Kvennablaðið - 22.06.1904, Qupperneq 4

Kvennablaðið - 22.06.1904, Qupperneq 4
44 KVENNABLAÐIÐ. »Því fáið þér yður ekki ríka giftingu?« spurði hún alt í einu. Hann var feginn að það var myrkur, því hann roðnaði. »Eg, að gifta mig einhverjum ríkum erf- ingjaU sagði hann. »Já, það stríðir líklega móti yðar llfsregl- um«, hélt hún áfram. »Eg mátti vita það. En neyðin er enginn kaupmaður«, þér eruð »ópraktiskur«, og það er skaði«. »Já, í kvennamálum 1 það er satt 1 En mér kæmi aldrei til hugar að selja mig«. »En ef þér elskuðuð«. »Ef hún væri auðug, þá bæði eg hennar aldrei«, sagði hann dauflega. »Jæja, ef þér elskuðuð stúlku og hún yður, þá skylduð þér altaf þegja, bara ef hún ætti peninga«. »Já«, sagði hann fálega. »Það skil eg ekki«, svaraði hún og lagði grannvöxnu hendurnar fram á borðið. »Þérgæt- uð af tómu drambi spilt bæði hennar og yðar framtíðar hamingju. Já, svarið mér ekki! Þér munduð gera konuna yðar hamingjusama, því þér eruð vænn maður, og heiðursmaður frá hvirfli til ilja«. Hann hneigði sig með uppgerðarbrosi og sagði: »Þér hafið víst alt of háar hugmyndir um mig«. »Eða þér gerið of lítið úr yður. Það gengur ekki, skal eg segja yður. Þér komist aldrei áfram í heiminum, ef þér eruð þverlyndur. En með duglegri og efnaðri konu gætuð þér komist langt«. »Þá sé eg mín sorglegu forlög«, sagði hann, og reyndi að brosa. »Þér skopist að þessu«, sagði hún og hló lítið eitt við. »Ef eg væri í yðar sporum, þá skyldi eg vera talsvert duglegri. Því til dæmis lítið þér ekki við mér? Eg á talsverðar eigur, og menn segja að eg sé ekki ljót«. Hann þagði. Þér eruð ekki sérlega kurteist, bætti hún við. »En ef til vill takið þér ekki undir þenna almenna lofsöng. Sérhver hefir sinn sérstaka smekk. »Verið þér fullviss um, fröken . . . .« »Þér þurfið ekki að segja meira, eg veit hvað þér ætluðuð að segja«-. Hún lagaði á sér fötin og sagði: Ef til vill haldið þér að eg kæri mig utn þessa herra hérna, sem eru að draga sig eftir mér. Já, eftir mér, því eg gef þeim alls ekkert undir fótinn. Nei, aldrei 1 Eg vil eignast mann, virkilega stoð og styttu, tryggan mann, sem elskar mig, en ekki reiturnar mínar. En svo vildi eg að hann væri Hka praktiskur maður, sem ekki léti með- bræður sfna troða sig undir fótum«. Þér sjáið víst þetta mál fullmikið í gegnum amerísk gleraugu«, sagði hann. »Haldið þér að eg geti þá ekki haft nokk- urn snefil af »romantik« í mér«, sagði hún glettuleg. »Nei, uldrei svo að þér mistuð sjónar á því sem »praktiskast« væri.« Hún stóð upp. »Sjáum til«, sagði hún. »Það skal eg sýna yður. En segið mér nú hvort þér trúið mér til að halda Ioforð mín?« »Já, áreiðanlega«. »Já, það geri eg líka ætíð, sagði hún ein- lægnislega. Og nú heiti eg yður þvf, að ganga á morgun skógargötuna upp að litlu tjörninni. Fyrsta ógifta manninn, sem eg hitti á leiðinni, skal eg svo eiga, ef hann vill mig«. Hann rak í rogastans. »Verið þér sælir, herra minn«, sagði hún, og hneigði sig lítið eitt fyrir honum. Svo var hún horfin burtu. Morguninn var ljómandi fagur. Það var feg- ursta Indiánaveður. En um það hugsaði ungi maðurinn ekki þarna inn við skógarveginn. »Svei mér ef eg drep ekki hvern einasta karlmann, sem gengur þessa götu I Hér hef eg nú staðið sfðan fyrst í morgun, en til allrar guðs- lukku hefir ekkert enn komið fyrir«. — Hann var í raun og veru í skapi til að gera einhverja vitleysu. Nú stökk hann nokkur skref áfram og hlust- aði. »Eg hélt það væri einhver«, hélt hann á- fram við sjálfan sig. »Eg verð að hafa augun allstaðar, því hún kemur úr annari áttinni, og hann kemur auðvitað úr hinni áttinni«, sagði hann, og barði göngustafnum sfnum ofan í saklaust lyngið, — og honum skal eg verja veginn. I þessu bili heyrðist brak, eins og undan fótum, og loksins sá hann sveitapilt koma í ljós milli trjánna. Hann gekk óhikað leiðar sinnar, þangað til sagt var við hann með þrumandi röddu: »Hvað ertu hér að gera?« »Ef herranum kemur það við, þá ætla eg til kirkju«. »Heyrðu, ertu giftur?«

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.