Austri


Austri - 15.12.1917, Qupperneq 1

Austri - 15.12.1917, Qupperneq 1
46. tbl. Rilnefnd: Jón Jónsson d Hvanná, Karl Finnbogason, Sveinn Ólafsson í Firði. Ábyrgðarm. Jón Tómasson . Prentsm. Austra. | Seyðisfirði, 15. desember 1917. || Talsími 18 b. XXYII. ár Alta Laval skilviudau. Nærri 2,000,000 vélar seldar. Yfir 1000 fysrtu verðlaun og sein- ast „Grand Prix* á heimssýninguimi í San Pransisco, er besta sonnun fyrir ab Alfa Laval er bezta skilvindan. Aðalnmboðsmaður fyrir ístand H. Benediktsso n, ReykjaYík Símnefni „GEYS1R“. Símar 8 og 284. ♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦ ♦♦♦♦♦♦♦♦ Fanamálið A 1 Riki&ráðum. (Símskeytí til „Austra" u/w) Forseti ráðuneytis íslands flutti, fimtudaginn 22. nóvember þ. á., i ríkisráðinu efti greinda allra þegnsamlegasta tillögu um lög- gilding á fána íslands, og færði þau rök að henni, sem nú skal greina: »Siðasta Alþingi samþykti í báð- um deildum svofelda þingsályktun: »Alþingi ályklar að skora á stjórn- ina að sjá um, að íslandi verði þegar ákveðinn fullkominn sigl- ingafáni með konungsúrskurði, og ályktar að veita heimild til að svo sé farið með málið.« — Þings- ályktun þessa samþykti Alþingi með öllum atkvæðum, og það er engum efa undirorpið að hún er bygð á sami'óma og mjögákveðn- um óskum allrar íslenzku þjóðar- innar. — Alla stund frá stofnun þjóðveldis á íslandi hefir meðvit- undin um að íslendingar væri sérstök og sjálfstæð þjóð, lifað í tungu og löggjöf land«ins. Fram- farir i menning og efnahag hafa á síðustu mannsöldrum komið í stað langrar afturfarar, og vakið kröf- ur þess að þjóðerni íslands sé sýnt með þeim einkennum, sem eru heildarmerki þjóðanna að skoðun nútimaus. Sérstaklega hefir þróun íslenzkra siglinga valdið því að sú ósk er orðin mjög öfl- ug, að ísland fái sinn eiginn fána til sanninda um sérstakt þjóðerni sitt. Eg verð að leggja það til að yðar hátign verði við þessari ósk með allrahæstura úrskurði um ís- lenzkan fána. í umræðunum á Alþingi var því lýst, að ísland hefði efalausan rétt til þess að hafa sinn éigin fána, og að hin stjórnskipulegu völd íslands hefðu fult vald til að skipa þessu máli. Eg verð að vera þeirrar skoð- unar, að þar sem ekki er deilt um rétt íslasds til yfirráða yfir verzlun sinni og siglingum, þá felist þegar þar i heimild til þess, eftir tilmælum Alþingis, að atueina með konungsúrskurði takmarkan- ir þær á notkun íslenzka fánans á íslenzkum skipnm fyrir utan land- helgi, sem settar eru í konungs- úrskurði 22. nóvemóer 1913. Eg áskil mér að gera síðar tillögur til breytinga á löggjöf íslands, þær er leiða kynnu af konungsúrskurð- inum. Samkvæmt framansögðu leyfi eg mér allra þegnsamlegast að leggja til, að yðar hátign mætti allra mildilegast þóknast að fall- ast á að fáni sá, sem ákveðinn var með konungsúrskurði 19. júní 1915, verði löggildur fáni íslsnds, og að afnema jafnframt konungs- úrskurð 22. nóv. 1913, um sér- stakan íslenzkan fána.« — Ut af tillögu þeirri, sem ráð- herra íslands hafði borið fram, fórust forsætisráðherra Dana þann- ig orð: »í samræmi við það, er eg sagði í ríkisváði 22. nóv 1914 um mál þaá er nú er aftur á ferð- inni, og af Dana hálfu ekki hafði verið búist við að aftur mundi fram borið, án þess að tillit sé tekið til þeirrar niðurstöðu sem þa varð, verð eg að halda fast við það, að málinu verði ekki skipað á þann hátt, er ráðherra íslands leggur til. Af hálfu Dana er það samt að segja, að þeir eru fúsir til, nú sem fyr, að semja um þau deiluatriði, sem fram koma um sambandið milli Dan- merkur og íslands.« Ráðherra íslands : »Af ástæðum þeim, sem eg hefi flutt fram, verð eg að halda fast við lillögu þá, er eg heíi borið hér fram. Og fari svo, að yðar hátign, eftir það sem fram er komið, vilji eigi fallast á tillögu mína, leyfi eg mér, lil skýr- ingar um hvernig þá muni vikja við, að láta þess getið, að þótt eg og samverkamenn mínir í ráðu- neyti íslands geri ekki synjuinna að fráfararefni, svo sem nú er á- statt, þá má ekki skilja það svo að vér leggjum eigi hina mestu áherzlu á framgang málsins. Og vér vitum það með vissu að Al- þingi mun ekki láta málið niður falla.« Hans hátign konungurinn sagði: »Eg get ekki fallist á tillögu þá, sem ráðherra íslands hefir borið fram, en eg vil bæta því við, að þegar islenzkar og danskar skoð- anir ekki samrýrnast, munu al- mennar samningaumleitanir í ein- hverju formi — heldur en aðtata eitt einstakt mál út úr — leiða til þess góða samkomulags, sem ætíð verður að vera grundvöliur sam- bandsins milli beggja landanna.« Stjórnarráðið. Yígvélap foinaidarímiar. Framb. Vökvar þeir, sem nú á dögum eru notaðir í ótriði til að kveikja i með, og eldsprengjur þær, sem lofttör láta detta niður á bæi og staði er á að kveikja í, eru til- tölulega nýuppfundin ráð til að vinna óvinunum tjón með elds- voða og brunum. En þetta á þó hvorttvegöja rót sína að rekja til fornaldanna — til elztu tíma mann- kynssogunnar. Hinn svonefndi »gríski eldur« (uppfundinn á 7. öld af Callinicus) var ákaflega eld- fimur vökvi, en hvernig hann var tilbúinn er mönnum ókunnugt um. Þessi vökvi var látinn í leir- ker og þeim svo þevtt með slöngvi- vélum inn á húsþök óvinaborg- anna, sem um var setið. Það er ekki lengra síðan en 1878, að tek- ið var einkaleyfi á aðferð til að sprauta eldfimum vökvum með loftþrýstingi. Enda heyrðu loft- geymar og sprautur, til þessarar notkunar, til öðrum hernaðarút- búnaði þeirra tíma. Að mestu leyti var þetta áhald þó notað í sjóhernum, og voru bygðar undir það sérstakar, eimknúðar fleytur, eða þá að tundurbátar höfðu það innanborðs. Með þessum áheld- um var hægt að sprauta vökva þessum ofan yfir þiljur óvinaskip- anna á 300 feta færi, þar sem svo kviknaði í honum af skothrið sjálfra skipverja, eða einhverju lítilfjörlegu atviki, því ekki þurfti nema örlítinn neista til þess að hleypa öllu í bál og brand, eða þá að tundurörfum eða flugeld- um var skotið með til að kveikja í vökvanum, ef mönnum þótti tvísýnt um að kvikna mundi í af völdum óvinanna sjálfra. Á miiöldunum voru svölur og fleiri fuglar, sem hreiður eiga á húsþökum, látnir kveikja í á þann hátt, að fest var eitthvert brenn- andi efni við fuglinn, en hann, eins og gefur að skilja, leitaði til hreiðursins. og kvihnaði þá í þak- inu. Einnig sættu hundar, kettir, rottur og fleiri dýr sömu þræla- meðíerðinni, til þess að þau or- sökuðu eldsvoða í byggingum þeim og húsum, er þau flýðu inn í til að leitá sér skýlis þegar þau voru látin laus. Á níundu öld báru riddarar logandi kyndla á lensum sinum og spjótum. Voru kyndlar þessir oft af fáránlegri gerð, oft í dreka líki, þar sem loginn stóð út úr gapandi gin- inu. Og á fimtándu öld skutu krossbogaskyttur venjulega tundur- ^öi'vum. Hin svonefndu íkveikjuskip voru viðhöfð um langan aldur, alt frá 190 f. K., þegar Rhodesbúar reyndu að kveikja í óvinaskipum með eldkötlum, sem þeir hengdu á langar stengur er stóðu fram úr slöfnam skipa þeirra — og þang- að til 1809, að Cochrane lávarður réðist á Frakka með eldskipunsm í Biskaya-flóanum. Þrjú af eld- ^kipum þessum voiu fýít af púð- ur- og sandtunnum, sem huldar

x

Austri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Austri
https://timarit.is/publication/141

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.