn á eptir og er
hann sá sð ísinn brastundan hestunum
ætlaði hann að þjóta af baki, en
varð fastur í ístaði, og tafðist við að
losa sig; náði hann með naumindura í
konu sína, sem varaðsökkva í vökinni
en hestur hennar raeð reyðtýgjum fór
undir isinn og kafnaði. Siguiður hafði
strax komizt upp á skörina og bjargað
móðnr siuni upp úr vökinn’, en hestur
Sigurðar henti sig úr vokinni og upp
á skörina án nokkurar hjálpar. Síðan
drógu þau hest frú Guðrúnar upp úr
vökinni. En hestur síra Magnúsar
fældist og náðist ekki fyr en upp hjá
Geitagerði í Fijótsdal. far sem ísinn
sprakk var 10 faðma dýpi.
„Egill“
fór héðan snemma morgunr þ. 22.
og með bonum: konsúl Hansen og
sútari Berg til útlanda, Jón Jónsson
í Múla snöggva ferð til Suðurfjarð-
anna; til Breiðdals verzlunarm. Björn
Stefánsson, og þeir bræður Jóh, Kr.
og Gunnlögur Jónssynir með líki mágs
síns Bjarna kaupm Siggeirssonar; enn-
fremur til Fáskrúðsfjarðar, irúSigríður
Jónsdóttir.
„Nor,“
skipstjóri Olsen, kom hingað inn
vegna þoku þ. 27. og fór aptur um
nóttina. Var á leið til Isafjarðar með
saltfarrn frá Englandi.
Héraðsmenn
eru hér þessa dagana með hesta,
til að sækja sér matvöru.
Veður
er nú bjart, en snjór mikill hér í
Fjörðum, en minni í Héraði, þar sem
víðast kvað vefa jörð komin upp til
beitar.
Frá Vopnaflrði
kom hingað sendimaður þ. 26. þ. m.
til þess að skýra sýslum. frá strandinu
og húsbrunanum. Sýslumaður lagði
af stað norður í gær ásamt skrifara
sínum og sendimanninura.
ÆFIMINNING.
Hinn 29. júli andaðist á Djúpavog
Stefán Guðmundsson lausam.
frá Starmýri rúmlega 51 árs að aldri.
Hann var fæddur á Starmýri i Alfta-
firði 13. febr. 1851, Foreldrar nans
voru: Guðmundur Hjorleifsson (J.rna-
sonar hins sterka frá Höfn í Borg-
arfirði eystra) bóndi áStarœýri, dáinn
4. nóv. 1859 cg Ragnheiðar Stofáns-
dóttir, sem enn lifir. Tók hann vif
búsforráðum með móður sinni skommu
eptir að hrnn fermdist og veitti búi
hennar forstöðu með atorku og dugnaði
þar til hún hætti búskap vorið 1893.
Eptir það stundaði hann sjávavútgjörð
og heppnaðist það mæta vel, endavar
Stefán sál mörgum manniglöggskyggn-
ari á veður og sjó; jofn gætinn sem
djarfur í sjósókn.
Umgengilegri, hógværari og alúð.
legri mann enn Stefán sál. Guðmunds-
son er naumast hægt að hugsa sé. >
enda var ð honum jafnan gott til vina.
Hans er því aföllum er hann þekktu,
að maklegloikum sárt saknað.
JEinn af frœndum hius látna.
Jþrðin Brunahvammur í Vopnafirði
11.5 hnd að dýrleika, fæst til
ábúðar, og jafnvel til kaup3 í
næstk, fardögum. Tún jarðar nnar er
í meðallagi. Útheyskapur nær óupp-
vinnanlegur. Töðugæft hey; málnyta,
og öll önnur afnot sauðfjár í allra
bezta lagi. — Afréttarland fylgir
jörðinni fyrir allt að 1000 fjár.
Um ábúð eða kaup á jörðinni má
semja við undirritaðan.
Bustarfelli 2. marz 1903
Metúsalem Einarsson.
Auglýsing.
Af því að eg hefi fastráðið að hætta verzlun þeirri, sem eg nú
nokkur undanfarardi ár hefi rekið hér á Seyðisfirði, og mun flytja mig bráðlega
alfarinn norður á Gunnólfsvík við Langanes, þá auglýsist hérmob að eg hefi
gefið herra umboðsmanni caad. jur. Björgvin Vigfús3yui á Hall >: insstað umboð
til þess fyrir mina hönd að innheiinta allar útistandandi skuldir mínar á ís-
landi. Bor því öllum skuldunautura mínum að greiða til hans bað seœ þeir
eiga að lúka; að öðrum kosti geta þeir ekki fengið kvittun fyrir skuldalúkningu
sinni.
jþað kanngjörist og öðrum viðskiptamönnura mínura, að eg einnig hefi
falið nefndum umboðsmanni minum að semja við alla þá, sem eiga innieign
við fyrnefnda verzlun m?na og eru þeir því beðnir að snúa sér til hans í
því efni.
Ennfremur anglýsist hérmeð, að öll verzlunarhús mín ás unt íbúðarhúsi
hér á Seyðisfirði fást til sölu. Lysthafendur snúi sér til herra Björgvins
Vigfússonar, sem eg hefi gefið sömuleiðis umboð til að semja urasölu á téðum
húsum og veita andvirðinu móttöku til lúkningar skuldura mínum eins og þær
eru nú,
Seyðisfirði 15. marz. 1903.
Andrés Rasmussen,
Samkvæmt ofanskráðu er liérmeð því skorað á alla þá menn hér á
landi, sem eiga að greiða herra kaupmanni Ar.dr. Rasmussen á Seyðisfirði
skuldir frá liðnura tíma, að semja við mig undirritaðan um lúkning á skuldura
sínum fyrir lok júnímánaðar næstkoraandi. Að öðrum kosti mega þeir búast
við lögsókn.
Hallormsstað 20. mavz 1903.
Bjergvin Vigfússon.
Hin norska netaverksmiðja í Kristjaníu
mælir með sínum viðurkenndu síldarvörpum, síldarnetum o. s. frv.
Pöntunum veitir móttöku umboðsmaður vor í Kaupmannahöfn,
herra Lanritz Jensen,
Reverdilsgade 7.
Sjómenn fá ódýrustu og sterlcustu sjóstígvélin,
Héraðsmennfá ódýrustu og sterkustu reiðstígvélin,
V erkafólk fær ódýrustu og sterkustu slitskóna,
hja
Hermanni Porsteinssyni.
j VOTTORÐ.
i Eg befi venð mjög raagaveikur, og
! hefur það með fylgt höfuðverkur og
! annar lasleiki Með því að brúka
, Kína -lífs -elixír frá hr. Valdimar Pet*
ersen í Friðrikshöfn, er eg aptur
I kominn til góðrar heiUu, og ræð eg
; því öllum, er þjást af slíkum sjúkdómi
‘ að reyna bitter þennani
Oddur Snorrasön.
Bdnalifselixirinn fæit hjá flestura
kaupmönnum á lslandi án tollálags
1 kr. 50 aura flaskan.
i Til þess að vera viss um, að fá
| hinn ekta Kinalífselixír, eru kaup-
endur beðnir að líta eptir því að
V. P.
~~F7~
standi á flöskunum í græuu lakki og
eins eptir hinu skrásetta vörumerki á
flöskuniiðanum: Kínverji með glasi í
hendi, og firmanafnið Valdemar Pet-
ersen, Frederikshavn Skrifstofa
og vörubúr,
Nyvej 16 Kjöbe ihavn..
Undirskrifaður tekur að sér
að veita |>eim er óska góða
tilsögn í ensku, frakknesku
og dönsku. Ennfremur í söng-
fræði og Harinonium-spili.
Glóðar kennslubækur eru fyrir
hendi. Borgun frá 0>35 — 0,50
aura um timann.
Vopnafirði 5* marz 1903
Carl Jóh. Lilliendahl.
Greindur og laghentur piltur,
16—17 ára gamall, getur fengið að
læra bókband frá 1. mai næstkomandi.
Seyðisfirði
Kristján L. Jónsson
bókbindari.
Búnaðarfélag Borgarfjarðar
óskar að fá æfðan bufræð--
ing í þjónustu sína á næst-
komandi sumri. Góð laun í boði.
Semja skal við stjórn félagsins
Borgarfirði 28. febrúav 1903.
Félagsstjórnin.
M
ikið nýtt og vandað efni
til skósmíða, kom nú til
min með skipunum. Að-
gjörðir á skötaui og nýir skór,
injög ódýrt, og allt fljótt og veí
aí' hendi leyst.
Stígvélaáburður ágætur og
Box-Calf sverta ágæt er lika til
sölu bjá:
Hermanni Porsteinssyni.
Færeyskur fiskihátur óskast
til kaups, Ritstj. visar á,
Hið bezta sjókólade er frá
verksmiðjunni „Sirius“ í Frí-
höfninni í Khöfn,, þab er hið
drýgsta og næringarmesta og
inniheldur meira af kakaó en
nokkur önnur sjökóladetegund.
Abyrgðarmaður og ritstjóri:
Cand. phil. Skapti Jósepsson.
Prentsmiðja.
porstems J. O. ÍSknytasonar