Framsókn - 01.09.1900, Page 3

Framsókn - 01.09.1900, Page 3
35 og dökkeygð, einbeitt og fylgin sér og áköf í lund. Sigrún var ekki búin að vera lengi á skólanum, þegar skólastúlkurnar voru farnar að hvísla því sín á milli, að annaðhvort væri Einar að draga sig eftir Sigrúnu, eða þá að það væri eitthvað á milli þeirra. Guðrún heyrði þetta eins og aðrir, og henni var inálið alls ekki óviðkomandi. Hún átti eina systur, er Helga hét og henni þótti fjarska vænt um hana. Móð- ir þeirra hafði cfáið frá þeim ungum og faðir þeirra hafði ekki kvænzt aftur. Þær systurnar höfðu því ver- ið hvor annari allt, eftir því sem þær gátu. Þær voru mjög samrýmdar og sögðu í barnæsku hvor annari öll sín trúnaðarmál og tóku innilega hlutdeild hvor í annar- ar kjörum. Einar hafði alizt upp nálægt þeim systrum og alltaf verið þeim nákunnugur, þangað til hann flutt- ist í S.kaupstað, sem hann nú var í. Já, hann hafði meira að segja verið leynilega trúlofaður Helgu. Það var ein af þessum æskutrúlofunum, sem byrja allt of snemma, áður en menn þekkja sjálfa sig eða aðra til hlítar. Hann fann það og sjálfur, þegar hann varð þrosk- aðri, að Helga varð æ fjarlægari og ijarlægari huga hans, en samt hafði hann aldrei hugsað sér að rjúfa trúlofun þeirra, fyr en hann sá Sigrúnu. Eftir það var hann í engum vafa um, hvernig hann ætti að breyta. Auðvitað reyna að ná í Sigrúnu, ef þess væri kostur, því hann var ekki skyldur að halda það, sem hann hafði lofað meðan hann var svo ungur, að hann þekkti ekki sjálfan sig og tæpast gat skilið þýðingu þess, er hann gerði. En hann vissi, að Helga mundi taka sér þetta nærri; og nú ef Sigrún vildi hann ekki, hvað átti hann þá að geraf Eiga Helgu. Þá var óþarfi að vera að rjúfa lofun þeirra og baka henni sorg, enda vildi hann hana líka helzt, næst Sigrúnu, þegar á allt var litið. Hann ætlaði því ekki að skrifa Helgu uppsagnar- bréf, fyr en hann hefði vissu fyrir að Sigrún vildi hann. Eftir að hann hafði trúlofazt Sigrúnu, hafði hann svo skrifað Helgu og sagt henni, að hann gæti ekki elskað hana lengur og því væri ómögulegt, að þau gætu nokk- urn tíma orðið hjón, það yrði þeim að eins til mæðu og sorgar, henni jafnt sem honum. Hann minntist ekki einu orði á, að hann væri farinn að hugsa uin aðra stúlku, en sagði að hennar ástríka hjarta mundi ekki geta fellt sig við að vera ekki elskað eins og það ætti skilið, en hann sagðist að eins elska hana sem systur og það mundi hann ávallt gera, hann hefði verið svo ungur, þegar þau hefðu lieitið hvort öðru tryggð sinni, að hann hefði ekki þekkt sjálfan sig rétt þá. Hann bað hana að fyrirgefa sér, og óskaði henni með mörgum orðum farsældar og hamingju, um leið og hann svifti hana farsældinni og hamingjunni. — Allt þetta vissi Guðrún vel; hún þekkti þá þungu sorg, sem lagðist yfir Helgu, þegar hún fékk uppsagnar- bréfið og sem hún varð að bera í hljóði. Hún þekkti andvökunætur hennar og tárin, sem hún felldi á nótt- unni, þegar hún hélt að Guðrún svæfi, og hún fylltist hatri til Einars, sem hafði leitt þessa mæðu yfir systur hennar. Hún hugsaði með sér, að ef hún gæti, skyldi hún sjá svo um, að Einar fengi aldrei Sigrúnu, það væri honum maklegt fyrir það, hvernig hann hefði far- ið með Helgu. En hún varð að breyta hyggilega. Hún mátti ekki segja Helgu, að hún hefði heyrt því fleygt, að Einar væri farinn að hagsa um aðra stúlku. Nei, það mátti hún alls ekki; hún hafði nóg að bera samt, og svo hefði hún þá að líkindum ekki gert fyrir hana það, sem hún ætlaði að biðja hana um, og sem henni var svo hugleikið að fá, og það voru bréf Einars til hennar. Hún ætlaði að biðja hana ósköp vel að lána sér þau og svo ætlaði hún að sýna Sigrúnu þau, svo hún gæti með eigin augum séð, hvernig maður hann var. Hún varð að leggja sig alla til, til að fá bréfin hjá Helgu. — Guðrún var Sigtúnu mjög góð og almennileg um veturinn, en aldrei minntist hún á Einar við hana, fyr en nokkru fyrir sumarmál, að þær sátu eitt sinn tvær uppi á lofti, þá segir Guðrún: „Er ekki annars búðarloka þarna í kaupstaðnum hjá ykkur, sem heitir Einar Ófeigsson?" Jú, sagði Sigrún. Hví spyr þú að því?“ „Af því eg þekki piltinn. Hann var á Seyðisfirði áður en hann fór vestur, og var trúlofaður henni Helgu systur minni, en það var ekki opinbert; hann sveik hana svo fyrir engar sakir, eftir að hann var farinn burt og hún sá svo eftir honum, að hún bíður þess víst aldrei bætur meðan hún lifir". „Þetta getur ekki verið satt“. „Jú! víst er það satt“, sagði Guðrún. „Viltu sjá bréfin hans til hennar. Eg heyri sagt, að hann sé far- inn að draga sig eptir þér, en jafngott væri fyrir þig að lenda ekki í höndunum á honum". Hún kastaði bréfunum á borðið og rauk út. Sigrún var sem steini lostin. Átti hún að lesa bréf- in ? Já! Hún varð að vita vissu sína, hvort þetta væri satt. Hún varð að sjá höndina hans og lesa bréf- in hans, svo hún gæti sjálf dæmt þetta mál. Hún sett- ist niður og fór að lesa eitt á fætur öðru og uppsagn- arbréfið las hún seinast. Það var því miður höndin hans“. Hún þekkti hana helzt til vel. Það voru sömu ástarorðin, sem hann hafði talað við hana og sömu setningarnar og hann hafði skrifað henni. Uppsagnar- bréfið var skrifað eftir að hann var kominn að S. og var trúlofaður henni. Hafði hann þá virkílega verið svo ósvífinn, að biðja hennar á meðan hann var heit- bundinn annari stúlku? Og þó var það afsakanlegt og fyrirgefanlegt, en hann hafði svo oft sagt henni, að hann hefði enga stúlku elskað fyr en hana, aldrei fyr hugsað um nokkra stúlku og margt fleira, er hún sá nú, að verið hafði helber ósannindi. Það var ófyrirgef- anlegt. Hví breytti hann þannig? Hún hafði aldrei grennslazt neitt um hagi hans áður, aldrei spurt hann eftir slíku. Gat hann þá ekki þagað fremuren að ljúga? Það greip hana einhver vonleysis kvíði. Hvernig gat hún borið traust til hans og trúað honum fyrir sér? Hún sá nú eins og í nýju ljósi ýmsa breytni hans, er hún áður hafði ekki getað samþýtt, og hún fór að renna

x

Framsókn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Framsókn
https://timarit.is/publication/151

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.