Dagskrá

Ataaseq assigiiaat ilaat

Dagskrá - 18.06.1897, Qupperneq 3

Dagskrá - 18.06.1897, Qupperneq 3
375 Warrens. Á þeim tímum fóru járnbrautirnar ekki með slíkum hraða og nú tíðkast, og var jeg því þreyttur og stirður af kulda þegar jeg kom loks til Dayton, af því að hafa setið svo lengi í vagninum. Lopt og láð var grátt og drungalegt í kring um mig og skuggalegt ásýndum, og óhugð hvíldi yfir öllu svo sem frekast getur verið í kuldaveðri í nóvembermánuði. Stóð jeg á auðum járnbrautarstöðvarpallinum og horfði á hversu lestin þusti lengra áfram. Hafði jeg búist við því að hitta þar einhvern vagn, sem flytti mig lengra áleiðis, en brugðust gersamlega þær vonir mínar, því jeg sá ekki eina einustu smákerru hvað þá annað. Gekk jeg þá til brautarstöðvarstjórans og ætlaði hann að ganga inn á skrifstofu sína. Spurði jeg hann leiðar til Hazel- ton. »Hazelton«, át hann eptir mjer steinhissa. »Það eru meira en 12 mílur til Hazelton«. »Þjer munið ekki hafa orðið var við að hjer væri maður til þess að sækja mig?« Hann hristi að eins höfuðið og sagði ekki neitt. »Nú, þá verð jeg að reyna að fá mjer einhvern fararbeina«, mælti jeg. Hvert á jeg að snúa mjer til þess að fá mjer vagn?« »Þjer getið ekki náð hjerna í einn einasta vagn, herra minn«, mælti hann. »Ættuð þjer því að fara að mínum ráðum og bíða hjer til morguns. Hjer er reyndar nokkuð þröngt um húsakynni, en það er þó að minnsta kosti hreint«. Þessu ráði þorði jeg engan veginn að fylgja, því mjer hafði verið gefin ákveðin skipun, sem jeg mátti til að breyta eptir. (Frh.). Próf í forspjallsvísindum við hina hærri skóla tóku í gær: Andrjes Fjeldsted . . . . vel -f- Guðmundur Guðmundsson vel -f- Ingólfur Gíslason dáv’el Jónas Kristinsson . . . . . ... dável Magnús Þorsteinsson . . . . . dável -)- Þórður Pálsson . . . . dável -)- Þorbjörn Þórðarson . . , . . . , . vel -j- Maður nýkominn frá Borðeyri segir eng- an hafís þar um slóðir svo langt sem augað eygir. Nýtt pukur. Eptir þvf sem segir í »Þjóðólfi« í dag, kvað dr. Valtýr enn hafa nýtt pukur upp á að bjóða í stjórnarskrármálinu. —• Gaman verður að frjetta síðar hverju hinn stjórn- spaki doktor vill nú biðja þingmenu að þegja yfir. Misprentað í Dagskrá nr. 93 bls. 370 »Vatnsins ás og Fjallsins dís« á að vera »Fjallsins ás og vatnsins dís«. Lífsábyrgðarfjelagið ,Star‘. Umboðsmenn fjelagsins eru: Borgari Vigfús Sigfússon, Vopnafirði. Verzlunarm. Rolf Jóhannsson, Seyðisfirði. Verzlunarmaður Grímur Laxdál, Húsavík. Amtskrifari Júlíus Sigurðsson, Akureyri Sjera Árni Björnsson, Sauðáraróki. Sjera Bjarni Þorsteinsson, Siglufirði. Bókhaldari Theodór Olafsson, Borðeyri. Sýslumaður Skúli Thoroddsen, ísafirði. Sjera Kristinn Daníelsson, Söndum í Dýralirði. Kaupmaður Pjetur Thorsteinsson, Bíldudal. Kaupmaður Bogi Sigurðsson, Skarðstöð. Bóksali Gísli Jónsson, Hjarðarholti í Dalasýslu. Verzlunarmaður Ingólfur Jónsson, Stykkishólmi, Kaupmaður Ásgeir Eyþórsson, Straumfirði. Kaupmaður Snæbjörn Þorvaldsson, Akranesi. Verzlunarmaður P. J. Petersen. Keflavík. Ólafía Jóhannsdóttir, Reykjavík. Skrifstofa fjelagsins er á Skólavörðustíg nr. 11, opin hvern rúmhelgan dag. Lífsábyrgðarfjelagið ,Star‘. Sjerstakir hagsmunir er »Star«. bjður dhyrgðareigendum sínum. I. 90°/o af ágóðanum (hlutabrjefaeigendur fá 10°/o). II. Bonus á Bonus. • III. Bonus á iðgjaldalausar ábyrgðir, fyllilega f hlutfalli við hina minnkuðu ábyrgðarupphæð. IV. Bonus á hvern þann hátt eptir lögum fjelagsins er menn kjósa sjer. V. Lán fyrir hálfu iðgjaldi í allt að 5 árum þegar með þarf. VI. Lán fyrir öllu iðgjaldinu í allt að 13 mánuðum þegar ábyrgðin hefur nægilegt peningagildi. VII. Utborgun af allri peningaupphæðinni, jafnvel þó iðgjöld ekki hafi verið borguð í heilt ár meðan peningagildi ábyrgðarinnar nemur iðgjaldaupphæð- inni. VIII. Stutta og ljósa ábyrgð og lausa við allar tak- markanir með tilliti til verustaðar að fráteknum vissum hjeruðum í hitabeltinu. IX. Útborgun af allri upphæðinni þó ábyrgðareigandi fyrirfari sjer, sjeu 2 ár liðin frá því að ábyrgðin öðlaðist gildi, og sje ábyrgðin veðsett, á hvaða tíma sem það skeður.

x

Dagskrá

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagskrá
https://timarit.is/publication/153

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.