Stefnir - 07.11.1900, Síða 2
80
an klæddir venjulegum klæðningsborðum, en
milli þeirra og grindar er klætt með asfalt-
pappa, í miðja grindina er felld borðaklæðn-
ing, og veggirnir því næst klæddir innan með
venjulegum innanþiljuskífum, en milli þeirra
og borðanna í grindinni er þjett troðið mosa.
Gluggar allir í stofunum tvöfaldir og stærð
glugganna á hverri stofu sem næst l/6 á móti
gólffleti.
Skilrúm öll í húsinu eru tvöföld og
þjett troðið mosa milli þilja, stoðir og bind-
ingar í þeim úr 3x3 þuml. trjám. Berst
ldjóð því iítt í gegn um þau, nje hiti og kuldi.
Hurðir eru úr 2 þuml. plönkum og
eikarmálaðar.
Lopt er tvöfallt. Loptbitar úr gildum
14 álna trjám með 1J/2 al. millibili, klæddir
ofan með veujulegum gólfborðum, en neðan á
þiljað með skífuklæðning.
í>ak úr venjulegum borðum, blinding-
uðum saman, klætt með dönskum þakpappa
og bikað og sandborið.
Ofnar og loptpípur í kennsiustofun-
um eru hinar fullkomnustu, sem eru til hjer
í bæ og efasamt að upphitun og loptbreyt-
ing sje í eins góðu lagi í hinum nýja barna-
skóla í Beykjavík, eins og er í skóla þessum.
Ofnarnir eru stórir og vandaðir kápuofnar,
sem allstaðar þykja sjálfsagðir í skólum, þar
sem ofnahitun á annað borð á sjer stað.
Standa þeir fast við skilrúmið milli gangs-
ins og kennslustofanna, og eru eldstæðisdyr
ofnanna gegn um skilrúmið, svo að iagt er
í þá á ganginum og askan þar úr þeim tek-
in. fylgir þessu sá mikli kostur, að ekkert
ryk kemur í stofuna við ílagning eða hreins-
un ofnanna, heldur eigi draga þeir lífslopt úr
stofunum til brennslunnar. Undir gólfi stof-
anna liggja víðar loptpípur að utan upp
undir ofnana, streymir inn um þær nýtt lopt
og hitnar við ofnana, því það verður að fara
gegn um þá upp með kápunni, og svo gýs
það út í stofurnar upp við lopt, en jafnhliða
dregur loptpípa í reykháfnum þyngra lopt frá
gólfinu út úr húsinu, verður þannig stöðug
loptbrevting í stofunum, þegar lagt er í ofnana.
Vatnsleiðsla og þægindi. Skammt
fvrir ofan húsið í brekkunni er lítil uppsprettu-
lind, þaðan hefir vatn verið leitt í járnpípu
inn í kjallarann og upp á skólaganginn, eru
á ganginum þrjú þvottaföt fyrir börnin, sem
vatnsþípurnar liggja að, en frá þeim liggja
skólprennur úr járni niður um kjallaragólfið
og fram fyrir veg.
Skólabúsbygging þessi er einhvert stærsta
og dýrasta lyrirtæki, sem þetta bæjarfjelag
befir ráðist í, en efalaust jafnframt eitt hið
þarfasta, þótt fyrirtækið gefi eigi af sjer bein-
an peningalegan arð, sem borgi höfuðstól og
vexti. pað er öllum Ijóst, hversu mikill kost-
ur það er, þegar kenna skal saman mörgum
börnum að geta skipt þeim í deildir eptir
aldri og kunnáttu, en |iurfa eigi að skipta
þeim eptir heimilisfangi þeirra. Með þessu er
og girt fvrir krit í bænum, að á einum stað
sje hlynnt meira að barnafræðslunni en öðr-
um, og eyðir þannig tortryggni og undirróðri
í því efni; nóg mun eptir samt, og varla
munu öll sund enn lokuð í því efni, eins og
sumir luinna að halda.
Mý bók.
G u ð m. G u ð m u n d ss o n: Ljóðmæli.
Beykjavík. 1300. 192 bls. kr. 2,50.
íslendingar ætla að klykkja út öldina með
Ijóðum; það hafa að minnsta kosti fimm
komið út, kvæðabækurnar, þetta árið, þrjár
eptir innlenda íslendinga, og tvær vestan um
haf, þó að þær sjeu prentaðar hjer. Bók þessi
er eptir bráðungan höfund, enda þótt hann
sje þegar orðinn allþekktur um land allt af
kvæðum sínum, sem staðið hafa í blöðum;
liann er ekki nema rúmlega hálfþrítugur, og
mætti því ætla, að nokkur unggæðisbragur
væri á bókinni; en svo er ekki; það er meira
að segja of lítið af því tagi. Um helmingur
bókarinnar eru tveir sögukvæðaflokkar: H a fs -
ins börn og Sigrún í Hvammi, og þykir
mjer hinn fyrri hafa tekist betur, þrátt fyrir
alla þá rómantík, sevn í þeim kvæðum felst,
og minnir mann ósjáifrátt á þýzkan kveðskap
á fyrsta þriðjungi þessarar aldar; en þess hef-
ir líkl. skáldið ekki ætlast til. Síðari kafl-
arnir eru ættjarðarljóð, ástarljóð, og síðast
Mislit blöð, kvæði ýmislegs efnis. £>að er
þrennt, sem bók þessi talar um, og varla ann-
aðu ástir, hafið og ísland, beitar og ó-
gæfusamar ástir, alveldi og dulardjúp hafsins,
sem ómar svo samróma við þrár og hjartslátt
skáldsins, og landið, sem hefir fætt hann og
nært á brjóstum sjer. Óneitanlega finnst
mjer þó ættjarðarkvæðin einna sízt, en í ásta-
kvæðunum þrífur liann opt svo fallega skeið-
spretti, að vandi er að gera það öllu betur, t.
d. »allt eða ekkert«, nlokkurinnn, »gullmur-
an« o. fl. En í öllum eða flestum þessum
ljóðum rennur undirstraumur, þungur og dapr-
andi, af sorg og vonbrigðum, og allir sögu-
viðburðir í Ijóðum hans enda á hörmung og
dauða; og þá er hafið, hið volduga, dular-
fullo baf, sem hann flýr til. Á því bæði
byrjar hann og endar bókina. Sumt af þeim
kvæðum er Ijómandi fallegt, t. d. »alda mín«
(bls. 56), og ekki dettur honum í hug, að
byrja á öðru en hafinu í fallegu vísunum:
»Taktu sorg mína, svala haf«, ssm er eitt
með fegurstu sorgarljóðum, sem jeg hefi lesið.
Einstöku kvæði eru aptur til í bókinni, sem
helzt hefðu átt að vanta þar, því að þau ó-
prýða hana, t. d. »pingset,ning í Áradal.«
En þau eru sárfá. »Anadyomene« er einstakt
að efni í bókinni; þar er margt vel sagt, en
margt af því hefir verið sagt áður á svipað-
an hátt.
Formið er lipurt og Ijett, og margt nýtt
í bragarháttum; það er mikil hagmælska í
kvæðunum.
Óskandi væri að kver þetta gengi vel út,
það er ekki illa varið þeim tíma, sem varið
er til að lesa Ijóð skáldsins. En citt er jeg
hræddur um, að verði bókinni heldur til fyr-
irstöðu: það, að hún er heldur dýr.
Mynd höfundarins fvlgir bókinni, en er
ekki vel góð. J.
Drukknnn.
Á fimmtudaginn 1. þ. m. vildi það sorg-
lega slys til, að maður drukknaði í tjörninní
á Hjalteyri. ís var á tjörninni, en ótraustur,
enda var hláka um daginn. Hann hafði farið
að leika sjer á skáutum, en ísinn brast nið-
nr undan fótum hans ytst á tjörninni, firrst
húsunum. Eigi vita menn, hve lengi liann
hefir haldið sjer á floti í vökinni, en að lok-
um heyrðust óp lians úr ytsta húsinn á eyr-
inni. Hljóp þá maður þaðan með stafihendi;
sá lieitir Tryggvi; en hann fór sjálfur á kaf,
er hann var kominn spöl út á tjörnina. Yarð
honum brátt mannhjálp, en hinn var þá sokk-
inn. — Maður þessi hjet Jóh. Jón Vilhelm
Möller, sonur Óla Möllers kaupm. á Hjalteyri,
fullra 22 ára gamall (f. 27. okt. 1878), vand-
aður piltur og vinsæll af öllum, er kynnt-
ust lionum, gætinn og góðlyndur.
Riddarakrossi Dannebrogsorðunnar hafa
þeir konsúlarnir verið sæmdir, Jón Vídalínog
Jakob V. Havsteen.
Snjólaust og góðviðri hefir verið nú í
hálfan mánuð að undanförnu.
Sildarafli í net lítill á Eyjafirði að und-
anförnu. Vel fiskivart innst á firðinum þessa
dagana.
Sjónieiki hafa nokkrir menn úr Saur-
bæjarhreppi haldið hjer í bænum nokkur kvöld,
hafa leikið Sigríði Eyjafjarðarsól og eitthvað
eptir Tómas heitinn á Hróarsstöðum. f>ykir
lítið til koma, enda verið illa sótt sumt.
Innbrot var gjört eina nóttina í búð hjer
í bænum, mölvuð rúða til þess að ná vín-
flösku, sem inni fvrir var.
Rjúpur hafa verið skotnar með meira
móti í haust, og margar þúsundir fluttar út
af Eyjafirði. Vérðið er bjer 18—25 aurar.
Ný lögreglusamþykkt fyrir Akureyrar-
kaupstað kom í gildi fyrsta október í haust;
er hún svipuð þeirri eldri, þó nokkuð ítar-
legri. Nú eru teldn af öll tvímæli með það,
að ekki má ríða hart milli Akureyrar og Odd-
eyrar, eða neinstaðar í bænum, er telst al-
mannafæri; verður ef 'til vill farið nokkrum
orðum um samþykkt þessa síðaríblaði þessti.
Till de Döve. — En rig Damo, som or ble-
vet helbredet for Dövhed og öresusen ved Hjælp
af Dr. Nicholsons kunstige Trommehioder, har
skanket hans Iustitut 20,000 Kr., for at fattige
Döve, som ikke kunne k.jöbe disse Trommehindcr,
kunne faa dem uden Betaling. Skriv til: Institut
„Loiigrcott11, Giiiiiiershury, London, IV., Eng-liuid.
Moö.
Anna: »Maðurinn, sem stendur þarna
á götunni, er sá sami, sem jeg var með i
gær. Hann er fjarskalega leiðinlegur, og þar á
ofan er hann svo makalaust hringfættur.«
María: »En góði guð, það er kærast-
inn minn.
A.: »þ>essu get jeg vel trúað. Hann er
þá Iíka heimskur.«
Dómarinn: Kannist þjer við að liafa
kallað kæranda þorsk og hálfvita ?«
Kærði: (reynir að grufla) Svei mjer, ef
jeg get munað það. en [iví betur seln jeg
virði þennan berra fyrir mjer, því líklegra
þykir mjer, að jeg hafi gjört það.