Dagskrá

Tölublað

Dagskrá - 18.06.1897, Blaðsíða 2

Dagskrá - 18.06.1897, Blaðsíða 2
374 fengsæl mið, ef þau eru vel og rjett sótt, enda hefur marg- ur góður gullskildingurinn verið dreginn þaðan aflands- mönnum, þó tækin og aðferðin öll, hafi verið harla ó- fullkomin. (Frh.). Dauður hnöttur. Venus, hin bjarta, fagra kvöldstjarna, sem nefnd er eptir ástargyðjunni og hrifið hefur svo mörg augu dauðlegra manna á þessari jörð vorri til ljóða og til -ásta —- hún er dauð. Menn hafa lengi verið í vafa um hve langur dagur væri á þessari reikistjörnu, og fróðustu menn um hin himnesku vísindi, stjörnuspekina, hafa spreytt sig á því að geta upp ýmsar dagalengdir og stutt getgátur sínar J með mjög skarpskyggnum útreikningi, en allt hefur reynst misreiknað, þangað til nú að menn hafa fundið að Venus er dauð —• það er að segja að öðru megin ! á hnettinum er eilífur dagur, en hinum megin eilíf nótt. ! Það er eilífur dagur á þeirri hlið Venusar semaðsólinni snýr — og eilíf nótt á hinni. A daghveli hnattarins er skýjalaus, vatnslaus eyðimörk, þar sem ekkert iíf er til, en rökkurhvelið er eitt einasta biksvart og helkalt ísríki, þar sem dauðinn einn getur þrifist. Venus hefur dáið af elli. — Menn vita að líf hvers hnattar er háð stöðugri breyt- ing dags og nætur — og þessi breyting kemur fram af því að hnötturinn snýst um möndul sinn. En hnöttur- inn er einnig háður öðru afli — því sem knýr hann áfram á braut sinni kring um miðsóknarpólinn. En hinn sami kraptur sem starfar að því að aitka hraða hnattarins í brautinni starfar einnig að því að minnka snúningshraða hnattarins um sinn eigin möndul. Þetta spil kraptanna heldur áfram ægilega langan ei- lífðartíma, þangað til snúningshraðinn fellur saman við hnattbrautarhraðann, og þá er líf hnattarins á enda. — Æfi hnattanna ákvarðast af fjarðlægð þeirra frá mið- sóknarpólnum (sólinni) og af þyngd þeirra. Merkúríus er því dauður fyrir æfalöngu — og hann hefur hlotið að verða mjög skammlífur. Það er hægt að reikna hlutfallslega æfi allra reildstjarnanna, og það er og hægt að sjá greinileg merki þess að Mars, annar næsti nágrannahöttur vor, er að eldast. Jörðin okkar er háð sömu lögum, en ef hún ekki deyr með einhverjum ófyrirsjeðum atburðum, þá á hún svo langan æfitíma að oss sundlar af því að bera hann saman við vort eigið stutta mannslíf. Annars hafa menn verið furðu ókunnugir Venusi allt til þessa, þrátt fyrir það þótt hún sje næst oss af öllum plánetunum, og ber margt til þess, einkum að Ven- usbrautin liggurfyrir innan jarðbrautina ogsnýr ástastjarnan því dimmu hliðinni að oss þegar hún er næst oss, með því að hún er þá milli jarðarinnar og sólarinnar. Ennfremur er hún aldrei langt frá sólinni frá jarðarbúum að sjá — og ljósgeislarnir leika svo um hina björtu hlið hennat, að oss birtir fyrir augum í sjónaukunum, þegar vjer horfum á hina framliðnu stjörnugyðju. Þannig forðaði jeg lífi mínu. Eptir John R. Sims. Viðburður sá bar við fyrir mörgum árum, er jeg ætla að segja frá. Það er í eina skiptið að líf mitt hefur verið í verulegri hættu, og þótt hann minni mjög á leiki þá, er reisa hárin á höfðum manna, var hann samt verulega ægilegur meðan á honum stóð. Líf mitt á jeg að þakka hvatskeytisbragði, sem var svo fífldjarft að það sannar augljóslega að allra friðsömustu og spök- ustu menn geta orðið jafnhættulegir og verstu glæpa- menn þegar þeir þurfa að bjarga lífi sínu. Þegar saga þessi gjörðist var jeg að eins 22 ára að aldri og vann á alkunnri málaflutningsmannsskrifstofu og átti jeg að æfa mig þar í lögfræðingastörfum. Faðir minn bjó í Connecticut og átti enga vini í New-York. Hýrnaði því æði yfir mjer þegar Fogson gamli kallaði mig inn á skrifstofu sína einu sinni að morgni dags, og sagði mjer að hann þyrfti að láta mig ferðast til Brox- ton þá þegar eins og jeg stæði til að útkljá »prívat«- erindi fyrir sig, sem útkljá þyrfti hið allra bráðasta. »Farið með peningana þá arna til hans Warren«, mælti hann, og benti um leið á seðlahrúgu, sem lá á borðinu. »Teljið þjer þá!« Jeg vætti fingur mína og taldi seðlana. Voru þeir misháir, úr 5 dollurum upp í 50 dollara. »Fimm þúsund og þrjú hundruð«, svaraði jeg. »Það er rjett«, mælli hann. »Upp frá þessu eru þeir í yðar ábyrgð. Stingið þeim í kampunginn þann arna og hafið ekki af þeim augun þangað til þjer hafið fengið herra Warren þá í eigin hendur og tekið á móti kvittun frá honum fyrir þeim. Járnbrautarlestin ein leggur af stað kl. 12.20, og er best að þjer farið með henni«. Jeg gekk út í allra besta skapi, en var með sjálfum mjer að furða mig á hvers konar nýtt heimskupar hinn skeytingarlitli og ljettúðugi skjólstæðingur okkar hefði framið, fyrst hann þyrfti peninga í slíku skyndi, og þá þyrfti að senda honum á þennan hátt. Jeg stakk kam- pungnum í vasann á yfirfrakkanum mínum, því kam- pungurinn var fyrirferðarmeiri en svo, að jeg gæti komið honum í nokkurn annan vasa. Að svo búnu skundaði jeg til járnbrautarstöðvarinnar og keypti mjer farbrjef til Dayton, sem var næsta járnbrautarstöðin við búgarð

x

Dagskrá

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.