Kvennablaðið - 14.07.1914, Qupperneq 6

Kvennablaðið - 14.07.1914, Qupperneq 6
46 KVENNABLAÐIÐ í umræðunum var það tekið skýrt fram, að nauðsynlegt væri að eitthvert sérstakt fram- kvæmdarvald hefði öll þessi mál til meðferðar. Mjög líklegt að stofnun, lík hinum dönsku »Vergeraad«-um gæti orðið fulinægjandi, ef hún fengi aukið vald í sínar hendur. Pegar ríkin tækju að sér uppeldis umsjón barnanna, pá yrði það einnig að sjá um, að gáfuðum börnum væri ekki haldið niðri, heldur fengju þau að njóta hæfileika sinna. En þetta mál væri fléttað sam- an við bindindismálið, vinnuleysismálið, málið um hjálp handa fátækum mæðrum, og í einu orði sagt, gæti ekki orðið greitt úr því öðruvísi en samhliða með framförum verkmannaflokks- ins, bæði í efnalegu- og menningarlegu tilliti. Síðari fundurinn um daginn, var um sérstök lög eða bannlög fyrir konur, að vinna nætur- vinnu, og ýmsar aðrar undantekningar og úti- lokanir frá sérstökum vinnugreinum, sem þær hefðu áður haft. Umræðurnar hóf frú Julia Arenholt, umsjónarmaður dönsku stjórnarinnar við allar þær verksmiðjur, sem konur og börn vinna í. Hún hefirmikla reynslu i þessu máli, enda sýndi hún fram á, hversu sérstök löggjöf fyrir konur í þessumiltoum væri skaðleg fyrir þær, bæði efnalega, og eins fyrir heimili þeirrá. Auðvitað væri gott, ef engrar næturvinnu þyrfti með. En meðan hún væri notuð, þá mistu konur af bezt-launuðu atvínnunni, þegar þeim værí fyrirboðin sú vinna, sem bezt borgaði sig, t. d. við prentun, bakarastörf o. s. frv., það leiddi aftur til þess, að þær yrðu að vera lengri tíma frá heimilum sinum, til að innvinna sér jafnmikið, eða taka illa launaða vinnu heim til sín. Yfirleitt yrði árangurinn sá, að þær yrðu að vinna miklu verri og ver borgaða vinnu, sem enginn hefði opinbert eftirlit með. Frk. Ida Johannsen frá Svíþjóð, kvað það vera bæði sína og annara persónulega reynslu, að tneð þessum næturvinnubannlögum fyrir konur, þá hefðu mörg hundruð kvenna þar í landi mist vel borgaða vinnu, sem setjarar í prentsmiðjum. Danskar konurvoru svo heppn- ar, með fjölmörgum mólmælum hvervetna frá döttskum konum að geta hindrað, að Fólks- þingið samþykti slik bannlög. Sænskar konur mótmæltu líka, en það hafði engin áhrif. Lög- in komust samt á. í Finnlandi og Noregi, þar sem konur hafa kosningarrétt, hafa mótmæli kvenna dtlgað, og þessi bannlög gegn nætur- vinnu kvenna ekki gengið i gegnum þingin. (— Við konur hér á íslandi, þar sem fáar eða engar slíkar verksmiðjur eru, verðum vel að gæta að þvi, að jafnóðum og einhverjar at- vinnugreinar opnast konum, bæði við verk- smiðjur, ef þær komast á, og fleira, þá verði konur ekki útilokaðar frá bezt-launuðu atvinnu- greinunum, eða á annan hátt bolað burt frá vinnumarkaðinum og allri sæmilega launaðri vinnu. Verkakonur verða sjálfar að hafa aug- un opin, fyrir þeim háska, sem af því stafar, og halda allar saman í kröfum sinum. —) Ýmsar veislur voru gestunum haldnar. Par á meðal glaðningur í ráðhúsinu, sem bæjar- stjórn Kaupmannahafnar hafði boðið öllum fulltrúunum til. Jensen borgarstjóri bauð gest- ina velkomna og hvert af hinum 5 löndum þakkaði aftur, fyrir munn einhvers af fulltrúun- um. Siðasta veislan var haldin á sumarhótel- inu »Marienlyst« út við Eyrarsundið. Pangað voru fulltrúarnir fluttir í bifreiðum 12. júni, því þar skyldi haldinn síðasti fundurinn um áfram- lialdandi samvinnu milli allra þessara 5 nor- rænu landa. Fyrst gæddu fulltrúarnir sér á morgunmat, sem þeim var fyrirbúinn þar, og svo var fundurinn á eftir. En niðurstaðan varð sú, að félag varð ekki myndað að svo stöddu, en skyldi bíða frekari undirbúnings, undir stjórn »Dansk Kvindesamfunds«, og ræðast að líkind- um til fulls, vorið 1915, á undan eða eftir al- þjóðaþinginu í Berlín. — (Eftir Röstrátt för Kvinnor). Ferðapistlar. ii. Mikið af leiðinni inilli Wienar og Dres- den er mjög skemtilegt. Meðfram Saxelf- unni er landslagið mjög fagurt. Þar uppfrá liggur hin »Saxneska Sviss«, orðlögð fyrir náttúrufegurð sína og heilnæmt loftslag, enda notar Qöldi manna sér af því og ferðast þangað upp í sveitirnar sér til heilsubótar á sumrin. Saxelfan er á þessu svæði ekki stórfeng- leg. Hún liggur þar víða í lægð og brekk- ur ofan að henni. Eílaust er hún þar djúp og vatnsmikil, þótt ekki sé hún breið. Mjög virtist okkur skifta um útlit, við- mót og svip fólks, þegar kom inn á Þýskaland. Járnbrautarþjónarnir, sem bæði suður i Austurriki og Ungverjalandi, og líka hér á Norðurlöndum eru oft svo við- mótsgóðir og liprir, voru með þessari þýsku járnbraut, víða að sjá styrðir og hrottalegir. Mjög auðséður hermannabrag- ur á framkomu þeirra. Auðvitað eru und- antekningar frá allri reglu. En svona virtist mér það yfirleitt. Gaman var að taka eftir fólkiuu sem varð okkur samferða. Og mjög ólíkar virtust mér þýsku konurnar ungverskum

x

Kvennablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kvennablaðið
https://timarit.is/publication/152

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.