Dagskrá - 11.12.1896, Síða 4
i6o
Skemmtifu ndur
verður haldinn í hinu íslenska kvenntjelagi laugardaginn
15. þ. m. í Goodtemplarahúsinu kl. 8 e. h.
Yerslunarhúsiö P, W, RUMOHR
Behnstrasse nr, 16, í Áltona
býður alls konar vörur í stórkaupum, svo sem
lioriivöruES kryddvörur, vcfnaðar-
VÖrur þýskar og enskar, jáMlVÖJfiar þýskar og
enskar, glervörur, steinolíu, sait enskt og
þýskt, trjávið, kol, steinolíuvjelar,
gufuvjelar og fleira. Svo selur þetta verslunar-
liús allar íslenskar vörur, þar á meðal laesta. Allar
pantanir sendist undirskrifuðum. sem hefur aðalumboð a
íslandi fyrir þetta verslunarhús.
Þýskar þungavörur koma hingað beint frá Ham
borg.
Reykjavík io. des. 1896.
Björn Kristjánsson.
C. C, DREW8EN,
Elektropletverksmiðja
34 Östergade 34 Kjöbenhavn K,
frambýður borðbúnað í lögun eins og danskur silfurborðbún-
aður venjulega er, úr bezta nýsilfri með fádæma traustri silfur
húð og með þessu afarlága verði:
T/z kóróna og turnar
I CCD II CCD iii ccdIiv ccd
Matskeiðar eða gafflar tylftkr. 12 i5 18 21 25
Meðalstórar matskeiðar eða
gafflar — — — — 10 13 16 18 22
Dessertskeiðar og dessert-
gafflar — — — — 9 12 14 IÓ 18
Teskeiðar stórar — — 6 7 8,5° IO 12
do srnáar 5 6 7,50 9 II
Súpuskeiðar stórar stykkið 5 6 • 7 8 9
do minni — 3,5° 4,5° 5.5° 6,5° 7,5°
Full ábyrgð er tekin á því að við daglega brúkun í
prívathúsum endist » » 10 ár 15 ár 20 nr
4 einstök stykki fást nöfn grafm fyrir 5 aura hver stafur
Á minnst 6 st. — — — — 3 aura — —
Hlutirnir eru sendir strax og borgunin er komin. Menn
geta einnig snúið sjer til herra stórkaupmanns Jakobs Gunn-
lögssonar Cort Adelersgade 4 Kjöbenhavn K, sem hefur sölu-
umboð vort fyrir Island. — Verðlisti mcð rnyndum fæst ókeypis
hjá ritstjóra þessa blaðs og hjá herra kaupmanni Birni Krist-
jánssyni í Reykjavík.
Höfuðböð. Höfuðböð.
Með sLaura síðast fjekk jeg miklar byrgðir af hin-
um velþekktu höfuðböðum, sem varðveita allra lyfja best
hársvörðinn, verja allri flösu, og kosta aðeins 25 aura.
Magnús Vigfússon.
(baðvörður).
Prentlærlingur
getur komist að strax í prentsmiðju »Dagskrár«.
Lífsábyrgö fyrir börn,
Lífsábyrgð sú sem lvjer er um að ræða, er stofnuð
fyrir nokkrum árum af lífsábyrgðarfjelaginu »Star«, og
er það sú lífsábyrgðartegund er sýnist muni verða mc: t
notuð framvegis.
Hjer skal bent á aðalkosti þessarar lífsábyrgðarteg-
undar.
I. Árlegt iðgjald er ekki nema V2—•/3 af því sem
fullorðið fólk borgar.
II. Fyrir börn krefst ekkert læknisvottorð, sem
stundum hefur í för með sjer, að menn ekki fá
tryggt líf sitt.
III. Lífsábyrgðin er laus við hinar venjulegu takmark-
anir og skilyrði, þannig að
a. Ábyrgðareigandi má ferðast og dvelja hvar
sem vera skal á hnettinum, án þess að gera
fjelaginu grein fyrir því.
b. Ábyrgðareigandi rná s t u n d a sj ó m e n n s k u og
hverja aðra atvinnu, án þess að iðgjald hans hækki.
Sem ellistyrkur er lífsábyrgð þessi einkar hagfelld.
Kaupi maður t. d. barni á fyrsta ári lífsábyrgð til
útborgunar þegar það er 55 ára, er árlegt iðgjald 12 kr.
Borgi ábyrgðareigandi þetta sama iðgjald í 50 ár, hef-
ur hann borgað út 60 j kr., en þá mundi ábyrgðin með
viðlögðum »bonus« vera orðin 1500—1600 kr.
Vilji ábyrgðareigandi verja »bonus« til þess að lækka
iðgjöldin, hverfa þau smámsaman alveg og hann á ábyrgð
sína, sjer að kostnaðarlausu, en getur eptir þann tima
fengið »bonus« lagðan við eða þá borgaðan jafnóðum.
Þegar ábyrgðareigandi er fulls 21 árs öðlast ábyrgð
hans eiginlegt gildi, og nýtur eptir þann tíma allra rjett-
inda fjelagsins um uppbót, lántöku, endurkaupsgildi o.
s. frv.
Deyi ábyrgðareigandi fyrir þann tíma, eru iðgjöld-
in endurborguð foreldrunum eða þeim sem hafa tryggt
líf barnsins.
Ef allir hjer á landi, sem með góðum vilja hafa
efni á því, vildu tryggja líf barna sinna, mundi ekki líða
margir mannsaldrar áður iandsmenn ættu lífsábyrgðir sem
svaraði þúsund krónum á mann, en það væri sama sem
að árlega borgaðist inn í landið 1,750,000 kr. með sama
fólksfjölda og nú er.
Afgreiðslustofa Dagskrár í prentsmiðjuhúsi blaðsins (fyrir
vestan Glasgow). Opin allan daginn. — Utanáskript: Dagskrd,
Reykjavík.
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár,