Kvennablaðið - 14.07.1914, Síða 1

Kvennablaðið - 14.07.1914, Síða 1
Kvenuablftðið Itolt ar 1 kr. 00 au. inn- anlands, erlondis 3 kr. [66cent vestan- hafs) */« verðaing borgiet fyrfram, en */» fyrir 16. júli. típpBÖgn gkrifleg bundin við ára- mót, ögild nema komin sé til út- gof. fyrir 1. okt og kaupandi liafl borgað að fullu. 20. ár. Reykjavík, 14. júlí 1914. M 6. Ti 08. Samkvæmt áskorun frá hinu heiðraða kvenréttindafélagi íslands, mætti eg fyrir þess hönd, sem fulltrúi á hinum 2. nor- ræna kvennafundi, er haldinn var hjer í Kaupmannahöfn 10—11 júní síðastl. Aðalstarf fundarins var að ræða um hjónabandslöggjöfina, sem »Den skandi- naviske Familieretskommission«, hefir nú með höndum. Sökum þess að ísland ekki á neinn fulltrúa í þessari »komission«, var íslenska fulltrúanum á hinum norræna kvennafundi að eins ætlað að taka þátt í umræðunum um hjónabandslöggjöfina, eftir að umræðurnar væru orðnar frjálsar. En þegar þar að kom, var orðið svo áliðið tímans, að eigi var unt að veita hverjum ræðumanni meira en tvær mínútur. Á svo stuttum tfma hefði eg eigi getað gjört grein fyrir nema ofurlitlum hluta af því, er eg áleit athugavert, svo eg kaus þá heldur þann kostinn, að taka þar alls eigi til máls. Um kvöldið þann 10. var almennur pólitiskur fundur í Grundtvigs Hus. Hélt eg þar ræðu og skýrði frá, hve langt við fslensku konurnar værum komnar í því, að öðlast jafnrélti við karlmenn. Daginn eftir, þann 11., var barnalög- gjöfin tekin fyrir. Hjelt eg þar og ræðu, og skýrði frá ástandinu á íslandi; báðar þessar ræður verða prentaðar í fundar- skýrslunni. Síðari hluta dagsins var rætt um sérbann gegn kvennavinnu x ýmsum greinum, og átli aðallega að skýra frá þeirri reynslu, er hvert einstakt land hefði, á þvi sviði. En af því enginn hefir hreyft þessari hugmynd heima, og við því alls enga reynslu höfum á þessu sviði, áleit eg rettast að taka ekki þátt í þeim umræð- um. En lýsti því að eins yfir, að eg per- sónulega væri mótfallin sérbanni fyrir konur yfirleitt. Hinn 12. júní var i sambandi við hinn norræna kvennafund, haldinn fundur, þar sem rætt var um, að koma á fót samvinnu meðal norrænna kvenna, til þess að starfa að því, að konur á öllum Norðurlöndum fengju sem fyrst borgaralegt og pólitiskt jafnrétti við karla. Formaðurinn í »Dansk Kvindesamfund«, frú Astrid Stampe-Feddersen, var hvata- maður þessarar hugmyndar, og var ósk hennar, að þær konur, er þenna fund hefðu sótt, og væru meðmæltar því, að þessi samvinna kæmist á, skyldu þá þegar ganga í felag til að starfa saman á þessu sviði. En við lýstum því allar yfir, að við hefðum enga heimild frá þeim kvenfélög- um, er okkur hefðu sent á hinn 2. norræna kvennafund, til þess að takast slíkt á hendur. — Var þá afráðið, að fela okkur öllum á hendur, að skýra félögum þeim, er oss hefðu sent á hinn 2. norræna kvennafund, sem fulltrúa sína, frá þessari uppástungu um samvinnu milli norrænna kvenna, og sömuleiðis, ef fleiri kvenfélög en þar höfðu fulltrúa, væru til í löndum okkar, og hefðu borgaraleg og pólitisk réltindi kvenna á stefnuskrá sinni, þá var okkur og falið, að skýra þeim kvenfélög- um frá þessari hugmynd, og bjóða þeim að taka þátt í þessari samvinnu, á þann hátt, er þeim þætti bezt henta. Samvinnan á fyrst um sinn að eins að lúta að kvenréttindamálum og barnalög- gjöf. Var talað um, að beina fyrst allri athygli að hjónabandslöggjöfinni — sem »Familiretskommissionen« nú hefir með

x

Kvennablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.