Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 31.08.1896, Blaðsíða 3

Dagskrá - 31.08.1896, Blaðsíða 3
75 könnuð. Þeir iögðu aptur vestur á bóginn og beygðu svo suður á við og sigldu með ströndum fram. Hugðust þeir þannig mundu ná Spitsbergen. Þeir lágu fastir í ís í viku og komu loks 26. ágúst að landi, er þeim þótti hentugt til vetrarsetu. Bjuggust þeir þar um og sátu vetur allan til vors. Lifðu þeir á morknu bjarnar- slátri og selspiki og leið allvel. Þegar vora tók og ísa leysti, tóku þeir að búast til brottferð- ar. Saumuðu þeir sjer föt og lögðu því næst á stað á kænunum. Þeir hjeldu í vestur og hittu von bráðar fyrir sjer land. Hjeldu þeir þá landveg í suðurátt og komu loks til strandar. Lögðu þeir því næst aptur út á djúpið og hugðust mundu ná Spitsbergen, en 18. júní hittu þeir fyrir sjer ferðalang nokkurn, er Jaekson hjet, og einnig var á heimskautsför, og varð það fagnaðarfundur. Tók Jaekson við þeim fjelögum og flutti óðar til Noregs. Enn sem komið er verður eigi með vissu skýrt frá því, hverja þýðingu þessi för Nansens hafi, en engum dylst það, að bjer sje mikið verk af hendi leyst. Hann hefur fundið ný lönd, komist lengra norður en nokkur hefur áður komist, og fengið nokkurn veg- inn fulla vissu fyrir því, að autt haf muni vera við heimskautið. Dr. Friðþjófur hefur þegar fengið yfir 2000 hraðskeyti frá mönnum um allan heim. Útlendar frjettir. Kmh. 20. ágúst 1896. Li-Hung-Sjang er í ferðalagi enn og er nú kominn til Eng- lands. Áður hefur hann verið á EúsBÍandi, Þýskalandi og Frakk- landi. Honum var alstaðar tekið vel, en mest var haft við hann á Þýskalandi; menn hjeldu hann mundi kaupa fjarskan allan af varn- ingi, einkum iðnaðarvöru, en hann vildi ekkert kaupa, og þá fyrrt- ust Þjóðverjar og gera gys að Li síðan. Erindi hans mun vera, að fá leyfi stórveldanna til þess að hækka toll á varningi sem flyst inn í Kína, en sagt er að það gangi stirt; einkum eru Englendingar þung- ir fyrir; og ensku blöðin eru honum ekki vinveitt, og keppast um að segja sem flestar gyssögur um hann og hátterni hans. Li vildi endilega sjá Gladstone og bað hann um að lofa sjer að koma til hans. Það var auðsótt. Li kom á ákveðnum tíma og nú skeggræddu öldungarnir nokkra hríð, náttúrlega með túlk. „Þjer hafið þjónað drottningunni í mörg ár, og opt verið ráð- herra“, sagði Li. „Fjórum sinnum11. „Þjer haflð unnið ættjörð yðar aðdáanlegt og ómetanlegt gagn“. Gladstone svaraði: „Jeg vildi að mjer hefði auðnast að gjöra langtum meira. Jeg hef gjört það sem jeg hef getað; en heppnin hefur ekki elt mig alla tíma“. Nú varð þögn litla hríð, þá Begir Li allt í einu: „Eruð þið Lorð SalÍBbury á sama máli um alla hluti?“ „Yið Salisbury erum á sama máli um marga hluti og jeg dá- ist að mörgu hjá honum. Hann er vel að sjer gerr um flesta hluti“. Margt hjöluðu þeir fleira. Krítey. Enn er óvíst hvað um Krítey verður. Stórveldin eru að bera sig saman um hvað gjöra skuli. Flest hin meiriháttar blöð halda þó, að Eússar, Frakkar og Englendingar muni skakka leik- inn og veita Krítey sjálfstjórn, en það er alveg óvíst. Sem stend- ur hamast rússnesku blöðin móti Engl., og kenna þeim um upp- reistina i Armeníu, á Krítey og viðar. Þau virðast alls ekki vita af því að Englar og Bússar ætli að verða samtaka. Þar á móti hallast þau að Þjóðverjum og eggja þá gegn Englum. — Grikkir veita eyjarskeggjum þá hjálp sem þeir geta. Stjórnin hefur, fyrir áeggjan stórveldanna bannað vopnasendingar og alla liðveÍBlu við uppreistarmenn, og hefur herskip á verði meðfram öllum ströndum, en það kemur fyrir ekkert; grískir herforingjar, liðsmenn og alþýðu- menn strjúka hópum saman til eyjarinnar og berjast með frændum sínum. IJm fyrirætlanir stórveldanna segir svo i einu blaði (Intern. Korresp.): „Krit, Sýrland og Armenía fá sjálfstjórn hvert við sitt hæfi, en stórveldin h&fa tilsjón með þeim, þannig að Armenía fær vernd Kússa, Englar vernda Krítey og Frakkar Sýrland, og hafa leyfi til að skerast í ef óeyrðunum linnir ekki“. Þetta bollaleggja nú blöðin en líklega verður reyndin allt önnur. Nú er dómur fallinn i máli Jamesons og fjelaga hans. Sjálf- ur hann er dæmdur í 15 mánaða fangelsi, einn fær 10 mánaða fang- elsisvist, einn 7, hinir 5. Frjálslyndu blöðin láta vel yfir dómnum, en hin una því illa, að svo góðir Bretar skyldu verða dæmdir til fangelsis. Þjóðvei'jar ræða kappsamlega þann kost eða ágalla keisarans síns, að hann getur ekki haldið neina ráðgjafa lengur en 1 eða 2 ár, vegna þess að hann vill einn öllu ráða. En með því keisarinn er ekki jafnvel heima í öllum greinum, þá vill það verða stundum, að mönn- um þykir ekki allt jafngott sem hann gjörir. Og opt er það, að hann fer eptir ráðum þeirra, sem hvergi koma nærri, og tekur þá fram fyrir hendurnar á þeim sem ábyrgðina hafa. Þannig varð það að v. Berlepsch fór, vitur maður, og nú nýlega hermálaráðgjaflnn Bronsart v. Schellendorf, sjálfstæður maður og fastur fyrir. Hann hafði lofað að halda fram endurbót á meðferð saka, sem hermenn snerta, en keisarinn stóð á móti eða einhverjir menn sem höfðu vald á keisaranum. Hann víldi ekki rjúfa orð sín og ekki láta undan keisara, og því fór hann. Eins og menn vita fjölgar landslýð á Frakklandi minna en í öðrum löndum svo lítið, að þeir sem fæðast og deyja árlega eru nálega jafnmargir. Maður einn í Suðurfrl., mikill ættjarðarvinur, stofnaði sjóð og skyldu vextirnir ganga til þeirrar konu á Frakkl. sem ætti flest börn, og bauð franska akademíinu að stjórna sjóðn- um, og sjá um útbýtinguna. Akademíið hefur svarað og neitað boðinu af þeirri ástæðu, að barneignir heyrðu ekki undir starfsvið þess. Hingað til hefur það alltjend þótt fallegt að konur væru „mjó- ar í mittið“, þó það í rauninni alls ekki sje fallegt og því síður þægilegt. Oss er því ánægja að geta þess, að nú er það ekki lengur fint. Þeir sem tískunni stýra hafa ákvarðað að hjer eptir skuli „gríska mittið“ vera það finasta og fallegasta. Síðan það frjettist hafa stássmeyjarnar gildnað þetta um 6 þumlunga og þar yfir. ______________ Ein vinkona skáldsins Heinricks Heine er nýádáin. Hún var frægust af því að hún stundaði hann í banalegunni, vel ogástúðlega. Heine kallaði hana „la mouche“ (fluguna), og það var hún kölluð siðan. Hún hefur skrifað bók um síðustu stundir skáldsins, en Bam- farir þeirra hefur sænska skáldið Lundegaard notað í síðustu sögu sína. Jarðskjálftinn. Kvöldið hinn 26. f. m. og langt fram eptir deginum á eptir, var einn hinn stærsti jarðskjálpti, sem komið hefur hjer á landi síðan jarðskjálptann mikla eptir Skaptáreldinn 14.—16. ágúst 1784. — Fyrsti jarðskjálptakippurinn kom hjer í bænum um kvöldið, þá er lifði tæpur frjórðungur hinnar 10. stundar. Fólk er úti var hjer í grenndinni heyrði fyrst dunur, líkt og þruma riði í fjarska, og litlu á eptir kom kippurinn. Öll hús ljeku á reiðiskjálfi, klukkur og bjöllur hringdu og ýmsir lauslegir munir fjellu um koll, og smá- brestir komu í steinbyggingar. Mun kippur þessi hafa staðið yflr allt að einni mínuútu. — Þar eptir var kyrrt, þar til morguninn

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.