Stefnir - 13.07.1901, Page 3
63
tckist á hendur að gangast fyrir |tess konar
ferðum síðustu árin og verið hjer á liverju
sumri.
Eptir slysið hvarf ferðafólkið aptur til
Akureyrar, og lagði af stað heimleiðis með
“Geresn.
Eigur Houwels hefir skiptarjetturinn hjer
til umsjónar og skrifað upp og virt, eru það
13 hestar, reiðfæri og allskonar útbúnaður til
landferðalags, niðursoðinn matur o. fl.
Norður!
Tilei nkað Eyfirðingtnn.
—»:« —
Er sumarnóttin blessuð breiðir sig
á brunir fjalla’ og daggvot glóir jörðin,
jeg get ekki að því gert, þá langar mig
a gamlar slóðir, norð’r j Eyjafj örðinn.
3e& 'ildi gjarnan sólarroðann sjá,
er sveiPar gulli ytsta norðurhjara
ög glitar röðuls rekkjutjöldin blá
og reynir ekki skartið sitt að spara.
3eg \ildi að mínar leiðir lægju þar,
sem Ijósgræn nes í fjörðinn arma teygja,
ollinn sjá, þar sævardísirnar
sumrin kveða ijöðin sín og deyja.
Jog Vildi feginn Akureyri sjá, —
l>ai átti eg glaðar stundir mörgu sinni.
‘jI1 jeg verð bara’ að hugsa’ um þetta’ og þrá,
er þögull kveð jeg ]jóð í hvílu minni! —
^eg sakna margs og margra,— en sleppum því:
Jeg mun ei bera lof á vini neina;
en minning þess e,r hjartanlega hlý,
set» hollast var, er þurfti á að reyna.
J>að var ljótt að sjá.
Já, víst var það Ijótt, sem jeg sá, og skal
jeg nú segja satt og rjett frá öllu. Jeg var
við vinnu bakvið húsið mitt, og sá því ekki
hvað gerðist á veginum, sem liggur út og
suður meðfram túnunum á Oddeyri. Allt í
einu segir einhver: »Nei, lítið þið bara á!
þarna koma margir menn með fjölda af hest-
um.« Jeg mundi fara að sjá þetta. Jú, það
var ferðafólk: sumt reið á undan lestinni, og
aðalfylgdarmaðurinn var í þeim hóp. Tveir
liesta-sveinar ráku frá 20—30 hesta á eptir.
þegar fremstu hestarnir komu inn að sjónum
efst í Strandgötu, hlupu þeir fram í fjöru og
vildu drekka, en þá reið önnur lietjan fram
fyrir þá og lamdi þá frá sjónum. þetta gekk
nokkra stund, því allt af fjölguðu hestarnir,
sem vildu drekka, en því harðara reið lietjan
aptur og fram með sjónum, til þess að sýna
frækleik sinn, hvað fast hann gæti barið hest-
ana um höfuðið, og svo vann hann að lokum
sigur. Jeg beið til þess að sjá, hver þessi
náungi væri, sem væri svona æfður í að hitta
hvað eptir annað höfuðin á hestunum með
pískólinni (því til þess þarf talsverða innvort-
is æfingu, þótt handaburðurinn lærist fljótt),
Jeg þekkti ekki manninn, hann var held jeg
ekki hjer úr Eyjafirði; atferli hans gaf í skyn,
hvar hann hefði lært íþrótt sína.
Segjum nú svo, að hestarnir hefðu ekk-
ert gott haft af því, að drekka úr sjónum,
en græðgi þeirra í sjóinn sýndi glöggt, að
þeir höfðu ekki fengið að drekka úr Glerá,
sem rennur hjer fáa faðma norðan við bæinn.
Eitt er víst, að sá, sem ferðinni rjeði og
riðinn var á undan, hefði ekki látið þetta
viðgangast.
Akureyri, 10. júlí 1901.
Magnús Einarsson.
3fig veit, að þar er ekkert, ekkert breytt,
etl —æ, því miður— slíkt er fágæt sagí
g blessi drottinn hjarta hvert og eitt,
sem heldur sömu tryggð til ellidaga! —
vildi fús þar sitja’ á brekkubrún,
legður dagur lit við komu nætur,
h siá Í Ijarlægð sumarbúin tún,
°r siiiut'tárum litla blómið grætur.
he\ra nið, er lækir bregða’ á leik
1 .J.ettuni sPrettum niður Vaðlaheiði:
g ®J 0r sruáar hárur koma’ á kreik
r0lsta brjósti vini’ að runnu skei
Jlfri tjr,1, 'Sv“iansi'|,s iif,ið sie"»sk,m
g,,ni |,ar 4
h ? H f h"8sl' « -jer svo tar
" ll0ní «‘i Þangað eigi.
Svo fljúg þú _ fljúgðn, únga, litla ,j69
Ijúfa hjartans kveðju' t E,jaf|ilrði„n
Au vakir nóttin mjúk og mild 0«r m
n ffieiíar hljóð í úöabaði jörðin._°
’ Guðnj. Guðmundsson.
Nýprentað rit á Akureyri
um íshús og beitugeymslu eptir Isak Jónsson
með formála eptir Fál Briem.
Itit þetta er 2‘/2 örk á stærð og kostar
35 aura. það er bæði fróðlegt og skemmti-
legt að lesa, og ber vott um brennandi áhuga
höfundarins á þessu þarflega málefni, að koma
upp íshúsum bæði til að tryggja sjómönnum
beitu, og til að ísverja í matvæli, sem vel
gæti farið svo að innan skamms yrði góð
verslunarvara til útlanda, þegar vjer fáum skip
með frostklefum. Pjesi þessi er í 5 köflum
og er efni þeirra þetta:
I. Kafli: Tildrögin. Sjómennska á Aust-
fjörðum 1866—1875. Beituleysi. 2500 kr. í
Seyðisfirði. ískofi í Mjóaflrði. För til Ame-
ríku. íshús þar. Heimför til íslands.
II. Kafli: Viðtökur á íslandi. 5000 kr.
á einum degi. För til Reykjavíkur. ísliús á
Austfj. Skýrsla í ísaf. 26,250 kr gróði við
eitt íshús.
III. kafli: Alþingi íslendinga. Grein í
Bjarka. Eáðanautur sjómanna. Dýrt spaug.
Nauðsyn á frystikössum. Tvær sögur.
IV. Kafli: Beitutrygging. Forsjálu og
óforsjálu mennnirnir. Góð beitugeymsla flutn-
ingur frá einum stað á annan.
V. Kafli: Niðurlagsorð. pilskip með
síld til beitu og án hennar. 1690 kr. munur
á viku. Gróðafyrirtæki.
petta er nú í stuttu máli efnisyfirlitið,
en engum, sein langar að kynnast ritinu ná-
kvæmar, er ofætlun að komast yfir það.
Veðrátta. Einmuna tíð hefir verið síðan
snemma í fyrra mán., sífelld hlýviðri, sólskin
og stillingar lengst af, þó sunnanvindar og
regnskúrir að öðru hverju. Grasspretta mun
því vera í bezta lagi hjer norðan lands.
Fráfærur eru nú allstaðar um garð gengnar
til sveita hjer og sláttur víðast hvar byrjaður.
Barnaveikin slæma stingur sjer enn
niður í sveitum (Fnjóskadal, Eyjafirði, f>ela-
mnrk). Barkaskurð hefir Guðm. læknir
gjört á 3 eða 4 börnum nýlega, eitt af
þeim dó, lún lifa.
Horgárbrúin var alsmíðuð í fyrra mán-
uði og vígð 21. júní í viðurvist fjölda manna.
Brúin er komin upp á nokkuð á 19. þús.
kr. Er brú þessi' mikil samgöngubót fyrir
hinar þjettbyggðu sveitir vestan Eyjafjarðar.
Prestafundur stóð hjer 10.—12. þ. m.
Mættir voru 14 þjónandi prestar flestir úr
Eyjafjarðar og pingeyjarsýslu, 2 úr Húna-
vatnssýslu og 2 úr Skagafirði. Sra. Eyjólfur
á Staðarbakka hjelt ræðu í kirkjunni áður
fundur byrjaði. Fyrirlestra fluttu sra. Matth.
sra. Hjörleifur í Undirfelli og ef til vill fleiri.
Umræður á fundinum þóttu þeim, er á hlýddu
bæði fjörugar og fróðlegar.
Lítið þilskip, á að gizka 10—12 lestir
hefir kaupmaður J. Björnsson á Svalbarðseyri
keypt í Færeyjum, og sóttu sömu Norðmenn,
sem komu með kúttara Bergsteins kaupm.
Björnssonar, það fyrir stuttu.
Fiskiafli fyrirfarandi allgóður út hjá ÓI-
afsfirði, en illt um beitu og íshúsin þrotin
með freðna síld. Fiskiafli á þilskipin lítill
nema fyrstu ferðirnar.
Hákarlsafli í betra lagi á mörg skipin.
Ceres kom að sunnan 8. þ. m., með hon-
um var fjöldi farþegja, meðal annara konsúll
Havsteen með konu sína, er farið hafði snögga
ferð til Rvíkur, Sigurður barnakennari frá
Mýrarhúsum, sem kom í kynnisferð, fráAm-
eríku Geir Jónsson frá Hrigveri á Tjörnnesi,
alfarinn eptir 13 ára dvöl þar. — Með Ceres
fór hjeðan kaupmaður Chr. Jóhnason, amt-
maður Briein á amtráðsfund eysta, Davíð
Sigurðsson timburmaður austur í Múlas}íslur
til að ganga að eiga ungfrú pórdísi Stefáns-
dóttur prests Pjeturssonar, með honum fór
Hallgrímur bóndi á Rifkelsstöðum. — Með
Ceres fór allmargt af hestum bæði úr Skaga-
firði og hjeðan.
Marz fór með 80 hesta hjeðan til Eng-
lands fyrir Gránufjelagið, flestir þeirra voru
keyptir í Skagafirði.
TÍII de Döve. — En rig Dame, som er ble-
vet helbredet for Dövhe.d og Öresusen vei Hjrelp
af Dr. Nicholsons kunstige Trornmehinder, har
skanket hans Institut 20,000 Er., for at fattíge
Döve, som ikke kunne kjöbe disse Tromrnehinder,
kunne faa dem udeu Betaling. Skrivtil: lustitut
Longcott“, bruiiiicrshury, Loiidon, W., Euglund.