Kvennablaðið - 22.06.1904, Side 6

Kvennablaðið - 22.06.1904, Side 6
46 KVENNABLAÐIÐ, Litirnir á tauunum sýnast vera Hkir og í fyrra. í útikjóla allavega einlit tau með hvítum smá írum eða teistum. Einlit tau eru líka höfð, einkum blá og rauð. Yfirtreyjurnar eru ennþá líkar og í fyrra, nema hvað ermarnar eru allar með smokk að framan og ryktar undir hann. Þó sjést í blöðum, að þær eru farnar að vera heldur styttri, einkum á ungum dömum og telpum um fermingu. Víðast eru þær með kraga yfir herðarnar, ýmist kliptan í heilt eða í tvennu lagi, sem mætist á miðju baki. Hattarnir eru allavega. Á litlar telpur eru mikið brúkaðir barðastórir hattar, kolllágir með slútandi börðum fram og aftur. Þeir eru oft skreyttir með silkibandi kringum koll- inn og gengur þá stór slaufa ofan á barðið að aftanverðu. Auðvitað má bera svo mikið eða lítið í skraut á þá, sem hver vill. Líka eru brúkaðir saumaðir hattar úr taui. Hvít- ir, rauðir eða svartir hattar fara börnum venju- lega bezt. Á smátelpur eru sloppkjólarnir brúkaðir ennþá, eins og að undanförnu. Drengjafötin breytast minna. Þeir eru nú sem stendur hér mest í stuttbuxum og jökkum og vestum eins og fullorðnir, bara að vestin eru alveg heil upp að hálsi, en ekkert flegin niður. Um klæðnað fullorðnu stúlknanna ætla eg ekkert að segja þér. Þær eru ekki enn farnar að sýna sig í sumarfötunum, og svo þurfið þið í sveitinni lítið á þeim móðum að halda. En út lítur fyrir, að þeir muni verða svipaðir og í fyrra. Þessi grein komst ekki í seinasta tölubl., og er því orðin á eptir tímanum. Útg. Eldhússbálkur. Fisksalat. Fiskurinn má vera hvernig sem vera vill, og er fyrir hendi. Þegar hann er soðinn, þá eru beinin týnd vandlega frá, og fiskurinn bitaður í sundur í þunna lagbita. Á móti hverj- um hálfum djúpum diski af bituðum fiski, er búin til sósa úr T/2 pt. af rjóma, sem gjarna má vera súr, og saman við hann er hrært tveimur mat- skeiðum af „syltuðum" ætisveppum (champignons), litlu af ediki og ofurlitlu salti og steyttum mús- katsblómum. Ef sósan er ekki nógu súr, þá bæt- ist edik í, og svo er fiskinum hrært saman við sósuna. Þetta salat er mjög bragðgott. Möndluhringir. 20 kv. sykur, 21 kv. steyttar möndlur, rifið hýði af x/2 sítrónu, >/2 ftnt steytt múskatshnota, 3—5 eggjarauður og 10 kv. hveiti er hrært vel saman í þétt deig. Því er svo velt á borði, þangað til að það er orðið ámóta gildur sívaln- ingur og þumalfingur á fullorðnum. Þá er því skift í 30 jafna hluta. Svo er hverri deigsneið velt þangað til hún er orðin 9—12 centim. gild stöng. Endunum er þá fest saman, svo er hring- urinn kominn. Hringirnir eru nú lagðir á smurða ofnplötu, borin á þá eggjarauða, og stráð yfir þá enskum, steyttum sykri og bakaðir svo í vel heit- um bakaraofni. Her er Penge at tjene!!! Enhver, som kan onske at faa sin Livs- stilling forbedret, at blive gjort bekendt med nye Ideer, komme i Forbindelse med Firmaer, der giver hoi Provision og gode Betingelser til Agenterne — og i det hele taget altid blive holdt bekendt med, hvad der kan tjen- es store Penge paa, bor sende sin Adresse og 20 0re i Frimærker til: „Skandinavisk Korrespondanceklub“ Kobenhavn K. Eimreiðin, fjölbreyttasta tímarit á íslenzku. Ritgerðir, myndir, sögur, kvæði. Munið eftir að panta skrautbindi á Kvennabl. og Barnabl. í tíma; mikið af þeim uppselt.

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.