Kvennablaðið - 14.07.1914, Side 2

Kvennablaðið - 14.07.1914, Side 2
42 kVENNABLAÐIÐ höndum — og að barnalöggjöfinni. Var stungið upp á, s'em æskilegu formi fyrir samvinnuna, að hvert þeirra kvenfélaga — er taka vilja þátt í henni, vildu kjósa einn eða fleiri fulltrúa, eftir því sem bezt þætti henda. Skyldu svo allir hinir kosnu full- trúar mætast á fundi hjer í Kaupmanna- höfn á undan eða eftir hinum fyrirhugaða alþjóða kvennafundi í Beriín, næsta sumar (1915), og semja þá fasta skipulagsskrá fyrir samvinnuna. »Dansk Kvindesamfunds Hovedkontor«, Studiestræde 49 K0benhavn, er aðalstöð hins fyrirhugaða Qelagsskapar, þangað til ef öðruvísi verður ákveðið á stofnfundin- um 1915, og tekur aðalstöðin á móti öll- um fyrirspurnum og svarar þeim, að svo miklu leyti, sem unt er. Björg Blöndal. Um fráfærur. (Niðuri.) Þessar fáu og lélegu kýr eru þó ekki fullnægjandi þar, sem margt er fólk að framfæra, síður en svo sé. Væri þá ekki reynandi að færa ánum frá og koma því lagi á að sameina sig með hjásetuna að sumrinu, og fá einkum gamla menn er ekki geta orðið unnið erfiðisvinnu til að passa ærnar frá tveimur bæjum og bændur borguðu svo báðir þessum eina manni eptir skepnu- fjölda. Þetta myndi vel geta verið svo, einkum þar sem þéttbýlt er. Og svo eru en til góðir og dyggir unglingsdrengir er ekki er teljandi eptir að setja hjá ám alveg eins og áður var. Það mætti alveg eins kenna þeim að mjólka ær og kýr meira en gert hefir verið, til að létta undir með kvenfólkinu. Þá er nú líka kvartað um að stúlkur kunni ekki nú orðið að mjólka ær síðan hætt var að færa frá; en þessu er nú ekki ansandi, því til eru enn konur er vel kunna það og geta þá kent þeim er ekki þykjast kunna eða geta; ekkert er svo vandasamt að ekki megi læra. Því svo er nú almennt hátt kaup kvenna að þær ættu engan veginn að skorast undan því að vinna öll algeng verk er heimilið þarfn- ast, þetta ætti nú ekki að standa í vegi. Það mun víst flestum konum er reynt hafa, ólíkt betra og drýgra að búa til skyr úr sauðamjólk en kúamjólk. Eg er stórþakklát herra Torfa í Ólafs- dal fyrir hans mörgu og góðu bendingar um fráfærur, og konur ættu að lesa ræki- lega hans ritgerðir og%.athuga vel hvað hann segir þar um. Nú eru farnir að heyrast raddir úr ýms- um áttum að margir sjúkdómar séu nú einmitt að koma í ljós, er stafi frá vondu viðurværi og óhollri og ónotalegri fæðu. Eg vil benda á þýdda ritgerð í Tímariti kaupfélaganna 1912. (Þjóðleg fæða). Fyrir- lestur eftir norskan gerlafræðing, er telur súrinn sem einkar holla fæðu, og er það ekki svo lítið spursmál fyrir okkur þessa fátæku og fámennu þjóð að nota sem allra bezt það, sem við framleiðum í landinu sjálfu, en vilja síður rænast eftir afar dýrri vöru frá útlöndum og borða hana svo aftur í staðinn. Það er mín föst sannfæring að okkur myndi líða miklu betur ef við færðum frá og borðuðum mjólkina og skyrið í stað grautanna og þá um leið að fækka að stórum mun lélegustu kúnum og eins hrossunum er nú eru orðin altof mörg í flestum sveitum. Athugum þetta alt nákvæmlega og breyt- um þá til, ef betur sýnist. G. E. Úr bænum. Samsæti héldu ýmsar konur bæjarins skáldkonunni Ólöfu Sigurðardóltur frá Hlöð- um í Eyjafjarðarsýslu þ. 8. júní. Voru það um 40 konur og skemtu þær sér bið bezta. Frk. Laufey Valdímarsdóttir hélt aðal- ræðuna fyrir heiðursgestinum. Á eftir henni sungu allir veizlugestirnir standandi mjög snoturt kvæði eftir frk. Ingibjörgu

x

Kvennablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.