Austri - 31.12.1908, Síða 2
NE: 46
A 0 S T R \
172
SKIPSTRAND.
Skipið „Nordlyset“ (seglskip með
lijálparvél) strandaði nýlega við Yest-
mannaeyjar, hlaðið steinolíu frá stein-
clíufélaginu. Björgunarskipið „Svava“
gat náð skipinu aptur út og komið pví
til Reykjavíkur. Skipið kvað ekki vera
mikið skemmt.
MANNALÁT.
Dáirf er 6. p. m. frú Kristjana Jóns-
dóttir á ísafirði, kona Helga Sveins-
sonar bankaútbússtjóra. Frú Kristjana
sál, varð 38 ára gömul. Hun var dótt-
ir Jóns heitins Sigurðssonar alpm. á
Gautlondum og Solveigar Jónsdóttur
konu hans. Helgi og frú Kristjana
voru 12 ár í hjónabandi og eignuðust
8 born, Frú Kristjana sál. var hin
merkasta kona, greind og vel gefin,
eins og hún átti kyn til.
— Látinn er s. d. Jón Bjarnason
á Galtafelli í Ytrihrepp. Hann var
iaðir Einars royndhpggvara í Kaup-
mannahpfn og þeirra bræðra
SNÆFELLSNESSÝSLA
var veitt 19. f. m. settum sýslumanni
þar, Guðmundi Eggerz cand. jur.
FORNIR PENINGAR.
Á Geldingaholti í Skagafirði fundust
peningar í jörðu, 41 að tolu. Elzti
peningurinn var pýzkur, frá árinu
1588.
LAUSN FRÁ EMBÆTTI
hefir verið veitt Marino Hafstein
sýslumanni í Strandasýslu frá 1. apríl
næstk. með eptirlaunum.
SJÁLFSMORÐ.
Sigurður Símonarson trésmiður í
Hofsós skaut sig til bana inni í stofu
sínni 24. f. m. Hann var 32 ára að
aldri, ógiftur, talinn vel efnaður maður.
Fyrir skommu misti hann bróður sinn
og bafði verið talsvert þunglyndur síð-
an.
KIRKJA FAUK.
Sagt er að kirkjan á Reykjum í Öl-
vesi hafi fokið af grunni sínum í of-
veðrinu 27. f. m.
FJÁRSKAÐAR
urðu og nokkrir í pessu sama veðri,
enda var fannkoman mikil með stór-
viðrinu. Einar bóndi Gottsveinsson í
Hjarðarnesi á Kjalarnesi kvað hafa
misst flestalt fé sitt, er hrakti í sjóinn,
Björn Bjarnarson iGröf háfði ogmisst
nokkrar kindut á sama hátt.
Á HVANNEYRARSKÓLANUM
eru 32 nemendur, 24 piltar og 8 stúlk-
ur. 43 hötðu sótt um inntöku á skól-
ann í ár, en ekki var hægt að veita
móttpku fleirum en 32.
MIKILFENGLEG SAMGIRÐING.
Fljótshlíðingar hafa í ráði að koma
sér upp í samlogum gripheldri girðing
eptir endilangri Hliðinni ofan við túnin,
alt utan frá Rverá á mörkum Hvol-
hrepps og Fljótshlíðar, meira en 3
mílur vegai eða 12,500 faðma. Það
er áætlað, að girðingin muni kostaalls
9000 kr. eða 72 a. faðmurinn. Með
henni og klettabelti á kafla eru varin
öll tún og engjar í Hlíðinni, með pví
að Markarfljót ver á aðra hl ð. Beiti-
landið tekur við fyrir ofan girðinguna.
SMJ0RSALA.
Síðasta tölublað Freys flytur skýrslu
um smjörsöluna p. á. til annara landa
fra öllum sunnlenzku smjprbúunum,
alt austan úr Mýrdal og vestur á Snæ-
fellsnes, 24 að tplu, eptir vitneskju frá
umboðsmanni peirra, Jes Zimsen kon-
súl í Reykjavík. Hann hefir sent út
fyrir pau alls nær 2000 tunnur eða
200,000 pd. og kvað smjörið hafaselzt
vel, megnið af pví, og sumt ágœtlega.
Helmingur pessara smjörbúa er í
Árnessýslu; par næst 6 í Rangárvalla,
3 í Borgarf. og 1 í hinum sýslunum.
MESTIR HEYJABÆNDUR
sunnanlands eptir petta sumar segir
í síðasta Frey að muni vera Halldór
Vilhjálmsson skólastjóri a Hvanneyri
og Sigurður Ólafsson sýslumaður í
Kallaðarnesi. Halldór heyjaði 3000
hesta. par af 700 töðu, og S. sýslu-
maður 2800.
TEKJUR LANDSÍMANS
um 3. ársfjórðung 1908:
Símskeyti:
Innanlands kr. 2872,05
Til útlanda kr. 25399,25
Þar af hluti
útlanda — 21390,51
Hluti íslands — 4008,74
Frá útlpndum — 1892,28
Símasamtpl — 8288,80
Talsímanotendagjald — 1039,87
Aðrar tekjur — 945,96
Samtals kr. 19047,70
Rakkarávarp.
Hjartans pakklæti vottum við öllum
peim, er sýndu oss hluttekningu við
veikindi og dauða elskaðs fóstursonar
okkar, Sigurðar Guðmunds-
s o n a r, eða heiðruðu útför hans með
nærveru sinni og sendu blómsveigi á
kistu hans.
Skálanesi á Fjarðaröldu 28/lg. 1908.
Guðný Þorsteinsdóttir,
Jón Lúðvíksson.
Ungmennafól. Seyðisfjarðar,
F u n d i r:
3. janúar n. k.
Aðalfundur 17. janúar n. k.
S t j ó rn i n .
Bernskan II.,
með myndum og sögum af börnum á
Seyðisfirði, ásamt morgum fleiri sögum,
er til splu hjá
Jóni Sigurj ónssyni
prentara.
<?im\ÁFis
Sápur, ilmvotn, bárvatn, hárvax,
Brillantine, Shampoopowder, Oreme.
Útgefendur:
erfingjar
cand. phil. Skapta Jósepssonar
Abyrgðarm. Þorst. J. G. Skaptason
PrentBmiðja Austra
Prónavélarnar nafnfrægu:
„NEU UNION “ og „BRETANIi“
eru nú til á fjoldamörgum heimilam á Austurlandi, þær
kosta frá 100 kr. til 300 og par yfir; frítt á Seyðisfirði með
10% afslætti gegn peningum strax,
Singers saumavélar,
sem viðurkendar eru beztar í heimi, eru ávalt til sölu og kosta
með tvöfpldum krapti 40—45 krónur — líka með 10°/0 afslætti
Mjólkursklvindan
ALEXANDRA"
» ’
endurbætt að ýmsu, er nú bezta skilvinda í heirai. —
Nr. 14 kostar 80 kr. og Nr. 12 120 kr. — líka með
10% afslætti ef borgað er strax.
Aðalumboðssölu tyrir Island heflr
verzlun ST. TH JÓNSSÖN'AR
• á Seyðisfirði.
Otto Monsted8
danska smjorllki
er bezt.
mmmmm-
Kr. Ottesen
Bergen Norge. Telegrafadr: „Kingel“
Agentnr, Coromiasions Speditionsior-
retning for Export fra Norge: Tra>
last — Bygningsartikler af alle Slags
— Fnkeredskaber. For Bxport fra
ísland: Alle Slags Varer. Refer-
rence: Bcrgens Kreditbank.
(B, A. E.)
Biuuaábyigðarfélagið
„Nye Danske
,Brandí orsikrings-Selskab
Stormgade 2 Kjöbenhavn.
Stofnað 1764.
(Aktiekapital 4oooooo og
Reservefond 800000)
tokur að sér brunaábyrgð á
busum, bæjum, gripum^ verzl-
unarvöruxr ( innanhúsmunum o.fl.
fyrir fastákveðna litla borgun
(Præmie) án þess að reiLna
nokkra borgun fyrir bruna-
ábyrgðarskjöl (Police) eða stimp
ilgjald.
Menn snúi sér til umboðs-
manns félagsins á Seyðisfirði.
St. Th. Jónsson.
REYNIÐ
Boxcalf svertuna
„Sun“ og notið
ldrei aðra skósvertu. Fæst hjlkaup*
mönnum alstaðar á íslandi.
Reynið
lyptiduptið „Fermenta"
og pér munuð komast að raun um að
hetra lyptidupt fæst ekki 1 nokkurri
verzlun,
Bucbs Parvefabrik.
Kaupmannahöfn.