Öldin - 01.05.1896, Blaðsíða 8

Öldin - 01.05.1896, Blaðsíða 8
72 ÖLDIN. me3 ]jvi sé ekki átt við bókina sjálfa, held- ur skáídskapinn og kenninguna sem hún ílytji, þar eð ijóðagerð hafi verið kunn löngujáðui’g en ' Edda var rituð. I sama streng scgir fyrirlesarinn að Konráð Gísla- son liafi tekið árið 1884-, I ritgerð í tíma- ritinu danska: “Aarböger for nordisk Oldkyndighed.” í þeirri ritgerð hafði prófessorinn reynt að sanna, málfræðislcga, að Edda gæti verið komin af “óður” og þýddi því eitt og hið sama og Danir ncfna “poetik.” Sumt af jþeim dæmum, er próf. Konráð tilfærði, dregur fyrirlesarinn fram, og sýnir á hve völtum fótum þau standa. Og frá málfræðislcgu sjónarmiði skoðað verður það niðurstaða fyrirlesarans, að til- gáta þeirra Árna og Konráðs gcti engan veginn staðist. Framsókn í uppfmdingum á síðustn 50 árnm. f tilefni af jþví að í síðastliðnum Júlí voru liðin 50 ár frá því liið merka fræði- blað, Scientific American, lióf göngu sína, buðu útgefcndur þcss 250 dollara verðlaun fyrir gagnorðnstu og að i'illu levti víðtækustu ritgerðina um framsókn í uppfindingum á síðustu 50 árum. Ritdóm- arar voru skipaðir, til að dæma um fram- boðin handrit, þeir: A. P. Greely, for- maður þeirrar stjórnardeildar í Washing- ton, er annast um einkaleyfi og útgáfu þeirra; R. H. Thurston, háskólakennari við Cornell háskóla og R. S. Woodward, háskólakennari við Columbia-háskólann. Höfundurinn sem verðlaunin hrepti, var Edward W. Byrn, A. 1W., í Washing- ton. Ritgerð hans var prentuð í 50 ára afmælisútgáfu “Scientific American,” með þeirri fyrirsögn sem er fyrir þessari grein. Vér setjum hér meginatriði þeirrar rit- gerðar í lauslegri þýðingu : [Verðlaunarit eftir “beta,”—E. W. Byrn, a. m., í Scientific American.] “Sé æfi mannsins talin sjötíu ár, má telja að fimtíu ár sýni þann tíma, er hann heíir full not hæfileika sinna. Og gamli öldungurinn, scm nú gefur sér tóm til að líta á alt sem á minnisspjald hans er skráð, hefir þá fágætu ánægju, að sjá eins og líða hjá sér í sögulegri heild hin mörgu atvik sem gerst hafa á þessu frjóvsama tímabili og sem hann annað tveggja þekti til eða hafði einhvcr afskifti af, átti einhvern þátt í. Ilvílfkur þó ógnageimur, hvílíkt útsýni blasir þá ekki við öldungnum, af þeirri sjónarhæð endurminninganna ? Því hvað snertir framför í uppfindingum og almennri framsókn, á þetta 50 ára tímabil ekki sinn maka í sögunni. Þetta tímabil hcfir meira að sýna en reglubundna, eðlilega fram- sókn. Það sýnir hamremmis átök og til- þrif, hugmyndaflng og úrræði, — svo jöt- unelfd, svo margbrotin, svo grunduð, svo frjósöm í aflciðingum og svo affarasæl, að hugsahfærum manns er ofboðið, er maður reynir að meta slíkt eins og má. Skörp- ustu hugsanfærin og hin mestu öfl nútíð- arinnar hafa gengið í orustu með anda og fjöri á þessu makalausa tímabili, og í þeirri sókn hafa verið unnin hin aðdáanlegu af- reksverk á meðal hinna dásamlegustu úr- ræða. Þrekvirki forn-manna eru að miklu leyti íólgin í minnismerkjum, sem sýnaað- dáanlega yðjusemi heilla herskara af mönn- um. Að vissu leyti líkjast þess vegna því- lík þrekvirki hinum mikilfenglegu störf- um kóraldýranna, eða öðrum slíkum. En þannig er því ekki varið með afreksverk nútíðarinnar. Þessi síðastliðna hálfa öld er í sannleika öld hugmyndanna og til- raunanna að vernda og viðhalda þrótti og þreki, með uppfindingum sem þéna til að framleiða vélar til vinnuléttis. Oft á einn einasti maður slíkar uppfindingar og líkjast þær því að nokkru leyti heilögu

x

Öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Öldin
https://timarit.is/publication/147

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.