Kvennablaðið - 01.04.1898, Side 5

Kvennablaðið - 01.04.1898, Side 5
‘29 Það varð dauðaþögn inni. Loksins vóru seinustu urabúðirnar teknar utan af, og þá sást á körfubotninum ung- barn, sem æpti hvíldarlaust, en þegar það var tekið upp og farið raeð það til fólksins, þagnaði það og horfði iitlu, dökku augunum í eldiun í ofninum. Allir steinþögðu frá sjer numdir af hræðslu og vandræðum. »Elskuverði frændi, getur þú gjört svo vel og'sagt okkur tilefni þessarar jóla- gjafar«, sagði garnli greifinn. Hann var rólegur, en þessi rósemi boðaði óveður. Játvarður greifi syudist furða sig minna á þessu enn aðrir. Hann ypti lítið eitt öxlum og sagði: »Jeg veit ekki meir um það enn þjer, frændi góður«. »Hjer er miði, sem datt ofan á gólfið«, sagði skrifarinn. »Lesið þjer hann«, skipaði Konráð greifi. »En yðar tign, jeg veit ekki hvert það á vel við«, sagði skrifarinn, sem hafði litið á seðilinn. »Lesið þjer hann«, sagði gamli greif- inn byrstur. (Framh). Verið farsæl. (Indverskt æfintýri). ina nótt, þegar tunglið skein sem ^ glaðast yfir jörðina, sat hinn mikli vitri guð Krishna í djúpum hugsunum. Svo mælti hann: »Jeg hjelt að maðurinn væri hin fegursta vera í heiminum, en það er ekki. Þarna sje jeg lótusblómið vagga sjer í nætur- golunni. Hversu langtum fegra er það en allar lifandi verurl Jeg get ekki þreytzt á að horfa á bikar þess, hvern- ig hann lýkst upp núna í hinum silfur- björtu tunglskinsgeislum. Nei, það er enginn líkur því á meðal mannanna«, sagði hann og stundi þungan. Eftir litla stund hugsaði hann sftur: »Hvers vegua get jeg ekki skapað einhverja veru, setn er það sama rneðal mannanna, eins og lótusblómið meðal blómanna. Jú, jeg vil skapa slíka veru til þess að gleðja jörðina og böru henn- ar. 0 lótus, vertu lifandi kona, og stattu hjer franimi fyrir mjer«. Þá skalf vatnið, eins og þegar það titrar kring um svöluna, þegar hún snertir það með vængjum sínum, nóttin varð | bjartari, máninn varð fegurri, nætur- galinn söttg sína feghrstu tóna og allt varð aftur hljótt. Það var fullkonmað. Fyrir framan Krishna stóð lótusblómið í líki mannlegrar veru. Sjálfur guðinu undraðist fegurð henn- ar. »Þú eit blóm vatnanna«, sagði hann, »vertu nú blóm hugsana minna«. Og stúlkan fór að tala hvískrandi eins og hin hvítu lótusblóm tala, þegar sunnanvindurinu kyssir þau, ogsagði: »Herra, því gerðir þú mig að lifandi veru? Hvar byður þú mjer nú að biia? Jeg bið þig aö miuuast þess, að meðan jeg var blóm titruðu blöð mín af ótta við hvern viudblæ. Jeg óttað- ist hið mikla regu, hina öflugu vinda, þrumurnar og eldingarnar. Þótt þú hafir boðið mjer að vetða að mannlegri veru, þá hefi jeg þó haldið mínu fyrra eðli; jeg er hrædd við jörðina og allt sem á henni lifir. Hvar býður þú mjer að búa?« Krishna leit hinum alltsjáandi augum sínum upp til stjarnanna. Hann spurði hana: »Viltu búa uppi á fjöllunum?« »Herra, þar er kalt og þar er snjór- inn«.

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.