Kvennablaðið - 22.06.1904, Blaðsíða 1

Kvennablaðið - 22.06.1904, Blaðsíða 1
Kvennablaðið kost- ar 1 ^r* 50 au. inn- ar>lands, eríendis 2 ^r- (60 cents vestan- llafs)« x/3 verðsins ^orgist fyrirfram,en 2h fynr 15. júlí. Uppsögn ' skrifleg bundin^ við ára- mót, ógild nema komin sé til út- gef. fyrir 1. okt. og kaupandi hafi borgað að fullu. 10. ár. Reykjavík, 22, júní 1904. M 6. Frú Kristjana Hafstein. f MTMANNSEKKJ’A frú Kristjana Hafstein er fædd í Laufási 20. sept. 1836. Hún er dóttir séra Gunnars Prnsts, sem þar var, og konu hans frú Jó- hönnu Gunnlaugdóttur Briem, seinni konu séra ^orsteins Pálssonar á Hálsi 1 Pnjóskadal. Eftir dauða föður síns fluttist hún að ^alsi með móður sinni, og °lst þar upp til þess hún S'ptist amtmanni Pétri Haf stein 1857. Þau áttu sam- an 9 börn, 5 dætur, sem aUar eru dánar, og 4 sonu. ■^f þeim eru þrír á lífi: Hannes Hafstein ráðherra, Marenó sýslum. í Stranda sýs!u og Gunnar, aðstoðar- niaður v ð landmannsbank- ann í Kaupm.höfn. Eftir dauða manns síns Outtist frú Þlafstein að Syðra- Haugalandi í Eyjafirði. Um Þ®r mundir var það, að ^ggert Gunnarsson bróðir l'ennar gekst manna bezt frani í að safna gjöfum til ^vennaskóla á Norðurlandi. Skólinn var, sem kunnugt er, reistur á Laugalandi. En þótt ffú Hafstein hefði aldrei neitt með skólann að gera, þá er það víst, að hún átti oft þátt 1 að ráða fram úr ýmsum örðngleikum, og bteta úr ýmsum misfellum í kyrjjey, þótt aldrei tæki hún þátt í kennslu við hann. Arið 1880 sigldi hún til Kaupm.hafnar nieð tvö börn sín, til að leita þeim lækninga, flutti hún þá um vorið 1881 til Reykja- víkur alfarin úr Eyjafirði. Hún fluttist 1895 með yngstu dóttur sinni Elínu, sem þá giftist Lárusi sýslumanni Bjarnason, til Stykkishólms. Og síðan hún dó sumarið 1900, hefir hún verið hjá honum og séð um heimili og börn hans. Þegar eg fyrir 4 árum ætlaði að setja mynd hennar í Kv.bl. og bað hana að gefa mér einstöku upplýsingar um æfi hennar, þá sagði hún: „Nei, blessaðar farið þér ekki að tala um mig í blaðinu. Eg hefi ekkert þangað að gera, og hefi aldrei gert neitt, sem vert sé að tala um. Bara ver- ið heima og gætt barnanna rninna". Og það er einmitt þetta, sem einkennir frú Kristjönu Hafstein, að henni finst hún aldrei gera neitt, sem vert sé að tala um, þótt hún gæti barnanna og barna- barnanna sinna. Ef til vill sýnist sumum það ekki vera í ftásögur færandi þótt móðir gæti barna sinna. Og það eru margar mæður, sem leggja mikið fram þeirra vegna. En eg hefi enga móður þekt, sem hefir gleymt sjálfri sér jafn gersamlega yfir börnum sínum og frú Hafstein. Hún var ekki auðug að fé, en þó sparaði hún ekkert þeim til mentun- ar, þrisvar fór hún utan ein síns liðs, til að leita þeim heilsubótar, í síðasta sinni þegar hún fór með Elínu yngstu dóttur sína suður til Nissa á Ítalíu til að reyna að leita henni lækningar við brjóstveiki þeirri, er leiddi ' ;Ai

x

Kvennablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.