Kvennablaðið - 01.04.1898, Page 6

Kvennablaðið - 01.04.1898, Page 6
30 Þá skal jeg búa þjer til kristallshöll á mararbotni«. »Hin stóru skrímsli búa á mararbotni. Jeg er hrœdd við þau, herra!« »Viltu heldur búa á hinum óendan- legu sljettum?« »0 herra, vindar og byljir leika laus- um hala á hinum óendanlegu sljettum!« »Hvað á jeg þá að gera við þig; í hellum búa hinir feimnu einsetumenn. Viltu búa í hellum langt í burtu frá glaum heimsins?« Krishna sat á steini og studdi hönd undir kinn. Stúlkan stóð titrandi af ótta fyrir framan hann. En nú var far- ið að birta, og gullnum roða sló á sky- in í austrinu og á sjóinn, og pálmatrjen og bambusskógana. Hinn bleiki hegri, hinn blái storkur og hinn hvíti svanur sungu niður við vatnið. I skóginum heyrðist söngur páfuglanna, og hreim- fagur kliður blandaðist saman við manns- röddu, eins og þegar perlur hrynja af streng. Krishna vaknaði af hugsunum sínum og sagði: »Það. er skáldið Volamiki, sem er að heilsa sólaruppkomunni«. Þá opnuðu liljurnar bikara sína og Volamiki sást koma á sjónum. En þeg- ar hann sá mannblómið, hætti hann að leika. Skelin af perluskelfiskinum, sem hann hjelt á, datt úr höndum hans og sökk til bot.ns. Hann stóð alveg graf- kyr og þegjandi eins og hinn mikli Krishna hefði breytt honum í trje- drumb. Hinn mikli guð varð glaður þegar hann sá þessa cinlægu aðdáun hans og sagði: »Vaknaðu Volamiki, og talaðu«. Og Volamiki sagði: »Jeg elska«. Hann mundi að eins þetta eina orð. Þá brá gleðisvip yfir ásjónu Krishna og hann sagði: »Fagra mær! Jeg hefi fundið stað handa þjer til að búa á í heiminum, stað sem þú skalt eiga — það er hjarta skáldsins«. Volamiki sagði aftur: »Jeg elska«. Og hinn voldugi Krishna leiddi meyna með vilja sínum að hjarta skáldsins, sem var var gagnsætt eins og kristall. Og mærin var björt eins og sumar- nótt, og hljóðlát sem Gangesfljótið, þeg- ar það rennur hægt í farveg sínum; hún gekk inn í musteri sitt. En þeg- ar hún sá lengra inn í hjarta Volamikis, varð hún náföl. Ottinn greip hana, eins og þegar kaldur gustur næðir gégnum manninn. Krishna undraðist og sagði: »Blóm, er það mögulegt, að þú sjert líka hrædd við hjarta skáldsins?« »Herra!« sagði hún, »hvernig gaztu fengið af þjer að skipa mjer að búa þar. I þessu eina hjarta sje jeg bæði fjallatindana og undirdjúp hafsins, þar sem ymsar kynlegar verur eru. Jeg sje sljetturnar, þar sem vindarnir leika sjer, og jeg sje dimmu hellana; því er jeg svo hrædd, herra«. En hinn vitri og góði Krishna sagði: »Vertu ekki lirædd. Ef snjór er í hjarta Volamiki, þá skalt þú vera vorblærinn, sem bræðirhaun. Ef undir- djúp vatnanna er þar inni, þá vertu perlan á botninum, ef kyrð eyðimerkur- innar ríkir þar, þá átt þú að vera gæfu- blómið á eyðimörkinni; ef dimmu hell- arnir eru þar, vertu þá sólargeislinn, sem fyllir þá með ljós og il«. Og Volamiki, sem loksins mundi orð til að tala, sagði: »0g vertu farsæl!«

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.