Kvennablaðið - 29.03.1908, Side 6

Kvennablaðið - 29.03.1908, Side 6
22 KVENNABLAÐIÐ. efni hennar er ekki skemtandi. En pað er holt og vekjandi efni, einkum nú, þegar svo mikil- væg timamót standa fyrir dyrum. I þessari hók getum vér séð að ef ekki er staðið áverði fyrir þegnrétti og ríkisréttindum manna, þá eru þau hrifsuð frá mönnum, ýmist með slægð og undirferli, eða með oddi egg. Og slíkur synda- svefn hefnir sín á niðjunum i þúsund liðu. Vonandi er að íslenzkar konur telji ekki fremnr en karlmennirnir bók þessa sér óvið- komandi. Nú þegar vér erum að krefjast laga- legra og stjórnarfarslegra réttinda til jafns við karlmennina, verðum vér að nota hvert tæki- færi til að kynna oss sem bezt, öll þau mál, sem eru á dagskrá þjóðarinnar. »Ríkisréttindi Is- land«, skýra einmitt frá upptökum deilu vorrar við Dani, upptökum og undirrótum allrar stjórnar- baráttu vorrar til þessara tima. Og einmitt slíkra gagna höfum vér þarfnast öllu fremur í þessu máli. Rví flestum hinnar yngri kynslóðar eru rit Jóns Sigurðssonar mjög ókunn, svo þeir hafa ekkert að byggja á í þessu efni, nema blaðagreinar og fortölur flokkanna, sem naum- ast verða taldar óhlutdrægar. í bókinni eru það viðburðirnir sjálfir, sem tala, óhrekjandi og óhlutdrægir að öllu leyti. Kostnaðarmaðurinn hr. Sig. Kristjánsson á þakkir skilið fyrir þessa bók eins og margar aðr- ar góðar ísl. bækur sem hann hefir gefið út. Og það því fremur nú, sem bók þessi er almenn- ingi nauðsynleg og seld fyrir ekki meir en ^/s— V* af hinu eigínlega verði hennar. Pjóðin ætti því að meta svo viðleitni Sig. Kr., að gefa henni færi á að kynnasér sjálf gang sögunnar,og orsakir og afleiðingar viðhurðanna, að bók þessi yrði svo að segja hvers manns eign. Þegar saga ís- lands verður rituð, þá ættu heimildir þær, sem þessi bók hefir að geima að vera teknar upp í hana eða yfirlit yfir þær. En þangað til ættu þeir sem kenna íslandssögu í efri skólunum að hafa Ríkisréttindi íslands við hendina og skýra merkustu atriðin fyrir nemendunum. Á þann hátt gæti fróðleikur sá, sem þessi bók hefir að geyma komið almenningi að sem beztum notum. Til þess að komast h]á misskiiningi verður hver kaupandi jafnan að rann- saka nákvæmlega, hvort varan, sem hann kaupir, er frá því firma, er hann vill fá vöruna frá. — Sé þessa eigi gætt, veldur það oft vonbrigðum, hæði að því er til kaupanda og seljanda kemur, ekki sizt þegar tvö firma, er selja sömu vöru hafa sama nafnið. — Ef þér kaujtið reiðhjól frá danska firma-inu »Multiplex-import Kompagnk í Kaupmannahöfn, fáið þér beztu tryggingu, sent hægt er að fá, að því er reiðhjól snertir; en þetta er þó að sjálfsögðu því að eins, að reiðhjólið sé í raun og' veru frá okkur. -- Hver maður ætti að lesa skrá vora, sem er með mynd- um. — Hún er send ókeypis og burðar- gjaldsfrítt, sé þess óskað, á fimmaura bréfspjaldi. — Yér mælumst því lil þess, að þeir, sem vilja fá sér sterkt og gott reiðhjól, hlandi eigi firma voru saman við þj'zka firma-ið, sent er samnefnt, þar sent vér eigum alls ekkert skylt við það, og getum því eigi tekist neinar skuldbindingar á hendur, að því er til reiðhjóla kemur, sem þaðan eru. Hlutaíelag. 01. Kongevej 1. Köbenhavn 11 Dauðinn sigrast ekki, en lífið lengist og verður hamingju- samara þegar séð er um að halda melt- ingunni í góðu lagi og blóðinu hreinu og óskemdu. Þetta tekst með því að neyta daglega hins óviðjafnanlega heilsubitters Kina-lifs-elixírs] frá Waldemar Petersen, Frederikshavn Köbenhavn. Garnakvef, Eg hefi í 30 ár þjáðst af þessum sjúkdómi, og var orðin svo veikburða, að eg gat ekki lengur unnið neitt, jafn- vel ekki léttustu verk. Eftir að eg nú

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.