Kvennablaðið - 14.07.1914, Page 5

Kvennablaðið - 14.07.1914, Page 5
RVENNABLAÐIÐ 45 atriðið var persónulegt samband milli foreldra og barna. Par talaði hæstaréttarlögmaður Elísa Sem frá Noregi. Lagðí hún sérstaka áherslu á hinn mikla mismun á sambandi foreldranna við skilgetin og óskilgetin börn sín. Yfir skil- getna barninu hefði faðirinn nær því alt for- eldravaldið, en vlð óskilgetna barnið sitt hefði hann hvorki skyldur, né nokkurt foreldravald. Hún mintist einnig á spurninguna um pað, hvort óskilgetin börn ættu að hafa rétt til að bera ættarnafn föðursins eins og skilgetín börn og hvernig þá færi um þau börn, sem ekki fengju neitt viðurkent faðerni, og yrðu þannig eins og nokkurskonar afhrak í mannfélaginu, enn þá ver sett, en þau væru nú. Frú Frigga Carlberg frá Gautaborg, sendi skrifaða ræðu sína um þetta efni, sem lesin var upp. Par gerði hún grein fyrir þessu for- eldravaldi föðursíns yfir börnunum frá elstu tímum, frá því að karlmaðurinn hafði óbundið einveldi eins yfir börnum sinum og konu, og öðrum eignum. í Svíþjóð hefði ekki verið bann- að að bera út börn fyr en á 12. öfd, og föður- valdið sé enn þá svo mikið í Sviþjóð, að t. d. glæpamenn, sem hefirverið hegnt, hafi alt vald- ið yfir börnum sínum, og þótt móðirin vinni fyrir heimilinu, þá hafi hann þá jafnt sem áður alt vaidið yfir því að lögum. Og þótt faðirinn hafi hér því engar skyldur við óskilgetin börn sín, þá hafi hann þó að lögum erfðarétt eftir það; föðurfrændur óskilgetins barns geti erft það líka að lögum. Hún sannaði hvernig það væru lögin sem stuðluðu að ungbárnamorðum í stórum hlutföllum við eðiilegan barnadauða, og bað löggjafana að minnast þess, þegar þeir töluðu um fækkandi barnafæðingar. Mikið af umræðunumvar um erfðarétt óskil- getinna barna, eftir föðurinn, (og föðurfrænd- ur) og rétt til að kallast nafni föður síns. Því var meðal annars haldið fram, að eðlilegra væri, að faðirinn væri skyldur til að gefa óskil- getnu barni sínu ættarnafn sitt, en að móður- faðir þess væri skyldur til þess. Og fyrst að lögbækurnar sýknuðu karlmanninn frá öllum lagalegum afleiðingum og ábyrgðum af föður- skyldum óskilgetinna barna sinna, og skrifuðu lögin o. venjan, sýknuðu hann, af allri vansæmd í því tilliti, þá yrði það eðlilegt að siðgæðilögmál- ið yrði ólíkt fjrrir karla og konur, og þetta hefði aftur margskonar afleiðingar, sem kæmu niður á saklausu börnunum. Klukkan 7 síðdegis, var svo haldinn fuudur í Grundtvigshúsi. Fundarefnið var kosningar- réttur kvenna. Húsið var troðfult. Pár var ger grein fyrir kosningarréttarmálinu í hverju af þessum 5 Norðurlöndum. í Finnlandi og Noregi hafa konur þegar fengið full pólitisk réttindi. Árangurinn af því virðist hafa orðið góður. Engin bylting, hvorki í stjórnmálum eða öðrum þjóðfélagsmálum, heldur góð félagsleg samvinna milli beggja kynjanna. Fyrir Danmörku talaði próf. H. Höffding, og hélt að vanda með þvi, að sjálfsagt væri að konur fengju þessi réttindi, enda stæðu þau nú fyrir dyrum í Danmörku, og yrðu eflaust að lögum, ef ekki í sumar, þá á næstu missirum. Pá talaði frú Ezaline Boheman frá Svíþjóð, og bar fram heilhugar hamingjuóskir sænskra kvenna, til danskra kvenna, með því að þær væru komnar svo nærri þessu langþráða takmarki. Hún kvartaði yfir þvi, að í Sví- þjóð mundi enn langur vegur eftir, þangað til konur kæmust svo langt, og tók fram hversu stjórnmálahorfurnar þar og hin ábyrgðarlausu áhrif þeirra, væru hættulegar. Pá talaði frú Björg Blöndal og talaði um kvenréttindamálið á íslandi, eins og því væri nú komið. Konur hefðu þar aðgang að öllum embættum landsins. Par væri eíginlega engin mótstaða gegn því að konur fengi pólitísk rétt- indi. Nú lægi fyrir frumvarp sem veitti konum þau. En samkvæmt fengju aðeins 40 ára konur kosningarrétt fyrsta árið, næsta ár þær, sem væru 39 ára, og svo áfram niður á við, þangað til allar konur hefðu fengið kosningar- rétt þegar þær væru 25 ára. Að þessu frum- varpi var mjög lilegið, en ræðukonan hélt að það mundi ekki verða að lögum, en íslenskar konur mundu þó bráðlega fá kosningarrétt. Á eftir ræðunum frá hverju landi, var sung- inn þjóðsöngur þess lands. Annan fundardaginn, 11. júní var rætt aðal- lega um barnalöggjöfina. Talaði þar fyrst sænska konan Anna Lindhagen. Taldi hún öll börn eiga sömu eðlilegar réttindakröfur: 1. rétt til að lifa, 2. að fá fræðslu, 3. að fá verndun, þótt það yrði hjá óviðkomandi fólki, 4. að vera verndað fyrir foreldrum, sem ekki væru góðir, 5. að vera ekki ofboðið eða misbrúkað til vinnu. Barnaiöggjöfin i Danmörku væri miklu betri en i Svíþjóð, og hin dönsku »Værgeraad« væru miklu betri en sænsku »Barnavárds- namnder«. »Værgeraad«-in hefðu meiravaldog gætu því komið meiri og betri framkvæmdum í kring. Auk þess vernduðu lögin giftar mæð- ur betur. Frú Björg Blöndal gaf ýmsar góðar upplýs- ingar frá íslandi i þessu efni. Sagði að þar væru engar verksmiðjur, sem notuðu börn til vinnu. Par þektust eigi barnaglæpir, og þar hefði aðeins komið fyrir eitt barnsmorð, í manna minnum. Par væru venjulega óskilgetin börn kend við feður sína, sem hefði þær afleiðingar að giftir menn tækju sjaldan framhjá.

x

Kvennablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.