Kvennablaðið - 14.07.1914, Qupperneq 3

Kvennablaðið - 14.07.1914, Qupperneq 3
KVENNABLAÐIÐ 43 Benediktsdóttur, fyrir minni heiðursgestsins, sem er prentað á öðrum stað hjer í blað- inu. Ýmsar fleiri konur héldu ræður, þar á meðal frú Theódóra Thoroddsen, sem talaði mjög skemtilega, fyrir íslenska al- þýðukveðskapnum sér í lagi ferskeytlun- um, sem væru svo handhægar, að hafa á hraðbergi, og samgrónar eðli og hugsun- arhætti íslendinga, sem fjölda margir væru hagyrðingar. Um kvöldið kl. 1, fylgdu allir veizlu- gestirnir heiðursgestinum heim þangað, sem hún bjó, meðan hún dvaldi í bæn- um. Kvaddi hún þær þá með stöku þess- ari, sem hún hafði ort á leiðinni: »Seinna löngu eg feng minn finn — feng má engum tína. Ljós og söng þið senduð inn í sálarlöngun mína«. Ræða frk. Laufeyjar. Háttvirta samkoma! Við höfum öll hlegið að kerlingunni, sem ætlaði að bera sólskinið inn í bæinn, í svuntu sinni, af því hún hafði ekki vit á því, að það þyrfti að búa til glugga. En stundum nægja gluggarnir ekki, þegar dimmt er úti fyrir, þá vantar okkur einhvern til þess að bera ljós inn í bæinn — þó ekki væri nema lítil týra. Eru ekki hugir mannanna oftsinnis eins og lokaðir, gluggalausir klefar — við köll- um hver til annars í myrkrinu — eins og myrkfælin börn sitjum við alein með ang- ist í hjartanu og hlustum eftir lífsmarki frá hinum klefanum, og í hvert sinn, sem við heyrum eitthvað, glaðnar yfir okkur. En mest glaðnar yfir okkur, ef við sjá- um ljós. Það eru andans menn — skáld og listamenn, sem oftast bregða birtu yfir okkar eigin huga, svo óljósu draumarnir, sem búa þar inni, verða að björtum og skínandi myndum. Við erum komnar hingað í kvöld til þess að fagna einum af þessum ljósberum, einni af fyrstu skáldkonunum okkar. Það er ekki mikið að vöxtunum, sem eftir hana liggur, en gildi bóka verður ekki metið eftir blaðsiðutali, heldur eftir hugs- anaþroska þeim, sem kemur fram í þeim og liggur á bak við það, sem sagt er. Það er kona, sem hefir skrifað þessi kvæði, þess vegna skiljum við þau svo vel. Okkar eigin hugsanir, sem vakað hafa fyrir okkur eins og fjarlægur ómur, án þess að við heyrðum orðaskil, hafa orðið að kvœðum hjá henni. Hvað lesum við út úr þessum ljóðum? Svar á þeirri spurningu, sem liggur öllum mönnum þyngst á hjarta: hvernig við eigum að ná í gæfusólskinið. Það hefir verið þröngt um þessa konu, einvera, kuldi og veikindi hafa þjakað henni. Það er ekki furða þótt hún hafi sagt: »Andann svangan eg sit og kúga, sólargangurinn innra lækkar. Hvað mig langar að fljúga, fljúga, fljúga þangað, sem hugsjón stækkar«. En lífið hefir kent henni að við þurf- um ekki að leita langt eftir fegurð og hamingju — feguröarheimurinn býr í okk- ur sjálfum. Það er okkur í sjálfsvald sett að opna fangelsin gluggalausu, sem hug- ur okkar er innibyrgður í, þegar við grúf- um yfir hörmum okkar og áhyggjum — öll sæla felst í því að gleyma sjálfum sjer. — þá hrökkva upp dyrnar, sem loka okk- ur inni og heimurinn blasir við okkur, skinandi, sólbjartur, og óendanlega víður. Og alt sem lifir talar til okkar sínu máli, ef við viljum hlusta eftir því. Eg sagði áður að það væri ekki mikið að vöxtunum, sem lægi eftir Ólöfu Sig- urðardóttur. En alt ber það vott um ó- venjulega einarða og þroskaða konusái. Hún hefur sjálf náð því sem hún lýsir í þessari vísu: Gott er að vera fleyg og fær, frjáls í hverju spori, sinnið verður sumarblær sálin full af vori. Það er svo sjaldan hægt að þakka braut- ryðjendnm, á meðan þeir lifa — okkur þjrkir svo vænt um að okkur gafst færi á því að þakka Ólöfu frá Hlöðum fyrir kvæð-

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.