Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 21.01.1897, Blaðsíða 4

Dagskrá - 21.01.1897, Blaðsíða 4
Og eiga vildi’ eg öll þau blóm sern eru á þessum hnetti, og hafa mjer í höndum róm í hverjum minnsta ketti Þó fram urn allt eg fossinn kýs þó falli ’ann gegn um björg og ís. En helst eg vildi hafa beiðst mjer hætti’ að geta leiðst. Jún Stefánsson. Vetrarbyrjun. Flókar yfir fjöllum hanga fela mönnum sólarvanga. — Aumt er það hve illa kembir æska vor í fötin sín. — Geturðu ekki greitt þá betur góði, litli, kaldi vetur, — svo hún verði væn og falleg vornótt, unga konan þín. Enginn hefur opnað raust eða um verra skrifað; argvítugra heljar haust hefur enginn lifað. Jón Þorsteínsson. Benjamín Franklín. Svo er um flesta þá menn, er ágætastir eru taldir að mannviti og sálargáfum, að hæfileikar þeirra eru ekki altækir, heldur hnegjast mest í einhverja ákveðna stefnu. Þeir geta verið allra manna snjallastir í sumum greinum, en sjaldnast eru þeir jafnvel fallnir til hvers starfs sem vera skal. Ilinir eru örfáir, sem nálegamega heita jafnvígir á allt og geta sveigt veldissprota sinn yfir nálega öll verksvið mannlegs anda. Einn þessara fjölsnillinga er Benjamín Franklín, sá maður, er sköru- legast barðist fyrir sjálfsforræði Ameríkumanna, er þeir hófu uppreisn gegn ensku stjórninni og slitu bandalag við Englendinga fyrir rúmum hundrað árum. Hann fæddist i Boston 17. jan. 1708. Faðir hans var fátækur tjölskyldumaður, vel viti borinn, sparneyt- inn og atorkusamur. Hann varð þess skjótt var, er Benjamín sonur hans komst a legg og tók að þroskast að aldri og vitsmunum, að mikið myndi í honum búa og fyrir því reyndi hann til að korna honum til mennta og vildi helst, að hann yrði prestur, ef hann með nokkru móti gæti staðist kostnaðinn af því námi. En svo fór, að hann sá sjer það ekki fært sakir efnaskorts, og því var Benjamín komið fyrir hjá eldra bróður sín- um, er var prentari. Þar nam hann prentlistina; en meir hnegðist þó hugur hans að öðru en prentsvertunni og fyrir því las hann öll þau rit, er hann fjekk yfir komist og varði til þess frístundum sínum. Aflaði hann sjer skjótt mikillar og djúpsettrar þekkingar í ýmsum greinum, einkum í náttúruvísindum. Lítt fjell á með honum og bróður hans og áttu þeir ekki skap saman; þess vegna fór Benjamín frá honum, þegar er hann sá sjer það fært. Settist hann þá að í Filadelfíu og hafð- ist þar við eptir það mestan hluta æfi sinnar, þá er hann eigi dvaldi með öðrum þjóðum til að reka erindi landa sinna og tala máli þeirra. Hann kom skjótt fótum undir prentsmiðju í Fila- delfiu og tók aðhalda úti blaði. Ritaði hann þá margt og mikið og voru allar ritgjörðir hans jafnsnjallar, hvort heldur þær voru um hagfræði og stjórnarmál eða guð- fræði, heimspeki og náttúruvísindi. Hann var allra manna ráðsnjallastur og hollráðastur og höfðu þeir allir betra hlut, er hans ráðum fylgdu. Gjörðist hann nú nafntogaður maður um allan Vesturheim. En í Evrópu varð hann fyrst frægur, er hann upp- götvaði þrumuleiðarann. Sú uppgötvun hafði afarmikla þýðingu og má svo að orði kveða, að með henni hafi Franklín grundvallað rafmagnsfræðina. Var hann fyrir hana gjörður heiðursfjelagi í fjöldamörgum vísindafjelög- um og komst nú nafn hans á hvers manns varir um alla Evrópu. Og þá fóru menn líka að veita ritum hans meiri eptirtekt og nú gaf hann út hverja. ritgjörðina á fætur annari um hin fjölbreytilegustu efni. Stíllinn á þeim öllum var hægur, rólegur og íburðarlaus; þarvarekkert orðaglamur nje skrúðmælgi, heldur ljósar og mergjaðar sannanir. Honum var allra manna best lagið að klæða djúpar hugsanir í svo einfaldan búning, að þær verða hverju barni skiljanlegar. En hann var ekki einungis skarpvitur heimspeking- ur og vísindamaður; hagfræðingur var hann líkaogsvo ágætur framkvæmdarmaður, að slíkan gat ekki um all- an Vesturheim, nema ef vera skyldi George Washing- ton, er að mörgu leyti stóð honum jafnfætis, þótt eigi væri hann jafn fjölhæfur. Og enn var hann allramanna stjórnvitrastur Og er það í minnum haft, hvað vel hann jafnan sá við brögðum og ráðabrellum hinna ensku stjórnmálagarpa, er þeir hugðust að leika á hann og beita hann ráðum. Það tókst þeim aldrei, en hitt bar optar við, að Franklín hafði sjálfa þá sem leiksoppa í hendi sjer. Þótt Franklíh hefði aldrci við annað fengist en rit- störf og vísindaiðkanir, myndi hann þó hafa getið sjer svo mikla frægð, að nafn hans hefði eigi gleymst hina næstu mannsaldra. En svo frægur sem hann er fyrir ritstörf sín, þá er hann þó miklu frægastur fyrir forustu þá, er hann veitti Ameríkumönnum, er þeir börðust fyr- ir frelsi sínu og rjettindum gegn rangindum og ójöfnuði J Englendinga.

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.