Kvennablaðið - 14.07.1914, Page 4

Kvennablaðið - 14.07.1914, Page 4
44 KVÉNNABLAÐIÐ in hennar. Við metum hana því meira af því að við sjáum að það á við hana sjálfa sem hún segir um vin sinn látinn: — »þjer mátti hver vera maður jafn í metorða-alríkinu — —« Við vonum að konurnar verði til þess að kenna mannkyninu að menn hækka ekki sjálfir þó þeir traðki öðrum. — Lífið er svo margbreytilegt, að það er þörf á kröftum okkar allra, og erfitt að dæma um það, hver sé mestur. Er hægt að fá fallegri eftirmæli, en þessa vísu Ólafar, sem mjer finst að gæti verið um hana sjálfa: »Þín spor sjást ei stór en hvertspor er hreint þú spark hvergi eftir þig lætur, en gekst svo varfær þinn veg og beint, að vegna þin enginn grætur.« Ólöf Sigurðardóttir lengi lifi! * ★ ★ ★ ★ ★ ¥ ¥ ¥ Úr norðurátt oss bárust hörpuhljómar með hlýjum, léttum, undurhreinum blæ; frá auðn og kyrð þeir komu — þessir ómar þars kona sat í litlum sveitabæ. Við fögnum þér, sem hefir stilt þá strengi, svo sterkt sem veikt, þar lék þín haga mund; já, hreimar þínir hafa töfrað lengi — þeir hafa leitt oss saman þessa stund. í kvöld við vildum öðrum önnum gleyma og allar gleðjast við þau strengjahljóð. Við eigum litlu kverin hjá oss heima, í huga geymum mörg þín beztu ljóð: þau sumarblóm, sem yl og yndi færa, sem anga ljúft við sólbros mild og hlý, og blika döggvuð líkt og lindin tæra, þar lífsins þrár og draumar speglast i. Við skiljum þig! En fæstar fengið hafa þó færri geisla’ að vöggustokknum inn. Við skiljum: Það er kvöl að kyrkja’ og grafa í kalinn jarðveg andans gróður sinn. Við skiljum, hvernig húm og þrautir þjaka, við þekkjum margar líkan skapadóm. En hitt er gátan, hvernig í þeim klaka úr klungur-urð fá sprottið svona blóm. Með göfgi’ á svip og gleðibragð um hvarma í gfiti slíkra blóma situr þú, svo ern og hress í aftansólarbjarma, og aldrei söngstu fegri ljóð en nú! Við yzta sjónhring sér þú blysin loga, sem sigrað gátu skugga, tár og þraut, svo nú sézt hvergi nótt á himinboga — og nú er lif þitt orðið sigurbraut. /. B. Annað norræna kvennaþingið. Á öðrum stað hér í blaðinu hefir frú Björg Blöndal gefið Kvenréttindafélaginu, sem hafði fengið hana til að mæta fyrir sig á fundinum, skýrslu um hann. Hér skal pví að eins getið hins helsta, sem þar er ekki tekið fram. Fundurinn var haldinn i stóra salnum í Odd- félagahöllinni og hófst kl. 9 árd. þ. 10. júni. Var salurinn troðfullur, og voru áheyrendurnir mestmegnis konur. . Var fyrst sunginn hátíðasöngur eftir frú Gyrithe Lemche, en lagið var búið til af frú Teklu Griebel Wandall. Inngangsræðuna hélt formaður félagsins: »Dansk Kvinda-Samfund«, sem stóð fyrir fund- inum, stiftamtmannsekkja frú Astrid Stampe Feddersen. Talaði hún um þann ófrið, sem fyr á öldum hefði verið milli hinna norrænu þjóða, og um þær friðarumleitanir, sem á síð- ari árum hefðu hvervetna í heiminum, gert vart við sig, og orðið æ háværari og ákveðnari. Hún kvaðst tagna því, að hinar norrænu þjóðir tækju nú saman höndum, til þess í einlægni að sækja þenna fund. Prófessor Viggo Bentzon, formaður í norrænu Hjónabands-löggjafarnefndinni tók síðan til máls i langri ræðu um þetta mál. Kvenlögfræðingar frá Sviþjóð, Noregi og Danmörku, gerðu síðan grein fyrir þeim göllum, sem konum þættu sér- staklega þurfa, að bæta úr með þessum lögum, og hvernig þær umbætur ættu að verða. Síðast talaði prófessor Bentzon, og lauk máli sinu á þessa leið: »Kvenlögfræðingar Norðurlanda hafa í dag tal- að af mikilli þekkingu uin mjög erfið lögiræðileg viðfangsefni, og við karlmenn, sem erum lög- fræðingar, viljum fegnir vera í samvinnu við þær. Fundurinn í dag hefir styrkt mig í þeirri trú, að samvinnan gangi vel«. Aðal atriðin, sem rædd voru og fundið var að, voru réttarfarsleg staða giftra kvenna, og hvern- ig ósanngjörn lög legðu eiginmanninum alt valdið í hendur á sameiginlegri eign hjónanna, án þess að hann beri nokkra ábyrgð á með- ferð sinni á henni, gagnvart konu sinni. Annað

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.