Dagskrá

Issue

Dagskrá - 06.03.1897, Page 7

Dagskrá - 06.03.1897, Page 7
HeimsmáL (Þýtt). (Framh.) kið eitt er þá eptir að arjöra sjer heimsmál úr einu af hin- um nýju aðaltungumálum, í stað latínunnar. Og þar er þá ekki vandi að velja um. Viðskiptalífið sjálft velur fyrir oss — þetta mál hlýtpr að vera enskan, og það þegar af þeirri einu fullnægjandi ástæðu að þetta mál er komið svo langt á veg að verða heimsmál. Engir stjórnarsamningar, engin lög og ekkert ráðabrugg, hverju nafni sem nefnast kynni, getur hjálpað þýsku eða frönsku fram úr enskunni. Það mál sem leggur undir sig hinn verslandi heim, hlýtur að verða heimsmál — svo framarlega sem málið vantar ekki allt sem þarf til þess að tákna hngmyndir æðri menningar, en þetta mun enginn segja um móðurmál Shakespears, Byrons, Burkes, Darwins og Spencers — hina auðugustu, mýkstu, orð- fimustu tungu, sem börn veraldarinnar nokkurntíma hafa mælt á. Einmittt í þessu eru fólgnir hinir afarmiklu yfirburðir enskunnar yfir hin tilbúnu verslunarmál er menn hafa hugsað sjer. Enskan hefur tvo höfuðkosti sameinaða. Menn geta naumast fundið greiðara og einfaldara verslunarmál, og sjest þetta best á þvi hve fljótt ensk orð og framsetning læðast inn £ aðrar tungur hins nýja tíma. En í öðru lagi nær sá sem lærir þetta mál i því skyni að hagnýta sjer útbreiðslu þess i verslun og viðskiptum, um leið aðgangi að hinni auðug- ustu, fjölbreytilegustu menningu sem heimurinn á. Við þetta bætist að hinir fróðleiksfúsu Bretar sem mega að mörgu lcyti teljast alheimsborgarar, hafa þýtt á tungu sína hið besta og helsta er kornið hefur fram hjá öðrum þjóðum að fornu og nýju. Hið sama verður þar á móti ekki sagt um þýsku cða frönsku, og er tiltölulega minna til af þýðingum á þeim tungum. Það er einnig enskan, sem geymir það mesta og besta sem oss hefur fjenast í vísindum og menningu hina síðustu áratugina. Því ber aldrei að gleyma að þetta mál hefur svo stóra kosti fram yfir þýsku og frönsku, þannig lagaða kosti, að þeir hljóta að koma til greifta, þegar ræða er um hvert þess- ara mála eigi að verða heimsmál. Það er fyrir það fyrsta mál, sem eflist og þróast með hverjum degi sem líður, og einnig það er eiginlegleiki sem vor öld hlýtur að krefjast af því máli sem hún viðurkennir sem sitt mál. Því máli verður þannig háttað að ný nöfn fyrir nýjar hugmyndir, hverju nafni sem nefnast, geti hæglega kom- ist inn í það og orðið því samvaxnar, og þá kröfu uppfyllir ekkert mál betur en enskan. Hvað orðafjölda snertir, er enslcan þegar kornin svo langt á undan bæði frönsku og þýsku, að þessi tvö síðarnefndu mál eru í samanburði við hana eins og barn við hliðina á fulltíða manni. Enn þá er ótalinn einn hinn mesti kostur enskunnar og hann er sá, að ekkert mál á sjer einfaldari eða auðlærðari mál- fræði en hún. Það er viku vcrk fyrir meðal skynsanvn mann að læra þær aðalreglur sem málfræði enskunnar byggist á, það er vikuverk að læra að tala hana svo að maður geti bjargað sjer í viðskiptum við enskutalandi menn — og það tekur hcila mannsæfi og hana langa að læra að nota til fullnustu þá orð- gnótt og auðæfi af hugmyndum sem hún á til. Enskan sómir sjer alstaðar vel; á tungu sæfarans scm gefur skipanir um stefnu og stjórn, og á tungu mælskumannsins hljómar enskan slerkt og vel. (Meira).' Fineste Skandinavisk Export Kafíe Surrogat er hinn ágætasti og ódýrasti kaffibælir, sem nú er í versluninni. Fæst hjá kaupmönnnm á Islandi. F. Hjort & Co. K au p m a n nahöfn. Tlie Edinburgh Roperie & Sailcioth Company Limited stofnað 1750, verksmiðjur í LEÍTH & GLASGOW búa til: færi, kaðia, strengi og segldúka. Vörur verksmiðjanna fást hjá kaupmönnum um allt land. Umboðsmenn fytir ísland og Færeyjar: Kaupmannahöfn. Góö viöbót af úrum og úrkeðjum kom nu með LAURA. U R 1 N seld með því vægasta verði sem unnt er og með fleiri ára ábyrgð. Verðið er frá 17 kr. til 50 kr., ábyrgð frá 3—5 ár. IJRKEÐJUR: Talmi-, Nikkel- og »Hvidmetal«- frá kr. 0,80 til 7,50. ÚRKASSAR, skyggndir, af öllum stærðum. Vandaðar KLUKKUR (Regulatorar) eru til fyrir 20—50 kr. Menn geta sem að undanförnu pantað hjá mjer úr og klukkur, og fengið það sent kostnaðarlaust hvert á land sem vill með landpóstunum eða skipunum. Pen- ingar verða að fylgja pöntun, og verða þa send svo góð úr fyrir það verð sem sent er, sem frekast er unnt. Þó skal þess getið að óhyggilegt er að kaupa úr fyrir innan /7 kr. Reykjavík 2. febr. 1897. Pjeíur Hjaltesteð. (Urstniður). Jörðin Reykjahvoli í Mosfellssveit getur fengist keypt og til ábúðar í vor. Semja má við ábúandann.

x

Dagskrá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.