Stefnir - 16.04.1894, Blaðsíða 3

Stefnir - 16.04.1894, Blaðsíða 3
1894 S T E P N I R. 31 Kaupskipið »Rósa« liom liingað 14. p. m. með alls- konar vörur til Gránufjelagsins. Influenzan er nú sögð alveg liorfin af Aus'urlandi, en liefir síðan geysað um Suðurland, og var, er póstur fór úr Rvík siðast, komin norður í Borgarfjörð. í Rvík liom hún fyrir miðjan f m., og 6ð par yfir bæinn á fáum dögum. Hjer um hil enginn maður sleppur hjá henni, en legst ljett á suma, en á suma pungt, og verður mörgum manni að bana, helzt gömlu og heilsutæpu fólki og peim, sem óvarlega fara með sig. I mörgum húsum í Rvík lagðist allt fólk I einu, og skóluin varð að loka undir hálfan mánuð. I Garðsprestakalli er sagt að staðið haíi uppi 15 lík í einu. Mannalát og slysfarir. Nýlega er dáinn í Rvík merkismaðurinn fyrrum sýslumaður E. Briem, á 83. aldursári. Dáin er og þórunn Jónsdóttir, húsfrú J»órarins prófasts Böðvarssonar í Görðum, rúmlega sjötug að aldri; ennfremur frú íngileif Melsteð, ekkja Páls Melsteðs amtmanns, 83. ára gömul, móðir Hallgríms Mel- steðs landsbókavarðar, Jón Guðnason fyrrum kaupm. í Rvík, og fröken Jóhanna Havsteen dóttir Havsteens sál. amtmanns og frú Kristjönu, 26 ára gömul, efnileg stúlka og vel að sjer. í fyrra mánuði drukknaði í Norðurá ofan um ís póst- urinn, sem gengur milli Hjarðarholts og Stykkishólms, pá á póstferð. Hestarnir, sem hann hafði, komust lifs af, og sagt er að ekkert hafi glatazt af póstflutningnum. þjófnaður. Peningabrjef með 400 kr. tapaðist á Stað í Hrútafirði í vetur. Rannsókn hefir verið gjörð, en ekki sannazt enn hver valdur er að hvarfinu. Tvo agenta frá Manitobastjórn eigum við að liafa hjer í sutnar, Magnús Paulson og Sigtrygg Jónasson. Helgafeilsprestakall er veitt sjera Sig. Gunnarssyni á Valpjófsstað. Amtmannsembættið norðan og austan er veitt i Lárusi Blöndal, sýsluinanni Húnvetninga. Heiðursmerki. Riddari af dbroge er gjörður upp- gjafaprestuiinn Jakob Benediktsson á Glaumbæ i Skaga- firði. og dannebiogsmenn Helgi Helgason kaupm. i Rvík og Jónas Gunnlögsson á þrastarhóli í Eyjafjarðarsýslu. Með komu gufuskipanna var kornvara hjá kaupmönnum á Akureyri sett niðurí: rúgur 772 eyri, rúgmjö) með poka 8l/2 eyri, bankabygg 10 02 11 a. eptir gæðum, baunir 11 a. og lirísgrjón 12 a. pd. Svo mun og sykur hafa lækkað að minnsta kosti niður í 35 a. og róltóbak í 1,50 a. Uiii aðrar prísabreytingar liöfum vjer ekki heyrt getið. — t pann 23. okt. 1893 andaðist í Garðsvík á Svalbarðs- barðsströnd merkiskonan Kristin Siqriður Jbnsdbttir^ bónda .Tónssonar og Guðrúnar Magnúsdóttur. Kristín sál. var fædd á Minnibrekku i í’ljótum 14. ágúst 1835. Árið 1849 fluttist hún að Höfða í Höfðahverfi til merkisprestsins sjera Ólafs þorleifssonar frænda síns; dvaldi bún par pangað til hún giptist 8. okt. 1867 Halldóri Jóhannessyni skipa- smið á Svinárnesi. þau hjón byrjuðu búskap á eiguar- jörð sinni Grímsnesi vorið 1874, en fluttu paðan vorið 1889 að Jnirustöðum og paðan 3ptur 1892 að Garðsvík. þau eignuðust 1 dóttur, er dó ung, og 2 sonu; annar peirra býr nú á Giímsnesi, en liinn dvelur með föður sínum. — Seinni hluta æfinnar pjáðist Kristín sál. af brjóstveiki, er varð dauðamein hennar. Hún var ástrik eiginkona, umhvugjusöm inóðir börnum síuum og fóstur- börnum, ráðdeildarsöm og nærgætin húsmóðir, greiðvikin og velgjórðasöm \ið hina purfandi; hennar er því sárt saknað, ekki eiuungis af vandamönnum, heldur einnig öllum, er hana pekktu. — Kjiirþingo Kunnugt gjörist, að samkvæmt opnu brjefi 29. septbr. f. á. verður kjörping haldið á Akureyri mánudaginn pann 4 júní uæstk. kl, 11 f. h., til pess að kjósa 2 alpingis- menn fyrir Eyjafjarðarsýslu og Akureyri fyrir næsta 6 ára tiinabil Skrifstofu Eyjaíjarðarsýslu 7. apríl 1694. Kl. Jónsson. 16 „leyndarmál, sem snertir sjálfan yður, ef pjer eruð sonur markíans af San Flóridíó, eins og pjer segið“. „Jeg hefi sagt pað og segi pað enn, að jeg er Don Ferdínand, greifi af San Flóridíó, einkaerfingi rettarinnar". „Gangið að altarinu og sverjið við krossmarkið, að pað sje satt“. — Ferdínand gerði svo. „það er gott“, sagði hinn særði, „kom nú liingað og takið við pessum lykli, herra greifi“. Greifinn gekk til hans og tók við lykli af hon- um; en hann fann strax, að pað var ekki lykill- inn að leynidyrunum. Hann spurði hvað liann ætti að gera með hann. ,.J>jer farið til Carletíni11, svaraði liinn deyjandi, „og spyrjið eptir húsi Gaetanó Cantarellós; par verðið pjer að fara inn aleinn — aleinn, munið pjer pað? I svefnherberginu mínu finnið pjer við fóta- gafiinn á rúminu mínu ferskeytt lok, og er dreginn á pað kross; undir pessu loki munuð pjer finna stokk nieð 60,000 dúkötum í; pá skuluð pjer taka, pvi að pjer eigið pá“. „Hvaða lýgi cr petta?“ svaraði greifinn, „pekki jeg yður? Haldið pjer að jeg vilji erfa yður?“ „þjer eigið pessa 60,000 dúkata, herra greifi; peiin var stolið frá honum föðurbróður yðar, markíanum nf San Flót idíó í Alessína; jeg, Gaetanó Cantarelló Pjónninn hans, stal peim; peir eru enginn arfur; pað er yðar eign, sem pjer fáið aptur“. 13 ú meðan hann var burtu, og vera niðri í hvelf- inguuum Nú var honum alvara raeð að bíða alls, enda brast hann ckki áræði; hann athugaði vel pístólur sínar og gætti að hvort sverðið ljeki laust í skeiðunum, og beið svo átekta; en í pessuru svifunum opnaðist liurðin, og Don Ferdínand stóð augliti til auglitis frammi fyrir hinum ókunna manni. Báðir hrukku snöggvast undan er peir sáu hvor annan; maðurinn með kápuna sá pá, að petta var aðeins hálfvaxinn drengur, og koin pá hæðnisbros á varir hans. Don Ferdínand sá petta bros, og ein- setti sjer að sýna honum, að hann væri karlmaður. „Hver eruð pjer, herra minn?“ spurði Don Ferdínand, „og hvað eruð pjer að gera hjer í kap- ellunni um pennan tíma nætur?“ „Hvað eruð pjer sjálfur hjer að gera, drengur minn“, svaraði kápumaðurinn hæðilega, ,.og hver eruð pjer, som dirfizt að tala svo rembilega við mig?“ „Jeg er Don Ferdínand, sonur markíans af San Flóridió og mín ætt á pessa kapellu“. „Don Ferdínand, sanur markíans af San Flóri- díó!“ sagði kápumaðurinn undrandi, „og pvi eruð pjer hjer á pessum tímá ?“ ,.þ>jer gleymið, að pað er mitt að spyrja; pví cruð pjer hjer?“ „það er leyndarmál, ungi herra, sem jeg verð að geyma sjálfur; pað snertir mig einn“, svaraði

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/146

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.