Stefnir - 31.10.1900, Side 1
Verð á 24 örkum er 2 kr., erlendis
2 kr. 50 au. Borgist fyrir 1. ágúst.
Uppsögn ógild, uema komin sje til út-
gofanda 1. október.
STEFNIR.
r
Attundi árgangur.
Auglýsingar kosta eina krónu liyer
þumlungur dálks á fyrstu síðu, ann-
ars staðar í blaðinu 75 aura. Smá-
auglýsingar borgist fyrirfram.
19. blað. AhUiŒYtíl, 31. okt. 1900.
Biðjið ætíð iiin
Otto Mensteds
danska smjorlíki,
sem er alveg eins notadrjúgt og bragðgott og sinjör.
Vt:rks!niðjnn er hin elzta og stærsta í Danmörku, og býr til óefab liina beztu vöru
og ódvrustu í samanburði við gæðin.
Fæst bjá kaupmönnunura.
kaupir dú í lianst verslunarstj.
§ol). gíiriflatöcn Ákureyri.
Herra ritstjóri!
Af því að jeg get búist við því, og heti
meira að segja orðið þess var, að ýmsar mis-
sagnir og rangfærslur eiga sjer stað, um brak-
farir fjártökuskipsins »Bear« — sem þýðir
Björn—- af Eyjafirði í næstl. mánuði, er jeg
að hugsa um, að biðja yðuv um pláss fyrir
nokkrar línur í yðar heiðraða blaði.
Eins og alkunnugt er, hafði fje því, er
þetta fyrsta skip átti að taka, verið lofað 16.
sept. s. 1. og Z. & V. höfðu lofað, að skip
skyldi þá vera komið, til að taka fjeö. Menn
voru því orðnir langeygðir þá er skipið kom
eigi að kvöldi þess 16., því að allt fjeð var
til þann 15., reiðubúið til framskipunar. —
f»ann 17. s. m. kom skipið um miðjan dag.
Að morgni hins 18. voru fyrst reknar í skip-
ið 389 kindur á Oddeyri; þaðan haldið rak-
leiðis að Svalbarði og þar iiutt fram á bát-
um 2080 fjár, sem gekk bæði fljótt og vel,
enda heppnaðist vel mcð veður.
Að skipið kom seinna, en áætlað var,
kom til af því, að það hreppti stöðugan mót-
byr á leiðinni og dimmviðri hingað upp til
Sandsins, en lagði Frá Liverpool á ákveðnum
t,íma; umboðsmennirnir verða því ekki að
neinu leyti sakaðir um þenna drátt.
Frá Svalbarðseyri var lagt á stað kl. 6
að kvöldi þess 18. með 2469 kindur innan-
borðs. Á skipinu voru alls 24 menn, þar af
c2 íslendingar. Veður var Ijótt og*ískýggilegt,
og ioptvogin stóð illa. Út að Hrísey gekk allt
saman vel og skipið reif sig áfram, en |iá fór
strax að koma talsverð hvika. Um nóttina
gekk í norðvestan garð og í fjarðarmynninu
var kominn haugasjór. Samt var haldið áfram
austur með, enda er ekki um annað að gera,
en halda áfram með þannig lagaðan farm,
þar sem jafn löng leið er fyrir höndum.
Um nóttina gekk allt stórslysalaust, þó
drápust þá stvax um 20 kindur, sem bæði
tróðust undir og köfnuðu. Er það eptir minni
skoðun mjög óheillavænlegt fyrir þessi sldp,
þá er þau fá vont strax í byrjun, meðan fjeð
er með öllu övant þeim miklu umskiptum, er
það verður fyrir, enda ætíð fyrst í stað þrengst
á því, meðan kviðrúmið ekki minnkar.
Daginn eptir hinn 19. .gekk allt vel; þá
var að vísu talsverður stormur, en ekki svo
mjög til fyrirstöðu. Um kvöldið var komið
suður fyrir Seyðisfjörð. En aldrei minnist jeg
að hafa sjeð jafn ískyggilegt lopt, eins og það
kvöld.
Um morguninn hinn 20. frá kl. 5—6
kom hinn mikli fellibylur á okkur, sem menn
bjer á Eyjafirði og öllu íslandi muna eptir,
og gleyma varla alla sína æfi. þ>á varð Ægir
ófrýnilegur. Stórsjórinn varð svo að segja á
svipstundu voðalegur, en þó kvað meira að
rokinu, sem þyrlaði Ölduhnyklunum yfir skip-
ið. Seglin rifnuðu eins og þunnt Ijerept, segl-
in, sem leiða loptstrauminn niður í lúkurnar,
táðust í sundur eins og kveikur, kaðlar slitn-
uðu sumir, hástokkuiinn stjórborða brotnaði
á parti, stýrið á stjórnarpallinum bilaði fljót-
lega, svo ekki var hægt að nota það; sömul.
bilaði stýrið aptur á, svo alllengi var verið
að klastra í það til bráðabyrgða. Rjettirnar
á þilfarinu flestallar brotnuðu hvað af liverju
og lúkunum á skipinu var lokað, svo að skip-
ið ekki fylltist. Leki kom á gafiinn á skip-
inu, svo að úr káetunni var vatni ausið í 4
dægur, en við hann' varð gert ú laugardag.—
Skipið liallaðist óttalega bæði afþví, að veðr-
ið fleigði því svo mjög á hliðina, og svo
sentist fjeð í hljeboröið eins í öllu skipinu.
Sjórinn í skipinu var mikill, maskínan gat
svo sem ekkert gert, og ekki var heldur hægt
að pumpa. Skipið ljet ógurlega illa og öllu
mögul. ægði saman á dekkinu, því ekki varð
við neitt ráðið.
1 þessum ósköpum var það tekið til bragðs,
að ryðja fjenu bæði lifandi og dauðu. Yar
það þvílík sjón, að jeg get ekki lýst henni.
Veðrið (fellibylurinn) stóð um 12 tíma,
en versta drif og stórsjó fengum við einlægt
fram á laugardag, þá fór að slota. Á sunnu-
daginn vífr þó aptur versta veður.
Inn til Stornoway komum við á mánu-
dag, liinn 24. sept. kl. 4'/2; höfðum þá ver-
ið 142 ‘/2 klst. frá Svalbarðseyri, eða rjettum
12 tímum lengur, en »Gwent« var í fyrra
alla leið til Liverpool. f>ar vorum við þangað
til á sunnudag kl. 10. Var þá gert að skip-
inu, eins og hægt var, dauðu fje, sem eptir
var niður á botni, rýmt frá, ýmislegt lagað
og fjenu, sem eptir lifði, hagvætt eins og bezt
var hægt og geíið nóg hey og vatn.
Til Liverpool komum við 2. okt. á þriðju-
dag eptir svo að segja hrtlfsmánaðar útivist,
að meðtalinni dvölinni í Stornoway. þ>á lifðu
eptir 555 kindur, en 1914 hafði Ægir heimt
í sitt skaut. Margt af því Ije, sem eptir
lifði, var óskiljanlega hresst pptir allt þetta
volk, en vitanlega hafði það ógurlega mikið
lagt af.
Hvort fjeð fæst borgað, eða að hve miklu
leyti, skal jeg ekki um segja, en þó voru um-
boðsmennirnir vongóðir um, að töluvert hefð-
ist. J>að sýnist líka vera hneykslanlegur ó-
rjettur, að fá ekki fjeð borgað, þar sem því
var fleigt. út lifandi og dauðu til þess að
reyna að frelsa skip og menn, ef þess væri
kostur.
Jeg skal taka fram, að eptir því sem jeg veit
sannast og rjettast, mun liafa verið rutt út,
að minnsta kosti .10—12 hundruðum lifandi
fjár; hitt drapst alla vega, kafnaði, rotaðist,
limlestist, dróst upp o. s. frv.
Fjárflutningar á hinum skipunum, sem
jeg vissi um, gekk mikið vel. »Constantín«
var búinn að gera tvær ferðir með fullfermi
og hafði aðeins misst 4 kindur, og »Angelus«
missti eina kind í sinni fyrstu ferð. Fleiri
farmar voru ekki komnir til Liverpool þá er
jeg fór þaðan 9 þ. m. með »Constantín« til
Borðeyrar, sem sótti þangað sinn 3. farm.
Kjötverðið á því fje, sem Z. V. selja fyr-
ir kaupfjelögin og kaupmenn er 5 3/4 pence
fyrir enskt pund, það er sama og 431/8 eyris.
Fyrir danskt pund lætur þá nærri 47 aurar.
Eftir þessu gerir 40 punda kroppur — það er
40 pd. ensk — 17, 25 kr.; hjer frádragastþó
3 ponce — þ. e. 221/2 eyrir — af hverjum
kropp til þess sem kaupir.
Hvað nettóverðið verður, get jeg ekki sagt
um, því að kostnaðarreikningar voru allir d^
uppgerðir.
I>á er jeg fór frá Liverpool, var »Bear«
á þurru landi og verið að gera að honum.
Var hann þá óneitanlega miklu rólegri en í
garðinum. Svo átti skipið að fara eptir fje
til Reykjavíkur, en þann fjárfarm, sem það