Kvennablaðið - 11.04.1912, Síða 3
KVENNABLAÐIÐ
11
ferð, heilsu og líf i sölurnar fj'rir petta mál.
Þær eru eklci margar, þegar miðað erviðíbúa-
tölu Englands, en bak við þær standa tugir og
þúsundir þúsunda kvenna. Auk þess standa að
þeim fjöldi hámentaðra og háttstandandi manna.
Nú í bili eru menn gramir þeim fyrir rúðubrot
þetta, uppæstir af fjandmönnum þeirra, sem
sáu sér leik á borði, af því að tíminn var
ekki heppilega valinn. En lýðurinn sefast fljótt,
þegar liann hefir fengið fórn sína framselda.
Og þvi ver, sem farið verður með þær í fang-
elsunum, því meiri hluttöku njóta þær hjá
allri þjóðinni, þegar írá líður, jafnvel þeim
sömu, sem nú heimtuðu að þær yrðu »kross-
festar«. Og því meir hrindist þetta mál nær
takmarkinu, — uppfyllingu óska þeirra — hvort
sem stjórnmálamennirnir vilja eða ekki vilja.
Pessi hreyfingaralda ryður sér nú til rúms í
heýninum, og hún er svo sterk, að hana fá
stjórnmálamennirnir ekki brotið. Peir geta sett
stýflur, sem standa litla hríö. En þær skolast
burtu áður en þeir vita af, og þeir verða nauð-
ugir viljugir að fylgjast með.
Það er eftirtektarvert að uppreisn og of-
beldi Englendinga, til þess að fá aukinn kosn-
inagrétt, hefir ætíð af stjórnmálamönnunum
ensku, þótt næg ástæða til að slaka til. 1832,
þegar þeir kröfðust aukins kosningarréttar, þá
brendu þeir Notthingham-kastala og margar fleiri
byggingar, auk fjölda manna sem drepnirvoru.
Pá var þctta gildasta ástæðan í augum stjórn-
málamannanna. Pegar verkfallsmenn baka
þjóðinni 8—10 rniljóna tjón daglega með verk-
falli, auk allra annara vandræða, — þá liggja
æðstu stjórnmálamennirnir á linjánum til að
biðja þá að vera góða. En þegar fáeinar kon-
ur taka upp litið brot af sömu aðferðinni —
livert sem hún er rétt eða röng — þá er pað
eitl næg ástæða til þess, að allar konur um all-
an heim, ættu aldrei til eilífðar að fá nokkur
jrólitísk réttindi. Og tungumálin eiga ekki nógu
sterk orð, til að einkenna óskammfeilni
þessara kvenna, í blöðum og samræðum karl-
mannanna.
Viljum vér konur vera með að taka undir
þann söng? Sjáum vér ekki mismuninn?
Heiinilisiönaöiii*.
iii.
Og Norðmenn láta ekki sitt eftirliggja heldur.
Þótt ekki fái þeir eins stórkostleg fjárfrarnlög af
almannafé eins og Svíar, þá hafa þeír þó fengið
góða hjálp til viðreisnar heimilisiðnaðinum. Þannig
hefir Stórþingið veitt árlega 20,000 kr. til kenslu (
þeim greinum. Og mörg önnur félög hafa veitt fé
til þess, auk þess sem einstöku rnenn hafa gefið,
og heimilisiðnaðarfél. og ungmennafélögin, sem tekið
hafa málið upp á sína dagskrá.
Námskeið og skólar hafa verið settir upp í
flestum sveitum landsins, í fleiri eða færri greinum
heimilisiðnaðarins.
Til að geta gengið úr skugga um áslandið í
þessum efnum áður, og árangurinn af námsskeiðum
og skólum, hafa verið send út spurninga eyðublöð,
sem öllum sveitastjórnaroddvitum hafa verið send.
Þar er spurt um:
Eru jarðirnar í sérstökum veðböndum? og hvað
mikið ?
Er algengt að hefilbekkur sé til á hverjum bæ?
Eru nægileg verkfæri til?
Eru snikkara viðgerðir gerðar að mestu leyti
af heimamönnum, eða þarf að fá það gert að mestu
leyti af iðnaðarmönnum á húsgögnum, búsáhöldum
og verkfærum utanhúss?
Býr heimilisfólkið til ný áhöld og hluti? T. d.
axarsköft, hamra og járnkarla, búrfjalir kvenna,
aópa, þvörur, hrífur, trog, sleifar, spæni, ausur,
skeiðar o. s. frv.?
Búa heimamennirnir til utanhúss amboð og á-
höld af tré, kerrur, hjólbörur, vagna, sleða o. s. frv.?
Búa heimilismenn til nokkuð af húsbúnaðinum?
Er nokkur beykisvinna gerð á heimilinu, t. d.
fötur, kollur, tunnur o. s. frv.?
Á hvað mörgum heimilum í sveitinni eru renni-
smiðjur?
Mála menn sjálfir hús sín og áhöld?
Eru venjulega smiðjur á hverjum bæ?
Eru einföldustu áhöld úr járni smíðuð af heima-
mönnum?
Járna menn sjálfir hesta sína?
Nota nokkrir í sveitinni vatnsafl til heimilis-
iðnaðar?
Er vefstóll til á flestum heimilum?
Er ofið fataefni handa karlmönnunum á bænum?
Utanyfirföt?
Nærföt?
Eru ofin fataefni kvenna á bænum?
Utanyfirföt?
Nærföt?
Eru rúmföt og aðrir nauðsynlegir dúkar, sem
til heimilisins þurfa, ofnir þar?
Eru öll nærföt heimilisfólksins saumuð heima
af heimilisfólkinu?
Saumar kvenfólkið á heimilinu kjólana sína sjálft?
Er saumavél til á hverju heimili?
Er litað heima? Með jurtalitum af mosa eða
laufi o. s. ftv. €ða með aðkeyptum litum?
Er nokkuð til muna gert að fínni handavinnu
á heimilunum?
Prjónar heimilisfólkið sjálft sokka og vetlinga
sína?
Er prjónavél til á nokkru heimili?
Býr heimilisfólkið sjálft til skófatnaðinn handa
sér? Eða gerir það við hann?