Öldin - 01.10.1894, Blaðsíða 2

Öldin - 01.10.1894, Blaðsíða 2
146 ÖLDIN því miður leyflr plássið oss ekki að taka hana orð fyrir orð. Það lýsir sér undir eins og menn renna augum yflr grein þessa, að höfundurinn þekkir út í hörgul allar íslenzkar bókment- ir, bæði að fornu og nýju. Hann byrjar á því, að minnast á Sæmundar Eddu, Snorra Eddu, Heimskringlu og fornsögurnar ís- lenzku, og getur þess um þær, að þær megi teljast til hinna stórkostlegustu meistara- verka, til hinna fullkomnustu listaverka í bókmentalegu tilliti, er nokkur þjóð hefir framleitt um allan aldur heimsins. Hann minnist á hrörnun bókmentanna íslenzku frá því um 1400, rímnakveðskapinn, sem fór að byrja á 1G. öld, þjóðsögurnar, sem menn svo smámsaman fóru að skrásetja, er hann segir að margar beri keim útlendra áhrifa, og loks segir hann að roði fyrir hinni nýju öld landsins við lok hinnar 18. aldar. Fyrstan telur hann þar Eggert Ólafs- son (1726—1768), sem hann segir að hafi verið alt þetta: skáld, héimspekingur, náttúrufræðingur, sagnfræðingur og mál- fræðingur. Kveður hann tákna námund hinna nýrri tíma og beina hinum íslenzka skáldskap nýja stigu. Getur hann svo þeirra Jóns Þorlákssonar (1744—1819), Sigurðar Péturssonar (1759—1827), Bcni- dikts Jónssonar Gröndals (1762—1825) og Magnúsar Stephensens (1762—1833), er hann segir, að hafl sýnt fegurð skáldskap- arins í náttúrlegri einfeldni og nálgast þannig þjóð sína til þess að fræða hana og hefja. Höfundur greinarinnar hefir fylgt svo vel með sögu landsins, að hann sér hvar fyrst roðar fyrir sólu. Það er í Kaup- mannahöfn hjá hinum ungu mentamönn- um íslands, er þangað hafa farið til náms. Þeir mynduðu félög, stofnuðu blöð og breiddu Ijós og menning um bygðir og bæi landsins frá þessari Aþenuborg Norður- landa. Fyrstan þeirra telur hann Bjarna Thorarensen, hið þróttmikla skáld, með á- kaflega sterku ímyndunarafli og andans fjöri. Hann hafi verið íslendingur frá hvirfli til ilja, tröllaukinn. f honum voru öll einkenni hinnar íslenzku þjóðar samein- uð, og því hafi hann einmitt haft jafnmikil áhrif á þjóð sína og hann hafði. líann hafi hvorki verið né viljað vera kennari þjóðar sinnar — hann hafl verið eitthvað æðra, fyrirmynd hennar, meistari hennar. í orð- um hans, í öllum gjörðum hans, í skáldskap hans og í hugsunum hans og tilflnningum gat þjóðin séð sig sjálfa sem í spegli væri. Þá kveður hann anda þjóðarinnar vakna, og þá hafl hin mestu listaverk rekið hvort annað. Þá byrjaði söguskáldskapur- inn, nokkuð ný stefna og frábrugðin hinni fyrri. Faðir söguskáldanna er hinn nafnfrægi Jónas IIallgrímsson (1807—1845), brag- snillingurinn all”a hinna nýrri íslenzku skálda. Hann skrifaði að eins smásögu eina og þó ekki nema brot eitt. En málið er svo lipurt og liðugt, svo óviðjafnanlega fagurt, og hver einsetninglýsirsvo skarpri sjón, svo göfugum og fögruni tilfinningum, að menn geta með réttu sagt, að cnginn hafl jafnast við hann hvorki fyr né síðar. “Grasaferðin”* er snilldarverk. í fá- einum samandregnum orðum getur hann meistaralega sagt það, er hann ætlar að segja. Það lilýtur að hrífa hvern og einn hvernig hann lýsir hinni lijartanlegu ást systkinanna þcgar þau eru að lcita grasa, hvernig hún lýsir sér í hveiju orði, liverju látbragði. Það er cins og sálir þeirraspegli sig í hverju atkvæði, og málið er svo yndis- lega einfalt, að lesarinn hlýtur að fylgja sögunni orð fyrir orð. I sögu þessari er ekki orði of eða van, þar er ekkert orð er lýti, ekkert orð er dragi úr Ijóma myndar þeirrar, er slcáldið dregur upp, þar er hvorki fordild eða tilgerð, ekkert æsandi, *) Að mestu þýdd á þyzku af Mag. Phil. C. Kuchler, 1891.

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.