Dagskrá - 02.01.1897, Page 4
172
þekkja og dæma rjett hin ytri einkenni berklatæringar.
Þá vantaði góða sjónauka og þekking til þess að finna
berklana með þeirn. Þetta hvortveggja hafa aptur nýju
læknarnir. En þegar berklarnir eru fundnir nreð sjón-
aukanum, er ekki lengur spurt um hin ytri sjúkdóms-
einkenni eða hvernig veikin hagi sjer. »Hann er berkla-
sjúkur«, segja þeir; svo eru að öðru leyti ályktanir um
eðli sjúkdómsins og meðferð hans dregin af útlendri
reynslu, og svo er þeirri kenning slegið fram »að berkla-
sýkin ’sje að aukast á Islandi«.
En er þetta rjett? Væri ekki sanni nær að lækn-
ar vorir væru varkárir í því, að fara tneð innlenda
berklasýki eins og þá útlendu ? Eða er nokkurt vit í
því, til dæmis, að fara að senda berklasjúka Islend-
inga suður í lönd, loptslagsins vegna, áður en nokkur
reynsla er fengin fyrir því að Islendingum sjeþaðhoilt?
Jafn mikil fásinna virðist það, að vera að tala um ein-
angrun berklasjúkra manna, eða sjetstaklegar varúðar-
reglur gegn útbreiðslu þessarar sýki, fremur hjer en ann-
arsstaðar, án þess að minnstu líkur sjeu fengnar fyrir
því, að þessi imilenda berklaveiki sje tiltölulega óalgeng-
ari hjer en annarsstaðar. (Mcíra).
ÁxlliS, Handrit af aðsendri grein um »Vesta«,
hefur verið endursend liöf. til leiðrjettingar, og getur
því ekki komið fyr en í næsta blaði.
Vel reikningsfær og æfður skrifari (helst ógiptur),
getur fengið atvinnu frá miðjum janúar. Ritstj. vísar á.
Lífsábyrgðarfjelag-ið
Skýrslur og aðgjörðir fjelagslns standa undir eptir-
liti enska . verslunarráðaneytisins og lög þess eru sam-
þykkt af ensku stjórninni.
Eignir fjelagsins eru rúmar 65,000,000,00 kr.
sem stendur.
Uppbót borgar fjelagið ábyrgðareigendum fimmta
hvert ár. Frá 1843 —1893 hefur fjclagið á þann hátt
borgað ábyrgðareigendum hjer um bil 36,000,000,00 kr.
Hjer skal tilfært dæmi þess hve mikil og haganlega
fyrir komið uppbót þessari er.
Maður, sem næsta afmælisdag sinn er 30 ára trygg-
ir líf sitt fyrir þúsund króna upphæð gegn árlegu ið-
gjaldi 24 kr. 38 a.
a. Sje uppbótin lögð við er »ábyrgðin» að 30 árum
liðnum orðin kr. 1545,50.
b. Sje uppbótin borguð út jafnóðum hefur ábyrgðar-
eigandi á 30 árum fengið útborgaðar 236,45 kr.,
sem nemur :/3 af innborguðum iðgjöldúm.
c. Sje uppbótinni varið til að lækka iðgjöldin verða
þau þannig: Eptir 5 ár 23 kr., IO ár 21,36 kr.,
15 ár 19,17 kr., 20 ár 16,09 kr., 25 ár 12,07 kr.,
30 ár 6,34 kr. A næstu 5 árum falla iðgjöldin al-
veg burtu og ábyrgðareigandi getur lagt uppbót-
ina við ábyrgðina eða fengið hana útborgaða jafn-
óðum.
Lán út á ábyrgðir. Sje búið að borga iðgjöld í
3 ár lánar fjelagið út á ábyrgðirnar, sem nemur fullu
endurkaupsgildi (það má þó ekki vera minna en 100,00
kr.) af láninu, borgast 5°/o árleg renta.
Endurkeyptar ábyrgðir. Hafi iðgjald verið borgað
í 3 ár kauþir fjelagið ábyrgðirnar fyrir sanngjarnt verð
í hlutfalli við aldur ábyrgðareiganda og gildi ádyrgðar-
innar.
Vanskil á iðgjöldum. Ábyrgðir, sem orðnar eru
ógildar sökum vanskila á iðgjaldinu geta með samþykki
fjelagsstjórnarinnar aptur öðlast gildi innnan 13 mánaða
sje 5% renta borguð af iðgjaldinu. Hafi ábyrgðin ver-
ið ógyld í 3 ár verður ábyrgðareigandi á ný að fá lækn-
isvottorð.
Utbreiðsla fjelagins. Eptirfylgjandi skrá sýnir vöxt
og viðgang fjelagsins á hverju 5 ára tímabili síðan það
1868. Kr. 13,603,835.86.
var stofnað 1843.
1 848. Kr. 619,183.43
1 853. » 2,198,483,87
1858. » 4,984,821.48
1863. » 10,110,528.54
1888. Kr
1 893. »
1873. » 20,789,930.04.
1878. » 29,009,705.68.
1883. » 39,097,377.82.
50,748,970.00.
64-233-ii5-oo.
Cróður sofi er til sölu*.
‘g£Sf Útsöiumöimum „Uagslís?árt4
verður með næstu póstferð skýrt frá því, í sjerstöku
brjefi, hve mikið blaðið verður stækkað næsta ár,
hvernig verður hagað útsending þess o. s. frv.
Afgreiðslustofa Dagskrár í prentsmiðjuhúsi blaðsins (fyrir
vestan Glasgow). Opin ailan daginn. — Utanáskript: Dagskrá,
Reykjavík.
Ábyrgðarmaður: Einar Benediktsson.
Prentsmiðja Dagskrár.