Kvennablaðið - 17.04.1895, Síða 7
38
jeg uni mjer vel fram yið blásævar ból,
þars brimhviti fossinn minn rennur.
Tign hans og fegurð er töfrandi nóg
og tárafríð ljððharpan bláa;
harmstunum þrunginn, en hlæjandi þó
hann hrynur af berginu gráa.
Braghörpu-strengir hans glóa sem gull;
glaum þeirra’ í kvöldsólar ljóma
sælla er að heyra en hjegóma bull
heimsins og rangláta dóma.
Jeg fyrirlít heiminn með heimsku og tál,
hans hnýflar mig lengur ei særa,
en fossinn minn elska eg, hans ómsæta mál
og iðunnar straumfallið skæra.
G.
Handavinna.
Sawmakarfa. í körfunni er botn og 4 hliðar.
Botninn er 20 centim. langur, og 10 eentim.
hreiður. Hliðarnar eru 10 centim. háar. Að
neðan eru þær jafnlangar botninum, en að ofau
3 ceutim. lengri hver. Þessi 5 stykki eru gjörð
ör þykkri pappaplötu, sem svo er fóðruð að neðan
með mislitu ljerefti, en að ofan með einlitum ull-
ardúk. Bæði borðin eru svo köstuð utan um
pappann, og snúra fest yfir sauminn nema að
neðanverðu. Síðan er gjörður dálítill fóðraður
poki til að geyma í fingurbjörg, tvinnakefli, skæri
o. s. frv., úr ljerefti; fóðrið er 8 centim. breitt
(upp) og jafnlangt hverri hlið. Ytra borðið er
látið yfir það i 2 fellingar, sem liggja þvert yfir
hliðina eftir lengd hennar. Pokinn er svo saum-
aður við hliðina að neðanverðu, en að ofan er
honum fest með „slaufu“ úr silkiborða mitt á
milli fellinganna á hverri hlið. Síðan eru hlið-
arnar saumaðar við botninn og snúra fest yfir
samskeytin bæði að utan og innan. í öll efri
horn hliðanna eru fest silkibönd. og með þeim
eru svo hliðarnar hnýttar saman í „slaufu“. Að
lokum er búið til handfang úr þreföldum pappa
og sama efni og í pokunum saumað utan um það.
^að er svo brytt í kring með snúru og fest í
miðjar hliðarnar. í miðju handfangsins er fest
silki-Bslaufa“.
Eldhúsbálkur.
Marmarakdka. */2 kaffibolli af bráðnu smjöri er
hrærður I froðu saman við 1 bolla af steyttu hvíta
sykri; 3 bollar hveitis ern teknir og saman við það
látið l*/2 teskeið gerpúlver. Hveitið er hrært
saman við smjörið og sykrið og þynnt út með 1
bolla af mjólk. Seinast er látin í vel þeytt hvíta
úr 3 eggjum. í annari skál er hrært */* bolli af
bráðnu smjöri saman við 3 eggjarauður, 1 te-
skeið af steyttum kanel, ‘/s steytt múskathnot,
V, teskeið allrahanda, V* bolli púðursykur og J/s
bolli sírop, 2 bollar hveiti, sem 1 teskeið af natroni
j er dreift saman við, hrærist saman við deigið
I og þynnist út með '/a bolla af mjölk. Kökumót-
ið er smurt vel með smjöri innan, svo er sett þunt
lag af hvíta deiginu í botninn, þá lag af dökka
deiginu, eða smá-rósir, og svo hvíta deigið o. s.
frv. til þess allt er komið í mðtið. Efsta lagið
er hvítt deig. Bakast við góðan eld á */*—1
klukkustund. (Allrahanda og múskathnotinni má
sleppa).
Braurfsúpa er matur, sem er oflítið notaður.
Margir fleygja öllum brauðbörðum og brauðmolnm
i stað þess, að nota það í súpu einusinni í viku,
sem er holl, ódýr og nærandi fæða. öllum brauð-
molum skal haldið saman. Bezt er að láta kalt
vatn á þá dálitla stund áður en soðið er, þáþarf
það minni suðu. 4 pt. af vatni eru hæfil. að
sjóða 1 pd. af brauði í; þegar sýður, er brært
vel í með þvöru og látið sjóða vel. Þegar súp-
an er soðin, er hún síuð á gróft sigti, og látið
í hana siróp eða sykur, og súr saft. Eigi súpan
að vera vel góð, er soðið lítið eitt af sitrónu-eða
appelsínuskurni, eða kanel og látnar i hana rú-
sínur eða kórennur og vin. Hún er borin á borð
með góðri mjólk eða þunnum rjóma.
Góð ráð.
Við bruna er glycerin hið bezta með.al. Svo
fljótt sem unnt er skal leggja vefju yfir sárið
vætta i glycerini. Þessar umbúðir draga úr svið-
ann og græða brunann fljótt. Hörð skel kemur
yfir sárið, sem hlífir því meðan það er viðkvæmt.